Fyrsti páfinn frá Bandaríkjunum

Kar­dinálar hjá kaþ­ólsku kirkj­unni hafa komið sér saman um nýjan páfa. Hinn banda­ríski Robert Prevost varð fyrir val­inu og er fyrsti páf­inn frá Banda­ríkj­unum.

Fyrsti páfinn frá Bandaríkjunum
Hvítur reykur steig upp til him­ins síð­degis í dag. Mynd: Tiziana FABI / AFP

Hvítur reykur steig upp úr Sixtínsku kapell­unni um fimm­leytið í dag á Ítalíu. Það þýðir að nýr páfi hefur verið kjör­inn af þeim 133 kard­ínálum kaþ­ólsku kirkj­unnar sem hafa atkvæð­is­rétt í kosn­ing­unum.

Ekki hefur enn verið upp­lýst hver hinn nýi páfi er, en til­kynnt var um kjör Frans páfa um 45 mín­útum eftir að reyk­ur­inn birt­ist.

Þeir sem taldir voru lík­leg­astir til að ná kjöri voru Pietro Parolin frá Ítalíu, Luis Antonio Tagle frá Fil­ipps­eyjum, Péter Erdő frá Ung­verja­landi, Robert Sarah frá Gíneu og banda­ríski kard­ínál­inn Robert Prevost. 

Eins og fyrr segir, á enn eftir að til­kynna um það hver var kjör­inn nýr páfi.

Uppfært: Tilkynnt hefur verið um nýjan páfa. Banda­ríkja­maður varð fyrir val­inu og hefur hann tekið upp nafnið Leó páfi XIV. Maðurinn heitir Robert Prevost og er frá Chicago-borg. Hann er 69 ára gam­all og jafn­framt fyrsti páf­inn frá Banda­ríkj­unum.

Fyr­ir­sögn hefur verið breytt til sam­ræmis við nýj­ustu fregnir.

Leó fjórt­ándi
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu