Erfðamengi mannsins rýrnar um tæp 20 prósent

Í ljós hefur komið að raun­veru­legur fjöldi gena í erfða­mengi manns­ins er mun minni en hug­myndir vís­inda­manna gerðu ráð fyrir.

Erfðamengi mannsins rýrnar um tæp 20 prósent
DNA-mengi Erf­aða­mengi manns­ins var fyrst rað­greint upp úr síð­ustu alda­mótum. Mynd: Shutterstock

Erfða­mengi manns­ins var fyrst rað­greint rétt upp úr síð­ustu alda­mótum. Til­kynn­ingin barst eftir mikið kapp­hlaup milli banda­rískra rann­sókn­ar­hópa sem ann­ars vegar voru styrktir af National Institutes of Health í Banda­ríkj­unum og hins vegar einka­fyr­ir­tæk­inu Celera Genomics.

Áður en rað­grein­ing hófst höfðu margir reynt að giska á hversu mörg gen erfða­mengi manns­ins teldi. Til að útskýra þá gríð­ar­legu yfir­burði sem mað­ur­inn hafði yfir aðrar dýra­teg­undir þótti aug­ljóst að gena­fjöldi hlyti að vera marg­falt meiri. Eftir fjölda ágisk­ana, sem yfir­leitt voru byggðar á ein­hvers konar rann­sókn­ar­vinnu, komust hóp­arnir að þeirri nið­ur­stöðu að lík­legur fjöldi væri milli 25.000 og 50.000 gen. Ein­hverjir vildu þó halda því fram að þau væru nær 100.000. Það voru því tals­verð von­brigði fyrir marga þegar rað­grein­ingu lauk og í ljós kom að fjöld­inn var senni­lega rétt um 25.000 gen.  

Tilkoma raðgreininganna

Rað­grein­ing á erfða­efni er að mestu leyti sam­vinna tveggja mik­il­vægra þátta: nákvæmra efna­hvarfa og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár