Þakklátar góðhjartaða fólkinu sem gefur föt

Dæmi er um að fólk prjóni fyrir nauð­stadda sem sækja sér hjálp á Kaffi­stofu Sam­hjálpar. Sædís Slaufa Haf­steins­dóttir fór í gegnum með­ferð­ar­úr­ræðið og hjálpar nú öðrum.

Þakklátar góðhjartaða fólkinu sem gefur föt
Sædís Slaufa Haf­steins­dóttir Segir fata­söfnun sína hafa farið langt fram úr vonum. Hún er búin að klæða meira og minna alla sem koma á kaffi­stof­una og á nóg eftir. Mynd: Davíð Þór

Sædís Slaufa Haf­steins­dóttir vinnur sjálf­boða­vinnu á Kaffi­stofu Sam­hjálpar í Borg­ar­túni. Hún aug­lýsti á dög­unum eftir hlífð­ar­fatn­aði á Facebook til að gefa þeim sem koma á Kaffi­stof­una. Stundin hitti Sædísi á Kaffi­stof­unni ásamt Rósu Gunn­laugs­dóttur sem vinnur á skrif­stofu þeirra. Sædís segir frá eigin sjálf­boða­vinnu, en hún sjálf nýtti sér með­ferð­ar­úr­ræði Sam­hjálpar.

„Hérna er fólk að koma alls staðar frá, býr á göt­unni eða býr í tjöldum og maður sér hvað þau eru illa klædd,“ segir Sædís, en fata­söfnun hennar fór langt fram úr vonum. „Ég er nán­ast búin að gefa öllum eitt­hvað hérna, bæði skó og mjög góðar úlpur, hlý teppi og ull­ar­sokka. Við fengum meira að segja föð­ur­land til að gefa.“

Eftir eru fjórir eða fimm fullir svartir pokar af fötum. Sædís bjóst ekki við því að fólk tæki sér tíma úr vinnu til að koma með föt á Kaffi­stof­una sem er lokað klukkan þrjú. „Samt komu allir bara með þetta hingað og fengu bara gott knús fyrir.“

Náin samskipti við skjólstæðinga

„Fólk verður svo rosa­lega opið við mann,“ heldur Sædís áfram. „Þau koma alls staðar frá úr heim­inum og hafa svo ólíkan bak­grunn miðað við okkur. Stundum þurfa þau bara að tala við mann. Ég sit stundum frammi á spjalli við fólkið, spyr hvað þau ætla að gera í fram­tíð­inni, hvað er planið? Fólk veit ekk­ert hvað ger­ist, hvort það fái að vera í land­inu eða ekki. Sumir eru bara einir hérna í land­inu, eiga enga vini og ekk­ert. Þau sjá ekki fram á að kom­ast neitt og vita ekk­ert hvað verður, hver þeirra staða er almennt innan þjóð­fé­lags­ins eða lífs­ins.“

„Það kemur nán­ast dag­lega ein­hver hingað inn og seg­ist vera nýkom­inn til lands­ins og veit ekki hvað á að gera“

Þær segja að fólk viti stundum ekki einu sinni af Útlend­inga­stofnun við komu til lands­ins. „Það kemur nán­ast dag­lega ein­hver hingað inn og seg­ist vera nýkom­inn til lands­ins og veit ekki hvað á að gera,“ segir Sædís. „Þá er það bara að fara í Kópavog í Útlend­inga­stofnun. Gá hvort þeir geti útvegað íbúð og þá ertu í her­bergi með tíu öðrum. En þá er lög­reglan með vega­bréfið. Þetta er bara það eina sem maður getur sagt. Þetta hlýtur að vera mjög óþægi­legt. Að vera bara einn í ein­hverju landi, tala ekki málið og hafa engan sama­stað. Þá er gott að geta rétt smá hjálp­ar­hönd! Smá bros, knús eða föt eða kaffi. Bara eitt­hvað. Bara að vera næs. Kurteisi kostar ekki neitt.“

Fjölbreytt starf

Starf Sam­hjálpar er marg­þætt. Ásamt því að reka Kaffi­stof­una, þar sem hádeg­is­matur er eld­aður allan árs­ins hring, er með­ferð­ar­heim­ilið Hlað­gerð­ar­kot, áfanga­heim­ili og önnur stuðn­ings­heim­ili fyrir fólk sem þarf aðstoð við dag­legt amstur. „Það er bara þetta sem við heyrum svo oft, að það vantar úrræði sem grípur fólk þegar það er búið í með­ferð­inni,“ segir Rósa, en skrif­stofan mið­stýrir öllum þessum stöðum. „Það lendir bara aftur á göt­unni eða aftur þar sem það var statt áður. Oft eru þau búin að brenna allar brýr að baki sér vegna margra ára neyslu.“ Áfanga­heim­ili eins og Sporið eru til þess að hjálpa fólki að kom­ast aftur í sam­fé­lagið. Á Sporinu eru ein­stak­lingar með her­bergi, allt að tutt­ugu manns eru þar hverju sinni og hafa aðgang að sam­eig­in­legri aðstöðu.

Sædís er, eins og áður kom fram, dæmi um ein­stak­ling sem fór í gegnum með­ferð­ar­úr­ræði Sam­hjálpar. Hún nýtti sér einnig hin úrræðin eftir með­ferð­ina og bauð sig svo fram í sjálf­boða­starf.

Ótrúlegt hve margir góðir eru til

Kaffi­stofan reiðir sig mikið á vel­vild fyr­ir­tækja. „Ekki aðeins af því að mat­ur­inn er útrunn­inn heldur líka bara af því að vörur beygl­ast og þá selst það ekki,“ heldur Rósa áfram. „Þá fáum við það allt saman til okkar og við getum þá stolt sagt frá því að við erum að sporna gegn mat­ar­sóun með þessu. Við nýtum það sem ann­ars væri hent.“

„Það eru konur sem eru í alvör­unni á kvöldin að prjóna vett­linga og húfur og koma svo með það hingað“

Rósa lýsir góðum við­brögðum við hjálp­ar­beiðnum. „Sædís sendir frá sér eina ósk þar sem hún seg­ist vera frá Kaffi­stof­unni og sé að óska eftir fötum fyrir fólk sem þurfi á því að halda sem bara bók­staf­lega býr á göt­unni. Að sjá við­brögðin sem komu við þessu! Þetta er eitt­hvað sem við erum vitni að á hverjum degi. Það eru konur sem eru í alvör­unni á kvöldin að prjóna vett­linga og húfur og koma svo með það hingað. Ímyndið ykkur bara tím­ann sem fer í þetta. Þær koma með poka fulla af húfum og vett­lingum, ull­ar­vörum sem þær hafa sjálfar setið og prjónað.“

Hún segir einnig að góð­hjart­aðir ein­stak­lingar innan fyr­ir­tækja ákveði að gefa mat og aðrar vörur til Sam­hjálpar.

„Maður getur ekki alltaf verið að horfa á fyr­ir­tæki sem ein­hverja ómann­aða vél. Það er eld­aður hádeg­is­matur hérna á hverjum ein­asta degi, 365 daga árs­ins, og fólk veit það.“ Þetta er ekki gróða­starf­semi,“ segir Rósa og hlær. „Alveg langt í frá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár