Kvartað yfir lágflugi herþotna nálægt fuglabjörgum

Danskar her­þotur við loft­rým­is­gæslu þóttu fljúga mjög lágt yfir Drangey. Svið­stjóri hjá Nátt­úru­fræði­stofnun segir nauð­syn­legt að nátt­úr­unni sé sýnt til­lit. Þoturnar voru yfir lág­marks­hæð að sögn Land­helg­is­gæsl­unnar.

Kvartað yfir lágflugi herþotna nálægt fuglabjörgum
Drangey Lágflug her­þotna getur truflað bjarg­fugl og valdið skaða. Mynd: Wikimedia Commons

Lágflug her­þotna sem eru við loft­rým­is­gæslu hér á landi í námunda við fugla­björg er áhyggju­efni og nauð­syn­legt að nátt­úr­unni sé sýnt til­lit. Þetta er mat Kristins Hauks Skarp­héð­ins­sonar, svið­stjóra dýra­fræði hjá Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands.

Stundin fékk á dög­unum ábend­ingu um að her­þotur danska flug­hers­ins sem eru við loft­rým­is­gæslu hér við land hafi flogið lág­flugi yfir Hjalta­dal í Skaga­firði og þaðan út yfir fjörð­inn sjálfan, í mjög lágri hæð að því er vitnum fannst. Fékk Land­helg­is­gæslan jafn­framt ábend­ingar um málið.

Á Skaga­firði er líf­legt fugla­líf í tveimur eyjum, Málmey en ekki síður í Drangey. Fram­kvæmda­stjóri varn­ar­mála­sviðs Land­helg­is­gæsl­unnar segir að vél­arnar hafi ekki farið niður fyrir leyfi­lega hæð á flug­inu.

Mikill hávaði fylgdi þotunum

Atvikið átti sér stað í síð­asta mán­uði, 17. apríl síð­ast­lið­inn. Tvær orr­ustu­þotur sáust þá fljúga út Hjalta­dal og þótti þeim sem til sáu þær vera lágt á lofti og lækka enn frekar flugið þegar þær komu út yfir sjó. Mikill hávaði mun þá hafa fylgt flugi þeirra sem trufl­aði fólk og lýstu þeir sem til vél­anna sáu áhyggjum af því að þær hefðu flogið mjög lágt yfir Skaga­fjörð­inn og nálægt Drangey.

Ekki í fyrsta skipti sem kvartað er

Kristinn Haukur Skarp­héð­ins­son, sviðs­stjóri dýra­fræði hjá Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands segir að í ein­hverjum til­fellum séu fuglar mættir á varp­stöðvar um miðjan apríl og mögu­lega sé varp farið af stað en það sé þá í mjög litlu mæli. Engu að síður geti lág­flug haft nei­kvæð áhrif á fugla­lífið.

„Það eru ákveðnar reglur um flug og lág­flug, bæði yfir landi og sjó, en svo kemur raunar í ljós að her og Land­helg­is­gæsla þurfa ekki að fylgja neinum slíkum reglum, nema sínum eigin. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur upp. Það hefur ítrekað verið bent á þetta og ég man til þess að fyrir tíu árum var kvartað sér­stak­lega yfir lág­flugi her­þota yfir Horn­strandir, um hávarp­tím­ann, þegar þotur flugu þar yfir Hælavík og Hornvík. Menn urðu þá vitni að því að fugl­inn sóp­að­ist úr bjarg­inu og vænt­an­lega hefur eitt­hvað mis­farist af eggjum og ungum. Í kjöl­farið sendi Nátt­úru­fræði­stofnun erindi til Flug­mála­stjórnar sem þá var og bentum á að ákveðnir staðir væru við­kvæmir fyrir lág­flugi sem þessu á varp­tíma. Raunar höfðum við ein­hverjum nokkrum árum áður sent hnita­skrá til þar til bærra aðila yfir staði sem ætti að forð­ast flug yfir.“

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur upp“

Kristinn segir að flug sem þetta sé mjög óþægi­legt fyrir fugla, og raunar menn líka. „Þeir ættu í það minnsta að forð­ast að fljúga yfir fugla­björg, þar sem til dæmis svart­fuglar sitja á mjög þröngum syllum. Á þessum tíma núna hefur von­andi ekki orðið tjón af þessu þar eð varp er tæp­ast farið í gang af krafti hjá svart­fugli, en það gæti þó verið farið af stað hjá skarfi og súlu. Það ætti hins vegar að beina þess­ari flug­um­ferð frá varp­svæðum, og alveg sér­stak­lega frá svart­fugla­björgum.“

Reglur voru ekki brotnar

Jón B. Guðnason fram­kvæmd­ar­stjóri varn­ar­mála­sviðs hjá Land­helg­is­gæsl­unni, sem skipu­leggur loft­rým­is­eft­ir­litið, segir að það hafi menn fengið ábend­ingar um að þot­urnar hafi verið mjög lágt. Því hafi hann látið kanna flug­hæð þeirra og í ljós hafi komið að reglur hafi ekki verið brotnar.

„Vélarnar voru þarna í leyfi­legri flug­hæð. Yfir landi má fljúga í 5.000 fetum en yfir sjó má fara niður í 300 fet. Við hins vegar almennt viljum það ekki, að svo lágt sé flogið. Áhorf­endur mistúlka stundum hvernig vélar fljúga, það er að segja fyrir venju­legan mann á jörðu niðri getur verið erfitt að meta hvað er hátt og hvað er lágt, það er kannski túlk­un­ar­at­riði. Ég hef fengið kvart­anir þegar vélar eru hátt upp, í 30 fetum, yfir hávaða frá þeim.“

Líklega bara að „dást að íslenskri náttúru“

Jón segir jafn­framt að her­þot­unum sé bannað að fljúga yfir ákveðin svæði sem telj­ist við­kvæm og þeim sé úthlutað ákveðnum svæðum, boxum, yfir land­inu sem þær megi fljúga yfir og þá í ákveð­inni hæð. „En þegar þær fljúga út úr þessum fyr­ir­fram ákveðnu svæðum þá fá þær svo­kall­aðar sjón­flugs­heim­ildir, sem eru sam­kvæmt alþjóð­legum lögum. Við höfum reyndar sett þrengri reglur hér á landi en almennt gildir. Það er tals­vert mikið eft­ir­lit með þessu. Við erum síðan með ákveðin svæði á kortum sem eru bann­svæði og ætlum að bæta Drangey inn á það kort, hún var þar ekki. Það er mögu­legt að þeir hafi flogið í lág­flugi yfir Skaga­fjörð­inn en þá ekki nær Drangey heldur en tvær sjó­mílur, það eru reglur hjá okkur hvað það varðar. Menn eru nátt­úru­lega bara allir af vilja gerðir og eng­inn hefur áhuga á að valda tjóni á dýra­lífi eða ónáða fólk frekar en nauð­syn­legt er. Í þessu til­viki voru vél­arnar að koma frá Akureyri úr aðflugsæf­ingum, Akur­eyr­ar­flug­völlur er vara­flug­völlur fyrir Keflavík, og þeir hafa bara verið að dást að íslenskri nátt­úru á leið­inni til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár