Trump sker niður verkefni Climeworks í Bandaríkjunum

Verkefni Climeworks sem átti að fá hálfan millj­arð dala í fjár­magn frá banda­rískum yfir­völdum, hefur verið slegið af sam­kvæmt fregnum þar í landi.

Trump sker niður verkefni Climeworks í Bandaríkjunum
Climeworks er með föng­un­ar­vélar á Íslandi, en verk­efni þeirra í Banda­ríkj­unum virð­ist hafa verið slegið af sam­kvæmt nýj­ustu fréttum. Mynd: Golli

Banda­ríska orku­mála­ráðu­neytið hefur til­kynnt að það muni skera niður um 24 millj­arða banda­ríkja­doll­ara í lofts­lags­iðn­aði þar í landi. Ákvörð­unin bitnar illa á Climeworks sem er með föng­un­ar­ver á Hell­is­heiði. Fyr­ir­tækið hugð­ist reisa eitt stærsta kolefn­is­föng­un­ar­ver heims í Louisiana fylki.

Banda­ríska blaðið Wall Street Journal greindi frá því 7. októ­ber síð­ast­lið­inn að ákvörðun hafði verið tekin um að skera niður fjár­styrki til um 600 verk­efna tengdum lofts­lags­iðn­aði. Þar á meðal föng­un­ar­vers í heimabæ repúblikans Mike Johnson, sem er jafn­framt for­seti banda­ríska þings­ins. Fyr­ir­tækið Heirloom, sem hugð­ist reisa föng­un­ar­ver í heimabæ þing­for­set­ans, Shreveport, sagði nið­ur­skurð­inn koma niður á tvö þús­und störfum í Louisiana fylki.

Fjár­frek­ustu verk­efnin snúa að fram­leiðslu á vetni en eitt fyr­ir­tækið, sem er stað­sett í Kali­forníu, átti að fá rúman millj­arð doll­ara í rík­is­styrki. Þrjú fyr­ir­tæki sem hugð­ust fram­leiða vetni verða af sam­tals 3 millj­örðum banda­ríkja­doll­ara vegna nið­ur­skurð­ar­ins.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    DT virðist öllu ráða eins og versti uppvakningur á vegum bandarískra hergagnaframleiðenda. Alls staðar á að spara og skera niður hvort sem er til háskólasamfélagsins, umhverfismála eða til rekstrar Sameinuðu þjóðanna. DT hefur ákveðið að hætta þátttöku BNA í rekstri UNESCO og WHO á vegum Sameinuðu þjóðanna. Spurning er hvort aðrir þjóðaleiðtogar taki það sem fordæmi og hætti einnig þátttöku. Mikil hætta er því á að fjari undan mikilvægri samvinnu allra þjóða heims varðandi heilbrigðismál og menningu.
    Einræðisherrum hefur alltaf verið meinilla við menntun. Þeir vilja heimskingja til að taka sér vopn í hönd og efla þar með hergagnaiðnaðinn sem mest. Enda er þessum stjórnmálamönnum stjórnað af þessum skuggalegu aðilum sem virðast nafnlausir.
    Mjög mikilvægt er að fjölmiðlar fletti ofan af stjórnendum hergagnaiðnaðarins, opinberi tengsl þeirra við stjórnmálamenn og þjóðarleiðtoga. Í augum hergagnaframeliðenda er friðsamleg samskipti þjóða ógn við útþenslustefnu og gróðavonina. Þetta eru skuggaleg öfl sem þarf að varpa ljósi á og upplýsa alþjóð um gáskalega framkomu gagnvart friðsamlegum lausnum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár