Ákall um hjálp frá starfsfólki Pho Vietnam - „Það er ekki komið fram við okkur eins og manneskjur“

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stétt­ar­fé­lögum og fleiri aðilum barst hjálp­ar­beiðni fyrir tæpu ári þar sem því er lýst hvernig eig­andi Pho Vietnam lætur starfs­fólk sitt end­ur­greiða sér hluta laun­anna í reiðufé. Starfs­fólk sé einnig látið vinna á öðrum stöðum en ráðn­ing­ar­samn­ingur þess segir til um. Dval­ar­leyfi fólks­ins á Íslandi er í fjögur ár bundið samn­ingi við vinnu­veit­and­ann.

Ákall um hjálp frá starfsfólki Pho Vietnam - „Það er ekki komið fram við okkur eins og manneskjur“
Davíð Við­ars­son er í gæslu­varð­haldi vegna gruns um man­sal, pen­inga­þvott, brot á atvinnu­rétt­indum útlend­inga og skipu­lagða brota­star­femi.

„Við leggjum hart að okkur, borgum okkar skatta en það er ekki komið fram við okkur eins og mann­eskjur,“ segir í bréfi sem sent var á íslenskt stétt­ar­fé­lag fyrir tæpu ári. Þar er því enn­fremur lýst hvernig starfs­fólkið á veit­inga­stöðum Pho Vietnam þurfi að end­ur­greiða eig­and­anum hluta laun­anna í reiðufé. Bréfið er svohljóð­andi í íslenskri þýð­ingu en það var sent á ensku:

„Sæl öll. 

Vin­sam­leg­ast bjargið fólk­inu sem er að vinna á Viet nam Restaur­ant keðj­unni sem er í eigu Viet Nam Cuisine ehf, Viet Nam Restaur­ant ehf og EA17 ehf. 

Við vinnum mikið og launin eru lág, og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins borg­aði okkur meira en 400 þús­und krónur inn á reikn­ing en við þurftum að að taka meira en 100 þús­und krónur út í reiðufé til að borga honum til baka. Þar að auki þarf fólk sem vinnur ekki á þessum veit­inga­stöðum samt að fara þangað til að vinna, til dæmis fólk af WokOn ehf og Vy-þrifum. Það er ólög­legt. 

Við leggjum hart að okkur, borgum okkar skatta en það er ekki komið fram við okkur eins og mann­eskjur. 

Vin­sam­leg­ast bregð­ist við sem allra fyrst.“

Lögreglunni borist ábendingar

Veit­inga­stað­irnir sem um ræðir eru Pho Vietnam stað­irnir sem eru í eigu Davíðs Við­ars­sonar, sem hét Quang Le áður en hann breytti því hjá Þjóðskrá, en þeir hétu áður Viet Nam Restaur­ant. EA17 ehf, sem einnig er í eigu Davíðs, hefur rekið Downtown Reykja­vík Hotel á Skóla­vörðu­stíg 42 þar sem einn af veit­inga­stöðum Pho Vietnam er í sama húsi en inn­ritun á hót­elið fór fram á veit­inga­staðnum. Öllum þessum, og fleiri stöðum, var lokað í umfangs­mik­illi aðgerð lög­reglu og fleiri emb­ætta á þriðju­dag. Sex manns eru í gæslu­varð­haldi vegna máls­ins, þeirra á meðal Davíð. 

„Á sínum tíma fengum við að minnsta kosti sam­bæri­legt tölvu­skeyti og þú vísar til,“ segir Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um fram­an­greint bréf. „Okkur hafa borist af og til upp­lýs­ingar sem tengj­ast þess­ari starf­semi. Einar og sér hafa upp­lýs­ing­arnar ekki leitt til aðgerða af hálfu lög­reglu en grein­ing allra upp­lýs­inga sem okkur hafa borist hafa leitt til þess að við teljum rök­studdan grun fyrir hendi um refsi­verða hátt­semi í starf­sem­inni.  Ég legg áherslu á að þó að við höfum rök­studdan grun þá erum við að rann­saka málið og gerum það að sjálf­sögðu með þeim hlut­læga hætti sem okkur er ætlað,“ segir hann. 

Grímur segir rök­studdan grun um refsi­verða hátt­semi þeirra sem voru hand­teknir í umfangs­miklum aðgerðum á þriðju­dag.

Aðgerð­irnar á þriðju­dag voru vegna gruns um man­sal, pen­inga­þvott, brot á atvinnu­rétt­indum útlend­inga og gruns um skipu­lagða brota­star­femi. Hús­leitir voru gerðar á 25 stöðum.

„Aðgerð­irnar voru umfangs­miklar og við höfum viljað leggja áherslu á þau mál þar sem grunur leikur á að brotið sé gegn mansals­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga og er það í sam­ræmi við þá áfalla­mið­uðu nálgun sem við viljum byggja okkar starf­semi á,“ segir Grímur. 

Skráð á einum stað, starfaði á öðrum

Heim­ildin greindi frá því fyrr í dag að und­an­farin þrjú ár hafa 190 víetnamskir rík­is­borg­arar fengið útgefin dval­ar­leyfi á Íslandi vegna starfs sem krefst sér­fræði­þekk­ingar. Lang­flestir þeirra komu til lands­ins í fyrra. 

Rök­studdur grunur er um að Davíð hafi nýtt sér þessa teg­und dval­ar­leyfa til að koma fólki frá Víetnam til lands­ins á grund­velli ein­hvers konar sér­þekk­ingar. Fólkið hafi síðan ekki endi­lega starfað við það starf sem það var skráð hafa komið hingað til að sinna. 

Frétta­stofa Vísis hefur greint frá því að fólkið hafi greitt háar fjár­hæðir, jafn­vel átta milj­ónir króna, til að kom­ast til Íslands.

Dval­ar­leyfi sem þessi má veita til allt að fjög­urra ára. Skilyrði útgáfu slíkra leyfa er að Vinnu­mála­stofnun hafi veitt við­kom­andi atvinnu­leyfi. Fjöldi þeirra Víetnama sem fengið hafa slík dval­ar­leyfi sam­þykkt hefur tvö­fald­ast ár frá ári síð­ast­liðin þrjú ár.

Hundruð milljóna til að koma til Íslands

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur Davíð og fólk á hans vegum fengið fólk frá Víetnam til Íslands þannig að á papp­írum er það skráð til að mynda með sér­þekk­ing­una „kokkur“ og er gerður við það ráðn­ing­ar­samn­ingur, til að mynda hjá Pho Vietnam. Sumt af þessu fólki hefur ekki náð að greiða Davíð allar millj­ón­irnar sem þarf til að fá ráðn­ing­ar­samn­ing hjá einu af fyr­ir­tækj­unum hans og er það því í skuld við hann þegar það kemur. Þetta er fólkið sem lög­reglan telur að sé þolendur mansals en RUV greindi frá því að um sé að ræða um fjöru­tíu manns. Ef við miðum við að fjöru­tíu ein­stak­lingar hafi greitt 8 millj­ónir hver fyrir að koma til lands­ins nemur sú upp­hæð 320 millj­ónum. 

Upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar herma að allur gangur sé á því hvort fólkið síðan starfi á þeim stöðum sem það er með samn­ing við heldur sé það eftir þörfum sent á allt aðra staði að vinna, jafn­vel svo­kall­aða svarta vinnu, og greiðslan fyrir hana fari síðan til Davíðs eða fólks tengdu honum. 

Háð vinnuveitanda í fjögur ár

Dval­ar­leyfi fólks­ins í þessi fjögur ár háð því að það sé með ráðn­ing­ar­samn­ing við fyr­ir­tæki á vegum Davíðs. Heim­ildin hefur fengið ábend­ingar um að fólk­inu hafi verið hótað því að ráðn­ing­ar­samn­ingum verði rift ef það reyni að segja frá stöðu sinni eða leita til yfir­valda, og þar með myndi það missa dval­ar­leyfið. 

Við­skipta­veldi Davíðs hefur vaxið gríð­ar­lega í gegn um árin en auk þess að opna fjögur útibú Pho Vietnam í póst­núm­eri 101, til við­bótar við stað­inn á Suð­ur­lands­braut, keypti hann til að mynda gamla Herkast­al­ann á um hálfan millj­arð króna og hefur þar rekið gisti­heim­ili. Til stóð að félag á hans vegum myndi opna mat­höll á Vest­ur­götu 2 en húsið hefur nú lengi staðið autt.

Byrjaði allt í kjallaranum

Upphaf máls­ins í fjöl­miðlum má rekja til þess þegar Mbl.is greindi frá því að Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur gerði upp­tækan mat­vælala­ger í Sóltúni 20 þar sem nokkur tonn af mat voru geymd við óheil­næmar aðstæður. Vy-þrif, sem er í eigu Davíðs, var með kjall­ar­ann á leigu. Þar fund­ust einnig dýnur og aðrar vís­bend­ingar um að fólk hafi dvalið þar. 

Í sam­tali við Heim­ild­ina í nóv­em­ber neit­aði Davíð fyrir vinnuman­sal og sagði af og frá að fólk hafi búið á mat­arla­gernum alræmda í kjall­ara Sóltúns. „No, nobody stay there. No, you crazy?,” sagði Davíð en á íslensku útleggst þetta sem: „Nei, eng­inn dvaldi þarna. Nei, ertu frá þér?“

Spurður um þær rúm­dýnur og kodda sem heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur fann í kjall­ar­anum sagði hann þessa hluti þar aðeins hafa verið geymda þar tíma­bundið. „Ástæðan fyrir því að þau sáu dýn­urnar í geymsl­unni er að við erum með hótel á Kirkju­stræti, í miðbæ Reykja­víkur, og á Skóla­vörðu­stíg. Stundum þurfum við ekki að nota dýn­urnar og þá geymum við þær þarna,“ sagði Davíð.

Heim­ildin greindi frá því í gær að umsagnir gesta á Downtown Reykja­vík Hotel á Skóla­vörðu­stíg væru margar mjög nei­kvæðar og til að mynda kvört­uðu nokkrir undan kakkalökkum, ásamt ýmiss konar óþrifn­aði. 

Í nóv­em­ber­mán­uði fjall­aði Heim­ildin um að heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur fór í óboðað eft­ir­lit á alla fimm staði Pho Vietnam keðj­unnar þann 3. októ­ber. Daginn áður sáu verk­takar á vegum heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins um að farga mörgum tonnum af mat­vælum úr kjall­ar­anum að Sóltúni 20 sem talin voru heilsu­spill­andi.

Farga þurfti mat hjá Pho Vietnam á Suð­ur­lands­braut 8 og var starf­semi tak­mörkuð bæði þar og á veit­inga­stað keðj­unnar á Lauga­vegi 3.

Matvæli með sama lotu­númer og mat­væli í kjall­ar­anum að Sóltúni fund­ust á veit­inga­stöðum Pho Vietnam á Lauga­vegi 3, Tryggva­götu 20 og Snorra­braut 29. Matvæli á síð­ar­nefndu stöð­unum tveimur voru einnig með sömu dag­setn­ingu og matur sem fannst í Sóltúni. 

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Að fólk utan EES sé bundið tilteknum atvinnurekanda með atvinnuleyfi sitt, er ekkert annað en vistarband og verkfæri fyrir glæpamenn.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsóknin á Davíð og Pho Vietnam

Starfsemi matvælafyrirtækja stöðvuð ef öryggi almennings er ógnað
FréttirRannsóknin á Davíð og Pho Vietnam

Starf­semi mat­væla­fyr­ir­tækja stöðvuð ef öryggi almenn­ings er ógnað

Fram­kvæmda­stjóri heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur segir þau ekki bera skyldu til að upp­lýsa leigu­sala um nið­ur­stöður eft­ir­lits hjá leigu­taka. Nið­ur­stöð­urnar eru hins vegar öllum aðgengi­legar á vef eft­ir­lits­ins. Enginn veit­inga­staður hefur kallað eftir kerfi þar sem merk­ingar um nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins eiga að vera sýni­legar á staðnum sjálfum. Slíkt sé þó reglu­lega til skoð­unar.
Heilbrigðiseftirlitið lét henda gömlum rækjum á WokOn - „Okkur blöskrar“
FréttirRannsóknin á Davíð og Pho Vietnam

Heil­brigð­is­eft­ir­litið lét henda gömlum rækjum á WokOn - „Okkur blöskrar“

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur lét henda núðlum, hrís­grjónum og rækjum á veit­inga­stað Wok On í Krónunni á Fiski­slóð í des­em­ber. Stað­ur­inn fékk fall­ein­kunn hjá eft­ir­lit­inu í byrjun des­em­ber og var starf­semin stöðvuð að hluta. „Við tökum þetta mjög alvar­lega,“ segir fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar. Henni finnst að nið­ur­stöður eft­ir­lits­ins ættu að vera aðgengi­legri.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár