Kærleikshlaðið og litríkt mataræði

Það er frelsandi að ger­ast vegan, því þannig má borða eins mikið af kær­leiks­hlöðnum og lit­ríkum mat og maður getur í sig látið án þess að fá sam­visku­bit af nokkru tagi. Það segir Guðrún Sóley Gests­dóttir og kennir fimm auð­veld skref að mark­mið­inu.

Kærleikshlaðið og litríkt mataræði

Þegar Guðrún Sóley Gests­dóttir talar um mat og hvernig henni líður eftir að hún fjar­lægði dýra­af­urðir úr matar­æði sínu er auð­velt að hríf­ast með henni. Hún talar um að græna fæðið hlaði fæð­una hennar jákvætt og af kær­leika. „Sumir líta á vegan­isma sem heft­andi en ég upp­lifi hann þvert á móti frelsandi, því ég þarf að borða mik­inn mat til að ná inn hita­ein­inga­fjöld­anum sem ég þarf. Disk­arnir mínir eru fullir af lif­andi fæði sem vex á trjám og á upp­runa sinn í nátt­úr­unni, kær­leiks­hlað­inn, lit­ríkur fjöl­breyttur matur sem ég get borðað þangað til ég get ekki meir,“ segir hún.

Þá sé það góð til­finn­ing að vita með vissu að eng­inn hafi þurft að láta lífið fyrir mál­tíð­ina fyrir framan mann. Fyrir jólin kom út á vegum Sölku útgáfu bókin Græn­kera­krásir Guðrúnar Sóleyjar en í henni er að finna „vegan upp­skriftir fyrir mann­úð­leg mat­ar­göt“. Bókin er liður í bar­átt­unni. „Bókin er kannski mín teg­und af aktí­visma. Frum­kvæðið að henni kom frá Dögg og Önnu Leu hjá Sölku, sem voru svo snjallar að spotta eft­ir­spurn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár