Stal riffli og setti á hann hljóðdeyfi

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hand­tók nýverið karl­mann sem hafði stolið riffli úr verslun. Þegar lög­reglan fékk vopnið í hendur var búið að setja á það hljóð­deyfi.

Nýverið var riffli stolið úr verslun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og beindust böndin fljótt að ákveðnum manni. Sá var hand­tek­inn nokkru síðar, ját­aði sök og vís­aði á vopnið, sem reynd­ist óhlaðið. Á það var þá hins vegar kom­inn hljóð­deyfir, sem annar maður hafði keypt í milli­tíð­inni og látið setja á vopnið. Sá maður var líka hand­tek­inn og í fram­hald­inu var farið í hús­leit í híbýlum hans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar var að finna fleiri skot­vopn og skot­færi og var það sömu­leiðis hald­lagt, en vörslu þeirra var ábóta­vant og ekki í sam­ræmi við ákvæði vopna­laga. Við­kom­andi var með skot­vopna­leyfi en það var sam­stundis aft­ur­kallað. Hinum stolna riffli var hins vegar komið aftur í réttar hendur.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár