Breyta lögum svo Landsréttur megi vera í Kópavogi

Stað­setn­ing Lands­réttar verður ólög­leg frá byrjun næsta árs nema lögum verði breytt.

Landsréttur
Lands­réttur Samkvæmt lögum skal Lands­réttur vera til húsa í Reykja­vík. Mynd: Davíð Þór

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur kynnt áform um breyt­ingar á lögum um dóm­stóla í Sam­ráðs­gátt. Eina atriðið sem til stendur að breyta snýr að stað­setn­ingu Lands­réttar, sem er til húsa í Kópavogi.

Milli­dóm­stigið Lands­réttur varð til með lögum sem tóku gildi 1. jan­úar 2018. Samkvæmt þeim skal Lands­réttur stað­settur í Reykja­vík.

„Þegar dóm­stóll­inn tók til starfa var ekki til staðar hús­næði í Reykja­vík sem hent­aði fyrir starf­semi hans,“ segir í skjali dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Hins vegar var til í eigu rík­is­ins hús­næði að Vest­ur­vör 2 í Kópavogi sem hent­aði dóm­stólnum og hefur dóm­stóll­inn verið stað­settur þar frá upp­hafi. Þar sem kveðið er á um í lögum að dóm­stóll­inn skuli hafa aðsetur í Reykja­vík var honum heim­ilað með ákvæði til bráða­birgða að hafa aðsetur utan Reykja­víkur.“

Ákvæðið hefur verið tíma­bundið í fimm ár í senn og fellur úr gildi 1. jan­úar 2027. „Nokkur reynsla er komin á starf­semi Lands­réttar í þessu hús­næði,“ segir …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Stofnanir Ríkisins eiga ekki að vera í leiguhúsnæði nema ef þær eru eru bráðabirgðastofnanir til stutts tíma. Stofnanir eins og dómstólar, skattstofur og lögregla eiga ekki að vera í leiguhúsnæði. Bæði það er margfalt dýrara og óþjálla til breytinga og ríkisfyrirtæki eiga ekki að vera einhver matarhola fyrir einkageirann. Ríkisfyrirtæki á að reka á hagkvæmasta hátt og vera með bestu þjónustuna á kostnaðarverði. Sem dæmi: Við rekum sýslumannsembætti og borgum öll laun og kostnað en af hverju rukka þeir svo fyrir öll skírteini, ljósrit og viðvik?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár