Samþykkt að halda landsfund í næsta mánuði

Mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ákveðið að halda sig við upp­runa­lega dag­setn­ingu lands­fundar, 28. febr­úar - 2. mars. Enn er óljóst hverjir muni sækj­ast eftir því að verða næsti for­maður flokks­ins. Á vegum flokks­ins starfa mál­efna­nefndir sem skila álits­gerðum og til­lögum til lands­fundar auk drög að álykt­unum fyrir fund­inn

Samþykkt að halda landsfund í næsta mánuði
Formaður Bjarni Bene­dikts­son hlaut end­ur­kjör sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta lands­fundi, árið 2022. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins verður hald­inn dag­ana 28. febr­úar - 2. mars í Laug­ar­dals­höll. Þetta ákvað mið­stjórn flokks­ins á fundi sínum fyrr í dag, en síð­ustu vikur hefur verið tek­ist á það um hvort fresta ætti fund­inum vegna árs­tíma og veð­urs. 

Lands­fundur er stærsta stjórn­mála­sam­koma á Íslandi og hann fer með æðsta vald í mál­efnum flokks­ins. Þar verður meðal ann­ars kos­inn nýr for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en Bjarni Bene­dikts­son kynnti fyrr í mán­uð­inum að hann hygð­ist ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri. 

Enginn hefur enn tillkynnt um fram­boð sitt til for­manns en Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hafa helst verið nefnd sem hugs­an­legir arf­takar Bjarna.

Á vegum flokks­ins starfa mál­efna­nefndir sem skila álits­gerðum og til­lögum til lands­fundar auk drög að álykt­unum fyrir fund­inn. Nýjar mál­efna­nefndir verða kosnar á fund­inum í næsta mán­uði.

Fólk víða að í málefnanefndum

Athygl­is­vert er að skoða hverjir hafa verið að sinna mál­efna­starf­inu í hinum ýmsu nefndum. Til dæmis er Jens Garðar Helgason, nýkjör­inn þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), for­maður atvinnu­vega­nefndar flokks­ins. En fram­kvæmda­stjóri SFS, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er meðal nefnd­ar­manna í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Þá er Andrea Sig­urð­ar­dóttir, annar frétta­stjóri á við­skipta­rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins, for­maður í utan­rík­is­mála­nefnd. Í þeirri nefnd sitja einnig starf­andi og fyrr­ver­andi þing­menn flokks­ins svo sem Diljá Mist Ein­ars­dóttir, Jón Gunn­ars­son og Birgir Þór­ar­ins­son. 

Meðal nefnd­ar­manna umhverfis- og sam­göngu­nefndar er Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son, sem var fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide á Íslandi. 

Í vel­ferð­ar­nefnd er Hann­es Þórð­ur Haf­stein Þor­valds­son, lands­liðs­maður í karókí, meðal nefnd­ar­manna ásamt Ásmundi Frið­riks­syni, Bryndísi Har­alds­dóttur og Óla Birni Kárasyni.

Aðeins færri sitja í upp­lýs­inga- og fræðslu­nefnd en hinum mál­efna­nefnd­unum en í henni eru meðal ann­ars Magnús Sig­ur­björns­son, for­stöðu­maður Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar, auk Védísar Hervarar Árna­dóttur, miðl­un­ar­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Hér að neðan má sjá hvernig mál­efna­nefndir Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru skip­aðar:

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd    

Formaður: Kristinn Hugason

Aðrir nefnd­ar­menn: Ing­veldur Anna Sig­urð­ar­dóttir, Birna Hafstein, Þorkell Sig­ur­laugs­son, Viktor Ingi Lorange, Sigríður Hall­gríms­dóttir, Margrét Sæmunds­dóttir, Hafdís Gunn­ars­dóttir, Jóhann Gunnar Krist­jáns­son, Hafrún Olgeirs­dóttir, Bryndís Har­alds­dóttir og Birgir Þór­ar­ins­son.

Atvinnu­vega­nefnd  

Formaður: Jens Garðar Helgason 

Nefnd­ar­menn:  Birta Karen Tryggva­dóttir, Kristín S. Þor­steins­dóttir Bachmann, Örvar Már Mart­eins­son, Svavar Svavars Hall­dórs­son, Bjarni Theódór Bjarna­son, Sigríður Ólafs­dóttir, Margrét Rún­ólfs­dóttir, Heiðar Hrafn Eiríks­son, Helga Jóhanna Odds­dóttir, Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son og Óli Björn Kárason.

Efnahags- og við­skipta­nefnd  

Formaður: Krist­ó­fer Már Mar­ons­son

Aðrir nefnd­ar­menn:  Óttar Guð­jóns­son, Einar Þór Stein­dórs­son, Þórður Ísberg Gunn­ars­son, Sigurður Ingi Sig­ur­páls­son, Rósa Krist­ins­dóttir, Hildur Björns­dóttir, Teitur Björn Ein­ars­son og Diljá Mist Ein­ars­dóttir.

Fjár­laga­nefnd

Formaður:  Sigríður Hall­gríms­dóttir 

Aðrir nefnd­ar­menn: Guð­mundur Árnason, Halldór Karl Högnason, Elín Eng­il­berts­dóttir, Harpa Hall­dórs­dóttir, Elías Pét­urs­son, Már Másson, Emilía Ottesen, Gísli Freyr Val­dórs­son, Ásdís Krist­jáns­dóttir, Njáll Trausti Frið­berts­son, Teitur Björn Ein­ars­son og Vil­hjálmur Árnason.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd

Formaður:  Ing­veldur Anna Sig­urð­ar­dóttir

Aðrir nefnd­ar­menn: Sólrún Ingunn Sverr­is­dóttir, Herdís Anna Þor­valds­dóttir, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, Sig­ur­björg Ásta Jóns­dóttir, Hilmar Vilberg Gylfason, Hilmar Gunn­laugs­son, Ásgeir Örn Blöndal Jóhanns­son, Regína Valdi­mars­dóttir, Berglind Ósk Guð­munds­dóttir og Hildur Sverr­is­dóttir.

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd  

Formaður:  Helga Guðrún Jón­as­dóttir 

Aðrir nefnd­ar­menn: Herdís Anna Þor­valds­dóttir, Margrét Björns­dóttir, Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son, Hilmar Ingi­mund­ar­son, Kristinn Frímann Árnason, Snorri Ingi­mars­son, Guð­bergur Reyn­is­son, Vil­hjálmur Árnason og Njáll Trausti Frið­berts­son.

Utan­rík­is­mála­nefnd

Formaður:  Andrea Sig­urð­ar­dóttir 

Aðrir nefnd­ar­menn: Sig­ur­geir Jónasson, Birna Hafstein, Bryndís Bjarna­dóttir, Unnur Lilja Her­manns­dóttir, Daníel Jak­obs­son, Orri Björns­son, Diljá Mist Ein­ars­dóttir, Birgir Þór­ar­ins­son og Jón Gunn­ars­son.

Vel­ferð­ar­nefnd

Kristín Trausta­dóttir, Hannes Þórður Hafstein Þor­valds­son, Sigrún Edda Jóns­dóttir, Elínóra Inga Sig­urð­ar­dóttir, Dýrunn Pála Skafta­dóttir, Grazyna María Okuniewska, Helga Reyn­is­dóttir, Hildur K. Svein­bjarn­ar­dóttir, Heimir Örn Árnason, Ásmundur Frið­riks­son Bryndís Har­alds­dóttir og Óli Björn Kárason.

Upp­lýs­inga- og fræðslu­nefnd 

Formaður: Elsa B. Vals­dóttir

Aðrir nefnd­ar­menn: Magnús Sig­ur­björns­son, Viggó Örn Jónsson, Davíð Ernir Kolbeins, Sandra Margrét Sig­ur­jóns­dóttir og Védís Hervör Árna­dóttir.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár