Biskup Íslands meðal ræðumanna í Druslugöngunni

Druslu­gangan verður á laug­ar­dag­inn og gengið verður af stað frá Hall­gríms­kirkju klukkan 14. Skipu­leggj­andi segir nýaf­staðnar borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sýna að ger­endur kyn­ferð­is­of­beldis fái enn valda­miklar og sýni­legar stöður í þjóð­fé­lag­inu.

Biskup Íslands meðal ræðumanna í Druslugöngunni
Druslu­gangan 2025 Fyrsta gangan á Íslandi var gengin árið 2011. Mynd: Víkingur

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir og Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgu­dóttir, verða ræðu­menn við upp­haf Druslu­göng­unnar sem fram fer á laug­ar­dag­inn. Safnast verður saman kl. 13 við Hall­gríms­kirkju þar sem fram fer varn­ings­sala, tón­list og skilta­gerð, að sögn Silju Höllu Egils­dóttur, ein skipu­leggj­enda göng­unnar í ár, en svo verður lagt af stað kl. 14 og endað á Aust­ur­velli.

„Eins og oft áður viljum við lyfta and­anum upp eftir ræðu­höld, enda geta þau oft verið þung á sál­ina og til­finn­inga­mikil, þannig á svið munu stíga tón­list­ar­dúettið Mammaðín, sem eru Elín Hall og Katla Njáls­dóttir, Alaska1867 og Álf­grímur, en hann mun meðal ann­ars fara með nýtt lag Druslu­göng­unnar „DRUSLUR“,“ segir Silja.

Að göng­unni lok­inni verður Ólafar­vaka haldin á Skúla Craftbar til heiður Ólafar Töru Harð­ar­dóttur sem lést í fyrra. „Þetta er í annað sinn sem við höldum vök­una og það verður von­andi mjög fal­leg og skemmti­leg leið til að enda dag­inn, en …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnus Magnusson skrifaði
    Dapurlegt að fulltrúi örgustu hindurvitna og kvenfyrirlitningar komi þarna nærri, ofurlaunuð á vegum ríkisvalds, sem ber að vernda börn og sakleysingja, en ekki ýta þeim í fang slíkra aðila.Já, stutt er síðan yfir 90% voru hér í trúfélagi ríkisvalds, sem síðan 1905 væri ólöglegt í Frakklandi og miklu lengur í Bandaríkjunum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár