Sólveig Anna hætt í Sósíalistaflokknum

Verka­lýðs­leið­tog­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir hefur sagt sig úr Sós­í­alista­flokki Íslands. Það gerir hún vegna gagn­rýni Maríu Pét­urs­dóttur, fyrr­ver­andi for­manns mál­efna­stjórnar flokks­ins.

Sólveig Anna hætt í Sósíalistaflokknum
Farin Sólveig Anna hefur átt sæti á fram­boðs­listum Sós­í­alista­flokks­ins. Nú er hún hætti og farin úr flokknum. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags, hefur sagt sig úr Sós­í­alista­flokki Íslands. Hún til­kynnti það í færslu í umræðu­hópi flokks­ins á Facebook – Rauða þræð­inum – þar sem hún segir ástæð­una sví­virð­ingar einnar af for­ystu­konum flokks­ins í sinn garð.

Gagn­rýninMaría hefur verið gagn­rýnin á orð­ræðu Sól­veigar Önnu um „woke“ og sagt hana tala „beint inn í öfga hægrið“.

Með færsl­unni birtir hún mynd af athuga­semd Maríu Pét­urs­dóttur, sem nýverið lét af störfum sem for­maður mál­efna­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, við pistil sem Sólveig skrif­aði inn á Rauða þráð­inn í vik­unni um hat­urs­orð­ræðu woke-ista. Í athuga­semd­inni sagði María að Sólveig Anna tal­aði „beint inn í öfga hægrið og fas­is­mann“. 

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, furðar sig í athuga­semdum við til­kynn­ing­una á skil­grein­ingu Sól­veigar Önnu á for­ystu­sveit. „Það eru 126 manns á listum flokks­ins fyrir kosn­ingar, meðal ann­ars þú,“ skrifar hann.

„Gunnar Smári Egilsson …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Kristjánsson skrifaði
    Synd að Sólveig Anna hafi sagt sig úr flokknum, hugmyndir hennar og drifkraftur hefðu einmitt orðið flokknum til framdrráttar.
    Ég er innilega sammála Sólveigu Önnu um að woke og femínismi hefur ekkert með, báráttuna um bætt kjör og félagslega stöðu þeirra, sem minna mega sín, að gera. Árangur slíkrar baráttu byggist á öflugri verkalýðsbaráttu og pólitískri baráttu fyrir betri félagslegri stöðu, eins og t.d. barnabótum, húsnæðisbótum, fleiri leikskólum, fleiri hjúkrunarheimilum, hlutfallslegri lægri sköttum o.s. frv. Í þessari baráttu skiptir engu hvort fólkið, sem barist er fyrir, sé svart, rautt, gult eða bleikt, eða hvort um konur eða karla sé að ræða.
    Ef sósíalistaflokkurinn er að hrynja vegna fólksflótta verður að stofna nýjan flokk á rústum hins gamla, sem gjarnan mætti heita Félagshyggjuflokkurinn. Vonandi temur það fólk, sem styrir slíkum flokki, búið læra betri mannasiði.
    4
    • Bjarni Þorsteinsson skrifaði
      Það er ömurlegt ef þau 12% kjósenda sem kusu vinstri flokkana í síðustu kosningum og komu engum manni/konu á þing klofni meira og meira í stað þess að reyna að sameinast um brýn félagsleg málefni sem er æpandi þörf á að verði sinnt. Reynið að hefja ykkur yfir innbyrðis deilur, talið við vg og pírata og vinnið að því að móta sterkt afl sem ekki verður hægt að horfa framhjá.
      2
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Gunnar var með puttana í framboðs málunum 20 21 hef það eftir mun áreiðanlegri heimildum en hann er svo sagði hann Sönnu sendlinum sínum að setja sig í oddvita í sætið RN.
    -3
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    Það er ekkert minnst á orðbragðið hjá Maríu Pétursdóttir. Finnst ykkur þetta ī lagi?? Að upphefja sig svona á annara kostnað, talandi um að Sólveig sem með fasisma.hvað kallast svona árásir, að gefa í skyn að Sólveig og hennar fólk sé rétt svo læst og ŏmenntað, að gera lítið ůr hennar persónu, má hùn ekki hafa sínar skoðanir? og fleira ógeðfellt sem ég ætla ekki einu sinni að láta frá mér. Hvers konar pólitík er þetta,? ég verð að viðurkenna að ég bara fékk smá sjokk, og ég veit ekki lengur hvort ég vilji vera áskrifandi lengur. Og ég varð fyrir miklum vonbrigðum, svona ofbeldi ætti ekki að líðast hjá ykkar flokk, sem ég er hér með hætt við að ganga í.
    8
    • Birna Gunnarsdottir skrifaði
      Já, þetta verður mjög tómleg frásögn án tilvitnana í Maríu. "Þú ert svo vandræðalega stolt yfir því að kunna að lesa þrátt fyrir að vera óskólamenntuð“ er t.d. úrvalsdæmi um eitraða minnimáttarkennd. Og viðeigandi að á degi bókarinnar sé menntakona að amast við því að önnur kona vitni í bækur, það er svo agalegt þegar þau sem gengu í óskólana halda að þau geti bara vaðið í bækur og aflað sér þekkingar eftirlitslaust.
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár