Hart sótt að Starmer: Skipaði sendiherra sem hafði fallið á öryggisprófi

Peter Mand­el­son féll á öryggis­prófi þegar verið var að meta hæfi hans til þess að gegna sendi­herra­stöðu í Washington,. Þrátt fyrir það fékk hann stöð­una. Eftir að þetta var afhjúpað í The Guardian sætir Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, vax­andi þrýst­ingi um að segja af sér.

Hart sótt að Starmer: Skipaði sendiherra sem hafði fallið á öryggisprófi

Sótt hefur verið að Starmer mán­uðum saman vegna máls­ins sem vakið hefur reiði, eftir að Mand­el­sons var árið 2024 til­nefndur í sendi­herra­stöð­una, þrátt fyrir náin tengsl hans við kyn­ferð­is­brota­mann­inn, Jeffrey Epstein.

Mand­el­son hefur lengi verið inn­múr­aður í Verka­manna­flokknum, stjórn­ar­flokki Starmers. Á sínum ferli hefur hann gegnt mörgum ráð­herra­emb­ættum, en verið hund­eltur af hneyksl­is­málum. Í tvígang hefur hann þurft að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. Þrátt fyrir það tók hann við sendi­herra­stöð­unni í fyrra. 

Kröfur stjórn­ar­and­stöð­unnar um að for­sæt­is­ráð­herr­ann segði af sér voru skýrar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag þegar rík­is­stjórnin stað­festi afhjúpun Guardian um að sendi­herr­ann hefði verið skip­aður þrátt fyrir að hafa fallið á örygg­is­at­hugun.

Kenna embættismönnum um

Rík­is­stjórnin kennir emb­ætt­is­mönnum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um og segir að hvorki Starmer né utan­rík­is­ráð­herr­ann hafi verið upp­lýstir um mis­heppn­aða örygg­is­at­hugun Mand­el­sons fyrr en í vik­unni.

Æðsti emb­ætt­is­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Olly Robbins, hefur sagt af sér eftir á þeim for­sendum að Starmer treysti honum ekki lengur, því hann til­kynnti for­sæt­is­ráð­herra ekki um þá ákvörðun ráðu­neyt­is­ins að leyfa skipun Mand­el­sons að halda áfram „gegn til­mælum bresku örygg­is­at­hug­un­ar­innar“.

Sendi­herra­emb­ættið í Washington er talið virtasta og mik­il­væg­asta sendi­herra­emb­ætti Bret­lands..

Forsætisráðherra sagður öskureiður

Fyrr á árinu sögðu tveir af helstu póli­tísku aðstoð­ar­mönnum Starmers af sér vegna hneyksl­is­máls­ins, mitt í póli­tískum stormi.

Starmer hefur ítrekað þurft að svara fyrir dóm­greind sína vegna skip­unar Mand­el­son, sem hann rak síðan í sept­em­ber aðeins nokkrum mán­uðum eftir að ráð­herr­ann fyrr­ver­andi tók við sendi­herra­emb­ætt­inu. Kemi Badenoch, leið­togi hægri­s­inn­aða Íhalds­flokks­ins í stjórn­ar­and­stöðu, skrif­aði á X: „Starmer hefur svikið þjóðar­ör­yggi okkar. Hann ætti að fara.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur sakað Mand­el­son um að ljúga um umfang tengsla sinna við Epstein í örygg­is­at­hug­un­ar­ferl­inu. Ráð­herr­ann Darren Jones kom for­sæt­is­ráð­herr­anum til varnar og sagði að það væri „óásætt­an­legt“ að utan­rík­is­ráðu­neytið hefði hunsað örygg­is­at­hug­un­ar­ferlið. Neitaði hann því að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði villt um fyrir þing­inu og kall­aði hið mis­tæka ferli „brest rík­is­ins“. „Þú getur ímyndað þér að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi verið ösku­reiður, eins og búast mátti við, yfir því að honum hafi aðeins verið til­kynnt um þetta á þriðju­dags­kvöld,“ sagði Jones við Sky News.

Hann þvertók einnig fyrir að staða Starmers væri í hættu. „Almenn­ingur getur séð í Keir Starmer að hann er sterkur, trú­verð­ugur leið­togi sem hefur áhrif á heims­vísu,“ full­yrti hann.

Lögreglurannsókn hafin 

Starmer rak Mand­el­son sem sendi­herra eftir að ný skjöl voru birt sem inni­héldu nýjar upp­lýs­ingar um tengsl hans við Epstein. Lög­reglan hefur hafið rann­sókn á ásök­unum um emb­ætt­is­brot af hálfu Mand­el­sons, sem var hand­tek­inn og lát­inn laus gegn trygg­ingu í febr­úar. Hann hefur ekki verið ákærður og neitar refsi­verðri hátt­semi.

Lög­reglan rann­sakar Mand­el­son vegna ásak­ana um að hann hafi lekið við­kvæmum skjölum til Epsteins þegar hann var ráð­herra í rík­is­stjórn, meðal ann­ars í fjár­mála­hrun­inu 2008.

Í áreið­an­leika­könnun sem lögð var fyrir Starmer í des­em­ber 2024 var bent á röð skýrslna sem lýstu tengslum Mand­el­sons við Epstein, sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot í Flórída árið 2008, þar á meðal fyrir að hafa tælt ólög­ráða ein­stak­ling.

Þar kom fram að sam­band þeirra hófst þegar Mand­el­son var ráð­herra í rík­is­stjórn og hélt áfram eftir lok síð­ustu rík­is­stjórnar Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi árið 2010. Þar var einnig tekið fram að Mand­el­son „dvaldi að sögn í húsi Epsteins á meðan hann var í fang­elsi í júní 2009“.

Þingmenn skip­uðu rík­is­stjórn Verka­manna­flokks­ins fyrr á þessu ári að birta tug­þús­undir tölvu­pósta, skila­boða og skjala sem lýsa því hvernig Mand­el­son var met­inn fyrir emb­ættið. Búist er við að seinni hluti skjal­anna verði gef­inn út á næstu vikum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár