Dauði andlega veikrar konu vekur áleitnar spurningar

Grímur Atlason, framkvæmda­stjóri Geðhjálpar, segir sögu konu sem lést á geðdeild Land­spítalans draga fram vanda geðheil­brigðis­kerfisins sem hann segir alvarlega undir­fjármagnað. Hjúkrunar­fræðingur sætir ákæru fyrir að hafa orðið konunni að bana með valdi.

Grímur Atlason segir það hart að sjá réttarhöld yfir einni konu þegar það sé ljóst að kerfið hafi brugðist, án þess þó að draga fjöður yfir sakarefni konunnar.
Grímur Atlason segir það hart að sjá rétt­ar­höld yfir einni konu þegar það sé ljóst að kerfið hafi brugð­ist, án þess þó að draga fjöður yfir sak­ar­efni kon­unnar. Mynd: Golli

Framkvæmda­stjóri Geðhjálpar segir það tilfinningu samtak­anna að andlega veikir einstaklingar fái ekki viðunandi þjónustu á Land­spítalanum þegar þeir greinast með önnur veikindi en andleg.

„Það er eins og það sé ekki hlustað jafn vel þegar einstaklingar með geðrænan vanda kvartar undan líkamlegum einkennum, eins og er gert er þegar aðrir sjúklingar eigi í hlut,“ segir Grímur Atlason, framkvæmda­stjóri Geðhjálpar, og tekur sem dæmi að ýmsu sé flaggað þegar andlega veikir einstaklingar eru til meðferðar og mikil áhersla sé lögð á þær greiningar sem fyrir eru. Þannig virðast þær greiningar yfir­trompa þá kvilla sem hrjá fólkið þá stundina, sem eru oft alls ótengdir andlegum veikindum.

Tilefnið er mál konu sem lést í umsjón spítalans í ágúst árið 2021. Þegar málið er saman­dregið má sjá að upphafið að endalokum konunnar var á bráða­deild Land­spítalans, þar sem ekki reyndist pláss fyrir hana. Hún var með lungna­bólgu en fékk ekki sams konar …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár