Raddir Evrópubúa: Tilfinning um tengsl varð sterkari

Íbúar í Evr­ópu­sam­bands­ríkjum deila reynslu sinni af áhrifum aðildar á líf þeirra og sam­fé­lag.

Raddir Evrópubúa: Tilfinning um tengsl varð sterkari

Innan Evr­ópu­sam­bands­ins býr um 5,5 pró­sent mann­fjölda heims­ins, alls um 450 milljón manns frá 27 ríkjum, sem þekja um 4 milljón fer­kíló­metra svæði. Hvert þess­ara ríkja hefur sín sér­kenni og menn­ing­ar­leg fjöl­breytni er mikil, en alls eru 24 opin­ber tungu­mál í Evr­ópu­sam­band­inu. Að sama skapi glíma þessar þjóðir við ólíkar áskor­anir og eru mis­vel í stakk búnar til þess að mæta þeim. 

Hér er leitað eftir sjón­ar­miðum íbúa Evr­ópu­sam­bands­ríkja. Fólkið sem hér svarar var valið af handa­hófi og svar­aði stöðl­uðum spurn­ingum um áhrif aðildar á líf þeirra og sam­fé­lag. Svörin veita aðeins sýn­is­horn af við­horfum íbúa Evr­ópu­sam­bands­ins, en veita engu að síður ein­hverja inn­sýn í upp­lifun fólks af stöðu sinni innan sam­bands­ins. 

Sáttir við lífsgæðin

Nú í vor voru birtar nið­ur­stöður Eurobarometer-könn­unar um hvernig borg­arar meta lífs­gæði sín innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Nið­ur­stöð­urnar voru nokkuð afger­andi, en 83 pró­sent þátt­tak­enda sögð­ust vera ánægð með lífs­gæðin en 17 pró­sent ekki. …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár