Heróp gegn skammdeginu og óttinn við höfnun

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 25. jan­úar til 7. febr­úar.

Heróp gegn skammdeginu og óttinn við höfnun

Þetta og svo margt fleira er að ger­ast næstu tvær vik­urnar.

Hljóðön

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? 26. jan­úar til 3. mars
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

Hafn­ar­borg verður opnuð á ný eftir fram­kvæmdir með þess­ari sýn­ingu sem fjallar meðal ann­ars um tón­list í tíma­leysi safna­rým­is­ins. Sýningin fagnar fimm ára starfs­af­mæli sam­nefndrar tón­leikar­aðar, sem hefur verið á dag­skrá Hafn­ar­borgar allt frá árinu 2013 og til­einkuð er sam­tímatón­list.

Myrkir Músikdagar

Hvar? Víða um borg­ina
Hvenær? 26. jan. til 2. feb.
Aðgangs­eyrir: 15.000 kr.

Þessi hátíð hefur verið starf­rækt frá 9. ára­tugnum, en í dag er áhersla hátíð­ar­innar að flytja og kynna sam­tímatón­list með áherslu á nýja íslenska tón­list og flytj­endur í bland við erlend verk og erlenda flytj­endur. Meðal ann­ars kemur Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, Nordic Affect og ýmsir raf­ein­yrkjar fram.

Skúlptúr og nánd

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? Til 31. mars
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Abstrakt­lista­mað­ur­inn Sigurður Guð­munds­son hefur átt langan feril og víða er að finna högg­myndir eftir hann í opnu rými, bæði á Norð­ur­lönd­unum og Mið-Evrópu. Sigurður segir sjálfur að verk hans séu merk­ing­ar­fælin og til þess fallin að skapa til­finn­ingar í brjósti áhorf­anda. Hann vinnur vilj­andi ekki með geometrísk form.

Kim Larsen – heiðurstónleikar

Hvar? Iðnó
Hvenær? 31. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Skraut­leg­asta og stærsta dæg­ur­laga­stjarna Dana­veldis, Kim Larsen, féll frá í fyrra, en hann hefur skilið eftir sig fjöld­ann allan af tón­verkum og verið áhrifa­valdur á fjölda kyn­slóða í Danmörku og víðar. Mads Mouritz og hljóm­sveit spila alla helstu slag­ara hans, en auk þeirra taka til sviðs Ólöf Arnalds, Bubbi Morthens, Teitur Magn­ús­son og fleiri.

Það sem við gerum í einrúmi

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 1.–23. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 4.400 kr.

Þetta íslenska kvik­mynda­leik­hús­verk fjallar um ein­semd­ina, ein­angrun og ótt­ann við höfnun. Verkið segir frá fjórum ólíkum ein­stak­lingum sem búa í sömu blokk­inni. Öll eru þau ein­angruð, en af mis­mun­andi ástæðum. Þrá þeirra til að tengja við aðra drífur þau til aðgerða, hvert á sinn hátt.

Kvöldvaka með Jóni Gnarr

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Til 3. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 6.550 kr.

Á kvöld­vök­unni ætlar sagna­mað­ur­inn Jón Gnarr að segja sögur af sínu lífi og má með sanni segja að sumt af því sem hann hefur upp­lifað er alveg hreint lygi­legt. Meðal þess er þegar hann var afklæddur á homma­klúbbi í New York, þegar hann átti nota­legt spjall við íslenskan nas­ista sem hitti Hitler, apa­kött sem kom til Íslands og fleiri sögur.

S.A.D Festival

Hvar? Paloma
Hvenær? 1. febr­úar kl. 21.00
Aðgans­geyrir: Ókeypis!

Þessi ókeypis einnar nætur tón­list­ar­við­burður er settur á lagg­irnar til að létta á skamm­deg­is­þung­lynd­inu. Á tón­leik­unum kemur fram rjómi íslensku rapp­sen­unnar og spilar langt fram í morg­unsárið. Fram koma til dæmis dúndur dúóið Cyber, klikk­aði vís­inda­mað­ur­inn Elli Grill, drottn­ing trap-sen­unnar, Alvia, rímna­smið­ur­inn Ragag Holm, Flóni, kef LAVÍK og fleiri.

Warmland

Hvar? Iðnó
Hvenær? 6. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Róllyndu pop-raf­tón­list­ar­menn­irnir tveir í Warmland halda tón­leika í Iðnó þar sem lagt verður mikið upp úr sjón­rænum áhrifum og upp­lifun. Sveitin er skipuð fyrrum með­limum Ensíma og Leaves og er reynsl­unni rík­ari. Sveitin spil­aði síð­ast á Iceland Airwaves og er með plötu í bígerð sem á að koma út í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár