Sökktu kurli og seldu syndaaflausn

„Ýttu á takk­ann og bjarg­aðu heim­in­um,“ skrif­ar vís­inda­mað­ur af kald­hæðni er hann bend­ir um­hverf­is­ráðu­neyt­inu á var­úð­ar­orð ut­an úr heimi um að­ferð­ir sem fyr­ir­tæk­ið Runn­ing Tide fékk leyfi stjórn­valda til að prófa í þágu lofts­lags í Ís­lands­höf­um. Að­gerð­irn­ar umbreytt­ust í allt ann­að en lagt var upp með. Þær voru án alls eft­ir­lits og gerðu svo þeg­ar upp var stað­ið lít­ið ef nokk­urt gagn. „Ísland er fyrsta landið í heim­inum til að búa til kolefn­is­ein­ingar með kolefn­is­bind­ingu í hafi,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Okkur tókst það,“ segir skæl­bros­andi Marty Odlin, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide. „Og ég get ekki beðið eftir því að gera það aftur.“ Þessu lýsti hann sig­ur­reifur yfir síð­asta sumar, stuttu eftir að fyr­ir­tæk­inu sem hann stofn­aði í Maine í Banda­ríkj­unum hafði tek­ist nokkuð sem var algjör­lega ein­stakt, eig­in­lega ævin­týra­legt: Að binda var­an­lega yfir 25 þús­und tonn af koltví­oxíði í haf­inu. Og afhenda stór­fyr­ir­tækjum á borð við Microsoft og Shopify „fyrstu kolefn­is­ein­ingar sög­unnar við bind­ingu í hafi“. 

Aðferð­irnar sem Running Tide beitti við afrekið byggðu á háþró­aðri tækni, sem hönnuð er út frá bestu mögu­legu vís­indum, en voru þó ein­faldar í fram­kvæmd: Siglt var með 19 þús­und tonn af kalk­steins­húð­uðum kolefn­is­flot­hylkjum út á rúm­sjó og þeim komið fyrir í haf­inu. Þar flutu þau um hríð en sukku loks til botns, á yfir þús­und metra dýpi. Þangað sem töfr­arnir ger­ast. Bind­ingin. Með þessum hætti var kolefni komið úr hröðu hringrásinni í þá hægu. Haf­djúpin sjá svo um að geyma kolefnið í aldir. Jafnvel árþús­und.  

Eða þannig hafa tals­menn Running Tide lýst því sem gerð­ist úti fyrir Íslandi í fyrra­sumar – í umfangs­miklum en eft­ir­lits­lausum aðgerðum sem byggja á leyfi íslenskra stjórn­valda. Í leyf­inu er flot­hylkj­unum lýst sem timb­urmassa á stærð við körfu­bolta og að auk kalk­steins­efna yrðu þau böðuð þara­gró. Engin þara­gró kom hins vegar við sögu í aðgerðum síð­asta sum­ars. Og flot­hylkin, sem flutt voru í fimmtán leið­öngrum út að endi­mörkum íslenskrar land­helgi, voru mun minni en áformað var. Þau voru orðin að við­arkurli. 

HEIMILDIN

„Ísland er því fyrsta landið í heim­inum til að búa til kolefn­is­ein­ingar með kolefn­is­bind­ingu í hafi,“ til­kynnti Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son, fram­kvæmda­stjóri íslenska dótt­ur­fé­lags­ins, Running Tide Iceland, í kjöl­farið. „Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki,“ sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, er hún hafði veitt fyr­ir­tæk­inu leyfið. Og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, ráð­herra lofts­lags­mála, hreifst með: „Það sem menn kannski átta sig ekki á er að við Íslend­ingar erum núna komin með lausnir þegar kemur að kolefn­is­föngun. Bara hér á stað sem við öll þekkjum, Akranesi, þar er til dæmis stærsta var­an­lega kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi, Running Tide.“ 

Lausn komin. Stærsta kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi. Sem skil­aði í sinni fyrstu aðgerð bind­ingu  er jafn­ast á við losun 12 þús­und fólks­bíla. Og Running Tide seg­ist rétt að byrja. Eini tak­mark­andi þáttur starf­sem­innar sé eft­ir­spurnin. 

Á tímum þar sem lofts­lagsvá vofir yfir mann­kyni hljómar þetta of gott til að vera satt. 

Og er það reyndar.

„Aðferð­irnar sem Running Tide notar binda ekk­ert koltví­oxíð úr and­rúms­loft­inu. Núll,“ segir Jón Ólafsson, haf­fræð­ingur og pró­fessor emer­ítus. „Allt þetta bram­bolt er til einskis.“ 

Hann er í hópi margra vís­inda­manna er Heim­ildin hefur rætt við og rekið hafa upp stór augu eftir að hafa kynnt sér starf­semi Running Tide. Þeir segja t.d. full­yrð­ingu um hina miklu bind­ingu ekki stand­ast skoðun og að eng­inn óháður aðili hafi stað­fest að hún hafi átti sér stað. Þá undr­ast þeir mjög að Umhverf­is­stofnun hafi ekk­ert eft­ir­lit með starf­sem­inni. „Þetta fyr­ir­tæki er gott dæmi um vanda­málin sem tengj­ast kolefn­is­bind­ingu og hvers vegna ekki er hægt að treysta sprota­fyr­ir­tækjum,“ segir Jean-Pierre Gattuso, pró­fessor við Sorbonne-háskóla. „Starf­semi Running Tide er ógagnsæ en samt eru kolefn­is­ein­ingar seldar. Það er slá­andi hversu stjórn­laust þetta svið er.“ 

Kjósa
163
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Hugmyndin er glötuð frá upphafi. Að flytja 40.000 t frá Kanada yfir hafið kostar sitt af jarðeldsneyti.
    40.000 t af viðarkurli hins vegar gætu nýst sem eldsneyti víðar, ef því er sökkt notar iðnaðurinn jarðeldsneyti í staðinn, ég sé engan ávinning varðandi kolefnisbindingu þar þó bindingin virki.
    3
  • Olafur Arnarsson skrifaði
    Elkem á Grundartanga brennir kurl. (losar kolefni)
    Running Tide á Grundartanga bleytir kurl. ("bindur kolefni")
    Freistnivandi?
    -2
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Til að selja "carbon credit" verða menn að hafa vísindalega viðurkennda aðferðafræði við kolefnisbindinguna sem myndar inneignina. Runn­ing Tide virðist vera lukkuriddari á þessu sviði og sem ísl. stjórnvöld hafa tekið upp á sína arma. Ekki ólíklegt að stjórnvöld eigi eftir að fá orð í eyra frá EEA þ.e. "European Environment Agency" sem setur reglugerðir og leiðbeiningar um minnkun losunar.
    9
  • Pall Gunnarsson skrifaði
    Vá.

    Fyrir mér er þessi grein aumkunnarverð lágkúra smáhuga fólks. Ég segi það sem einstaklingur sem þekkir þessi málefni mun betur en höfundar.

    Ég er í alvörunni í sjokki.

    Að höfundar skuli reyna að túlka einlæga tilraun fólks sem er að setja líf og sálu í baráttuna við loftslagsvána, sem einhverskonar grunsamlega spillingu, .... ég á ekki til orð.

    Ég er sammála því að vísindin á bakvið aðferðafræði RT náði ekki að komast á þann stað að mér þætti eðlilegt að henni yrði beitt í stórum stíl. En þetta er ennþá ein af mögulegum lausnum til bindingar og algjörlega þess virði að skoða frekar. Við höfum ekki lengur þann lúxus að bíða eftir vísindum til að sanna aðferðafræðir áður en við hefjumst handa. Við erum of sein í öllum loftslagsaðgerðum. Það þarf að taka sénsa.

    „Þetta fyrirtæki er gott dæmi um vandamálin sem tengjast kolefnisbindingu og hvers vegna ekki er hægt að treysta sprota fyrirtækjum“ - Jean-Pierre Gattuso prófessor við Sorbonne-háskóla

    Að láta þetta útúr sér er hrein geðveiki. Sprota fyrirtæki eru nánast einu aðilarnir sem eru að koma með nýjar og þarfar lausnir við loftslagsvánni.

    Að birta þessa grein núna og nudda salti í sárin hjá fólki sem er raunverulega að starfa í þágu mannkynsins. Þið ættuð að skammast ykkar. Hvað hafið þið gert fyrir mannkynið? Ég get svarað því. Ekki fokking neitt.
    -33
  • Þorvaldur Logason skrifaði
    Stórkostleg fréttamennska. Takk. Lýsir stjórnun íslensks samfélags fullkomlega og minnir á fiskeldið. Við látum jólasveina utan úr heimi fífla okkur algjörlega í hvert sinn sem þeir koma með "stórgróðahugmynd".

    Og tuttugu þúsund tonn af timburkurli, kalki og sementi er sökkt í hafið! Verra en merkingarlaust fyrir kolefnisbindingu, losar með tímanum kolefni í hafið, kolefni sem var bundið (í tré). Meiriháttar mengun og sóun.
    Stjórnun eins og hjá vanþróuðustu ríkjum heims. Enn einn hryllingurinn.

    Ein ábending þó til Heimildarinnar: Ekki þýða bogus sem bull, hann meinti annað.

    Bogus = Óekta, svikinn, falskur, uppgerðar-, gervi-.
    29
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Running Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnisbindingu
ViðtalRunning Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefn­is­bind­ingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við nið­ur­stöðu Umhverf­is­stofn­unar, skap­aði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dós­ents við laga­deild HR, ákveð­inn laga­legan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyr­ir­tækið ætl­aði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þör­ungar en end­aði á því að fleyja 19 þús­und tonnum af kanadísku trják­urli í hafið og segj­ast með því hafa bundið 25 þús­und tonn af CO2.
Running Tide hafi hunsað og falið óhagstæð álit
FréttirRunning Tide

Running Tide hafi hunsað og falið óhag­stæð álit

Banda­rískur laga­pró­fessor sem sér­hæfir sig í lög­gjöf vegna kolefn­is­förg­unar, og sat í svoköll­uðu vís­inda­ráði Running Tide, segir fyr­ir­tækið hafa stungið áliti hans undir stól og síðan lagt ráðið niður. Fyr­ir­tækið hafi með óábyrgri fram­göngu sinni orðið til þess að nú standi til að end­ur­skoða alþjóða­sam­ing um verndun hafs­ins. Segir fyr­ir­tækið aldrei hafa fengið leyfi eins og hér á landi, án ítar­legri skoð­unar og strangs eft­ir­lits.
Áslaug Arna segir sérkennilegt að ekki hafi verið fylgst með starfsemi Running Tide
FréttirRunning Tide

Áslaug Arna segir sér­kenni­legt að ekki hafi verið fylgst með starf­semi Running Tide

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra var fyrsti ráð­herr­ann sem veitti erind­rekum Running Tide áheyrn eftir að fyr­ir­tækið hóf að kanna mögu­leika þess að gera rann­sóknir hér á landi. Eftir kynn­ingu á áformum fyr­ir­tæk­is­ins miðl­aði hún erindi fyr­ir­tæk­is­ins til sam­ráð­herra sinna. Áslaug seg­ist hafa fylgst lítið með fram­vindu rann­sókna Running Tide eftir að hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­inu til stuðn­ings ásamt fjórum öðrum ráð­herrum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár