Átta sjálfsvíg á Landspítalanum frá 2007

Alls eru 22 stað­fest sjálfs­víg sjúk­linga á íslenskum sjúkra­húsum eða í með­ferð­ar­sam­bandi við sjúkra­hús á Íslandi. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur.

Átta sjálfsvíg á Landspítalanum frá 2007

Frá því að raf­ræn atvika­skrán­ing var tekin upp árið 2004 hafa 16 sjálfs­víg og 45 alvar­legar til­raunir til sjálfs­vígs sjúk­lings í með­ferð­ar­sam­bandi við Land­spít­ala verið skráð. Þá hafa fjórir sjúk­lingar svipt sig lífi inn­rit­aðir á geð­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri frá því deildin var stofnum árið 1986. Tveir ein­stak­lingar hafa fyr­ir­farið sér á Sjúkra­hús­inu Vogi á þeim 40 árum sem sjúkra­húsið hefur verið starf­rækt, en það var árin 2014 og 2015. Engir skjól­stæð­ingar hafa framið sjálfs­víg í með­ferð á Hlað­gerð­ar­koti eða slasast við sjálfs­vígstil­raun þar. Alls eru því 22 stað­fest sjálfs­víg á sjúkra­húsum á Íslandi.

Spurði um sjálfs­víg á sjúkra­húsumÞór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði heil­brigð­is­ráð­herra um sjálfs­víg á sjúkra­húsum á Íslandi.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manni Pírata. 

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum var greint frá því í fréttum að á tíu daga tíma­bili í ágúst hefðu tveir sjúk­lingar svipt sig lífi á geð­deild spít­al­ans. Atvikin voru til­kynnt bæði lög­reglu og Embætti land­læknis. Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Land­spít­ala, sagði í sam­tali við RÚV í kjöl­farið að það eigi ekki að geta gerst að fólk svipti sig lífi á geð­deild spít­al­ans. „Við viljum rann­saka ítar­lega hvað fór þarna úrskeiðis til þess að reyna að gera allt sem við getum til að bæta úr og til að koma í veg fyrir að svona lagað geti gerst,“ sagði hann meðal ann­ars. 

Nákvæm tölfræði um sjálfsvíg á sjúkrahúsum ekki til

Fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu var í tveimur liðum. Annars vegar var spurt hversu margir sjúk­lingar hafi framið sjálfs­víg eða lát­ist af öðrum ástæðum á geð­deildum Land­spít­al­ans, geð­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri og Vogi og öðrum með­ferð­ar­stofn­unu. Hins vegar spurði hún hversu margir sjúk­lingar hafi slasast alvar­lega við sjálfs­vígstil­raunir á sömu stofn­unum. 

Í svari ráð­herra segir meðal ann­ars að ekki liggi fyrir nákvæm töl­fræði um sjálfs­víg á sjúkra­húsum á Íslandi. „Þessa töl­fræði er ekki hægt að fá úr dán­ar­meina­skrá hjá emb­ætti land­læknis. Það orsakast af því að óljóst getur verið hvað skuli telj­ast sjálfs­víg á stofnun. Andlátið getur talist hafa átt sér stað á stofnun þótt verkn­að­ur­inn hafi átt sér stað ann­ars staðar og við­kom­andi verið fluttur á stofnun þar sem hann síðan and­að­ist. Ef sjálfs­víg verður á stofnun ber við­kom­andi stofnun að skrá það hjá sér sem alvar­legt atvik og til­kynna það til emb­ættis land­læknis. Að mati emb­ættis land­læknis eru til­kynn­ingar frá stofn­unum um alvar­leg atvik komnar í nokkuð gott lag,“ segir í svari ráð­herra. 

Þá segir að gerður hafi verið samn­ingur um að taka upp nýtt atvika­skrán­inga­kerfi á land­inu öllu, Datix, sem sé breskt og sé notað í mörgum löndum. Embætti land­læknis hefur leitt inn­leið­ingu þess hér á landi og er stefnt að því að það verði komið í notkun á öllum heil­brigð­is­stofn­unum á næsta ári. Þetta kerfi felur ekki aðeins í sér skrán­ingu atvika heldur verður þar til mið­lægur grunnur um atvik sem hægt verður að vinna töl­fræði úr. 

Eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar hafi hins vegar feng­ist beint frá Land­spít­ala, Sjúkra­hús­inu á Akureyri, Sjúkra­hús­inu Vogi og Með­ferð­ar­stofnun Sam­hjálpar – Hlað­gerð­ar­koti: 

Geð­deildir Land­spít­ala: Frá því að raf­ræn atvika­skrán­ing var tekin upp árið 2004 hafa 16 sjálfs­víg og 45 alvar­legar til­raunir til sjálfs­vígs sjúk­lings í með­ferð­ar­sam­bandi við Land­spít­ala verið skráð. Hér er átt við sjúk­linga af öllum deildum spít­al­ans. Frá 1. jan­úar 2007 hafa orðið átta and­lát inniliggj­andi sjúk­linga á geð­deildum Land­spít­ala og voru fjögur þeirra á deildum spít­al­ans en fjórir sjúk­lingar voru í dags­leyfi. Alvar­legar til­raunir til sjálfs­vígs á tíma­bil­inu eru 34 en ekki var unnt að afla upp­lýs­inga um mögu­leg meiðsl sjúk­ling­anna. Þess má þó geta að þar sem um inniliggj­andi sjúk­linga var að ræða hefur þeim að öllu jöfnu borist aðstoð hratt og örugg­lega. 

Geð­deildir Sjúkra­húss­ins á Akureyri: Frá því að geð­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri var stofnuð árið 1986 hafa fjórir sjúk­lingar svipt sig lífi inn­rit­aðir á geð­deild sjúkra­húss­ins, einn sem var inniliggj­andi á deild árið 2012 og þrír sem voru í leyfi frá sjúkra­hús­inu á árunum 1986, 2003 og 2010. Enginn hefur slasast alvar­lega eftir sjálfs­vígstil­raun á geð­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri. 

Sjúkra­húsið Vogur: Á Sjúkra­hús­inu Vogi hafa tveir ein­stak­lingar fyr­ir­farið sér á þeim 40 árum sem sjúkra­húsið hefur verið starf­rækt. Það var árin 2014 og 2015. Einn ein­stak­lingur lést af öðrum ástæðum. Enginn hefur slasast alvar­lega við sjálfs­vígstil­raun. 

Með­ferð­ar­heim­ilið Hlað­gerð­ar­kot: Engir skjól­stæð­ingar hafa framið sjálfs­víg í með­ferð á Hlað­gerð­ar­koti eða slasast við sjálfs­vígstil­raun þar. Seint á árinu 2016 lést einn skjól­stæð­ingur af öðrum orsökum á Hlað­gerð­ar­koti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár