Hluthafar Moggans lánuðu 150 milljónir inn í reksturinn

Eigendur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, lán­uðu rúm­lega 150 millj­ónir króna til félags­ins sem heldur utan um eign­ar­haldið á rekstr­inum. Tap félags­ins var 209 millj­ónir og skuld­irnir eru komnar yfir þrjá millj­arða.

Hluthafar Moggans lánuðu 150 milljónir inn í reksturinn
Stærsti ein­staki hlut­haf­inn Félag í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem Þórólfur Gíslason stýrir sem for­stjóri, er stærsti hlut­hafi Þórs­merkur sem á útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, Árvakur. Mynd: Rax / Ragnar Axelsson

Eigendur útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins lán­uðu rúm­lega 150 millj­ónir króna inn í rekstur fjöl­miðla­sam­steypunnar í fyrra. Tap var á rekstr­inum upp á 209 millj­ónir króna og eru skuld­irnar nú komnar upp í tæp­lega 3.150 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og fleiri miðla, en það heitir Þórsmörk ehf.  

For­svars­menn Morg­un­blaðs­ins greindu frá tapi fyr­ir­tæk­is­ins í byrjun mán­að­ar­ins en sögðu þá ekki frá umræddri lán­veit­ingu. Þrátt fyrir tap­rekst­ur­inn og áfram­hald­andi inn­spýt­ingu hlut­hafa á fjár­munum inn í rekst­ur­inn eru for­svars­menn Morg­un­blaðs­ins jákvæðir og sögðu meðal ann­ars í til­kynn­ingu: „Fjöl­miðlar Árvakurs hafa verið leið­andi í 110 ár og verða það áfram til langrar fram­tíðar.“

Ekki er til­greint í árs­reikn­ingnum hvaða hlut­hafi eða hlut­hafar það voru sem lán­uðu fé í inn í rekst­ur­inn. Lán­veit­ingin er skil­greind sem frá „hlut­höfum og aðilum …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helgi Þór Emilsson skrifaði
    Þetta er bara nákvæmlega eins og í þáttaröðinni
    Sannsögulegu "Svartur svanur" sem er verið að sýna á Rúv akkúrat núna. Ógeðslegt spilling og viðbjóður !!
    3
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    ☻g lánadrottnar sjá alls enga ástæðu til að innkalla þessar skuldir uppá 3.150 milljónir króna.
    Hví skildi það nú vera ?
    5
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er áróðursrit ræningjanna og þeir munu halda Mogganum á floti meðan þeir hafi efni á.
    9
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það skiptir ekki máli hverju Davíð Oddsson kemur nálægt, hvort það er ríkisjóður eða blaðsnepill það er allt keyrt í þrot.
    11
    • Gunnlaugur H. Jónsson skrifaði
      Ekki gleyma Seðlabankanum sem Davíð stýrði í hundruð milljarða tap.
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár