Lífeyrissjóðskerfið fær aukið frelsi og sjávarútvegur nýtur góðs af

Mynt­banda­lag mun að lík­indum auka sam­keppni, efla efna­hags­um­hverfi Íslend­inga auk þess sem mynt­banda­lag myndi færa líf­eyr­is­sjóðum aukið frelsi til fjár­fest­inga. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn nyti einnig góðs af því.

Lífeyrissjóðskerfið fær aukið frelsi og sjávarútvegur nýtur góðs af
Gylfi Magn­ús­son Hag­fræð­ing­ur­inn og fyrrum fjár­mála­ráð­herra telur mynt­banda­lagið geta fært íslensku þjóð­inni mikil tæki­færi. En það eru einnig hættur fyrir hendi. Mynd: Golli

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn myndi njóta góðs af upp­töku evr­unnar að mati hag­fræð­ings og líf­eyr­is­sjóðir myndu fá mikið frelsi til þess að fjár­festa ann­ars staðar en á Íslandi, þar sem hluta­bréfa­eign þeirra er um helm­ingur allra hluta­bréfa á Íslandi. Neyt­endur myndu njóta góðs af mynt­sam­starf­inu og sam­keppni hér á landi myndi óhjá­kvæmi­lega aukast út af mynt­banda­lag­inu. Vextir myndu fær­ast nær þeim sem eru í Evrópu og á því hagn­ast þjóðin öll. Það er þó ekk­ert ein­falt við upp­töku evr­unnar, það getur tekið tíma og svartasta sviðs­myndin gæti birst í djúpri krísu, sem yrði þá á ábyrgð lélegrar hag­stjórnar.

„Stutta svarið er að ef við göngum inn í ESB mun okkur án efa takast að taka upp evr­una á ein­hverjum tíma­punkti. En það er ekki auð­velt ferli,“ útskýrir Gylfi Magn­ús­son, hag­fræð­ingur og pró­fessor við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra í tíð rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, …

Kjósa
75
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár