Lögfræðingur komst að annarri niðurstöðu en Bjarkey

Í lög­fræði­á­liti um frum­varp um lagar­eldi sem unnið var fyrir ráðu­neytið er kom­ist að annarri nið­ur­stöðu um rekstr­ar­leyfi í lax­eldi en Bjarkey Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra lýsti á Alþingi. Bjarkey vís­aði til lög­fræð­innar í rök­stuðn­ingi fyrir því að gera leyfin ótíma­bundin.

Lögfræðingur komst að annarri niðurstöðu en Bjarkey
Önnur nið­ur­staða í lög­fræði­á­liti Í lög­fræði­á­liti sem unnið var fyrir mat­væla­ráðu­neyti Bjarkeyjar Gunn­ars­dóttur er kom­ist að annarri nið­ur­stöðu en ráð­herra lýsti um hvort rekstr­ar­leyfin í lax­eld­inu séu í reynd ótíma­bundin sam­kvæmt gild­andi lögum eða ekki. Mynd: Golli

Í lög­fræði­á­liti sem unnið var fyrir mat­væla­ráðu­neytið um frum­varp um lagar­eldi sem nú er til umræðu á Alþingi eru núgild­andi lög um lax­eldi ekki túlkuð þannig að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu í reynd ótíma­bundin. Í álit­inu, sem aðgengi­legt er á vef Alþingis, segir Víðir Smári Petersen, dós­ent í lög­fræði við Háskóla Íslands, orð­rétt: „Í öllu falli er það álit und­ir­rit­aðs að rekstr­ar­leyfin séu ekki í raun ótíma­bundin eign hand­hafa þeirra.“ 

Umrætt lög­fræði­á­lit er eina álitið frá utan­að­kom­andi lög­fræð­ingi sem unnið var um frum­varpið um lagar­eldi fyrir mat­væla­ráðu­neytið. 

Miklar umræður sköp­uð­ust um það að gera ætti rekstr­ar­leyfin í lax­eld­inu ótíma­bundin eftir að Heim­ildin greindi frá því seint í apríl að rík­is­stjórnin ætl­aði að gefa rekstr­ar­leyfin um aldur og ævi skömmu áður en Bjarkey Gunn­ars­dóttir mælti fyrir frum­varp­inu á …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LRGB
    Linda Rós Guðmundsdóttir Berg skrifaði
    Afgreiðum þetta mál og skrifum undir unfirskriftalistan á island.is
    0
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Er ekki auðvelt að hafa þetta skýrt.. afhverju er þetta ekki á hreinu.. bæta við klausu þar sem sagt er að þetta sé tímabundir-ð til einhverra mánaða.. í stað þess að velta sér uppúr því hvað standi þarna...
    2
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ekki þarf að hraða vinnu að ljúka þessu máli. Að sjálfsögðu ber að skoða það betur enda komið fram ábendingar að þetta mætti orða mun betur og taka af allan vafa.
    Innan Evrópusambandsins eru allt önnur vinnubrögð viðhöfð. Hér eru þessi vinnubrögð eins og í fornöld, engin nútímahugsun virðist vera sýnileg við lagasetningu, allt gert til þess að þóknast þröngum hagsmunahópum. Og þá er tilefni til að rífast nánast endalaust í stað þess að hægja á, kalla til fleiri ráðgjafa og sérfræðinga og finna góða og skynsama lausn sem allir gætu vel við unað.
    -1
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Gat nú verið lögfræðingurinn var auðvitað úr xD mafíunni!
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár