Tekið átta ár að ráðast í endurbætur á tröppum: Málið komið til verkefnastjóra

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur reynt að fá borg­ina til þess að sam­þykkja við­hald á tröppum við Selja­skóla með hléum síðan 2017. Þegar til­lagan var lögð fram aftur árið 2023, tók fimmtán mán­uði að fá umsögn um málið.

Tekið átta ár að ráðast í endurbætur á tröppum: Málið komið til verkefnastjóra
Það hefur reynst erfitt að gera við tröppur nærri Selja­skóla vegna seina­gangs borg­ar­innar. Mynd: Davíð Þór

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa reynt að fá Reykja­vík­ur­borg til þess að ráð­ast í við­gerðir og end­ur­bætur á tröppum við Selja­skóla með hléum síðan árið 2017. Borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins er nú nóg boðið eftir að fyr­ir­spurn hans var svarað fimmtán mán­uðum eftir að hún barst. Borg­ar­full­trúar lögðu málið fram á ný í umhverfis- og skiplags­nefnd Reykja­vík­ur­borgar árið 2023 og fengu umsögn um til­lög­una fimmtán mán­uðum eftir að hún var lögð fram. Í bókun Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir:  

„Fyr­ir­liggj­andi til­laga Sjálf­stæð­is­flokks­ins um málið var lögð fram 11. októ­ber 2023. Rúma fimmtán mán­uði hefur því tekið að fá umsögn um til­lög­una! Í umsögn­inni kemur þó hvorki fram skýr afstaða til þess hvort þörf sé á því að gera við tröpp­urnar né hvenær unnt verði að ráð­ast í verkið.“

Borg­ar­full­trú­inn, Kjartan Magn­ús­son, áréttar að umrædd fram­kvæmd sé að auki hvorki tíma­frek né dýr, heldur sjálf­sagt við­halds­mál. Umsögn um málið barst loks­ins nefnd­inni nú í jan­úar, eftir …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár