Eitursnjall óvinur Pútíns
Stjarna fædd Yulia Navalní ávarp­aði Evr­ópu­þingið aðeins fáum dögum eftir and­lát eig­in­manns­ins. Mynd: AFP

Eitursnjall óvinur Pútíns

Í fleiri ár forð­að­ist Yulia Navalní sviðs­ljósið. Eftir dauða eig­in­manns­ins á hún hins vegar ekki lengur ann­arra kosta völ en að taka slag­inn. Við engan annan en Pútín.

Ástin mín, skrif­aði hann til hennar á Val­ent­ínus­ar­dag­inn. Þótt borgir, óveður og þús­undir kíló­metra skilji okkur að, „þá finn ég fyrir nær­veru þinni hverja sek­úndu og ég elska þig sífellt heitar“.

Tveimur dögum síðar var hann dáinn. Maðurinn sem leiddi and­ófið gegn Pútín síð­ustu ár var skyndi­lega horf­inn af sjón­ar­svið­inu en eftir stendur ekkja hans, ástin hans, og heitir því að taka við hlut­verki eig­in­manns­ins, Alexei Navalnís. 

„Þessir and­skotar fá aldrei að sjá tár okkar“
Yulia Navalní,
árið 2013.

„Ég vil að Pútín, hans fylg­is­menn, vinir og rík­is­stjórn hans, viti að þeir munu verða dregnir til ábyrgðar vegna þess hvernig komið er fyrir landi okkar, fjöl­skyldu minni og eig­in­manni,“ sagði Yulia Navalní, er hún ávarp­aði fjöl­menna örygg­is­ráð­stefnu í Þýska­landi, aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að frést hafði af and­láti eig­in­manns­ins. „Ég hvet ykkur til að deila bræði minni. Bræði minni, reiði minni, hatri mínu á þeim sem dirfast að drepa fram­tíð okkar,“ sagði hún í ávarpi nokkrum dögum síðar, algjör­lega sann­færð um að rúss­nesk stjórn­völd bæru ábyrgð á dauða Alexei. Að það væri sann­ar­lega rangt að hann hefði ein­fald­lega veikst í alræmdasta fang­elsi Rúss­lands í Síberíu, þremur árum eftir að hann var hand­tek­inn. Þá nýbú­inn að jafna sig eftir eit­ur­efna­árás. 

Yulia Navalní á fjöl­mennum úti­fundi í Moskvu í apríl árið 2021 til stuðn­ings eig­in­mann­inum, Alexei, sem þá var kom­inn í hung­ur­verk­fall í fang­elsi.

Og nú er það hún sem margir horfa til. Ekkj­unnar sem ætlar að nota reið­ina sem morðið á eig­in­mann­inum hefur kallað fram til að standa uppi í hár­inu á Pútín. „Ég mun halda starfi Alexei Navalnís áfram. Halda áfram að berj­ast fyrir land­inu okkar. Og ég býð ykkur að standa við hlið mér í þeirri bar­áttu,“ sagði hún við stuðn­ings­menn sína og alla sem vildu hlusta.

Alexei og Yulia kynnt­ust árið 1998 er þau voru bæði í sum­ar­fríi í Tyrk­landi. Hún er hag­fræði­menntuð og starf­aði í banka en eftir að dóttir þeirra, Dasha, fædd­ist varð hún heima­vinn­andi. Síðar áttu þau son­inn Zahar. Þrátt fyrir að vera klettur við hlið Alexei í hans póli­tík í gegnum árin forð­að­ist hún það að vera sjálf í sviðs­ljós­inu.

En það er nú allt breytt. 

ÁstúðAlexei strýkur vanga eig­in­kon­unnar Yuliu í febr­úar árið 2022 er hann hafði fengið ný rétt­ar­höld. Yfirvöld höfðu dæmt hann fyrir spill­ingu og svo sagt hann hafa brotið skil­orð með því að yfir­gefa Rússland. Hann var því hand­tek­inn við kom­una þangað, eftir að hafa jafnað sig á eit­ur­efna­árás sem hann varð fyrir. Alexei lést í haldi rúss­neskra yfir­valda um miðjan febr­úar.

Skömmu áður en hún átti að flytja ávarp á þýsku örygg­is­ráð­stefn­unni bár­ust henni tíð­indin af dauða Alexei. Hún hafði val. Að hverfa til barna þeirra tveggja, sem eru orðin 23 og 15 ára, eða koma fram og nota þetta stóra alþjóð­lega svið til að sýna and­stæð­ingum eig­in­manns­ins að bar­átt­unni sé ekki lokið. Að hún ætli að halda henni áfram. 

Þeir sem til þekkja segja Yuliu ekki aðeins hafa deilt hug­sjónum eig­in­manns­ins heldur átt stóran þátt í að móta þær. „Þessir and­skotar fá aldrei að sjá tár okkar,“ sagði hún árið 2013 er Alexei hafði verið dæmdur í fang­elsi í fyrsta sinn. Er honum var byrlað tauga­eitur í Rúss­landi árið 2020 skaust hún með hraði inn í kast­ljós fjöl­miðla og barð­ist fyrir því að koma honum undir lækn­is­hendur erlendis. Hún þótti sýna fádæma still­ingu við þær erf­iðu aðstæður, sjálf veik af eitr­un­inni, en sagði síðar að það hafi hún gert af nauð­syn. „Ef ég bug­ast, bug­ast allir.“

Á heim­leiðEftir að hafa dvalið í Þýska­landi flugu Navalní-hjónin heim til Moskvu í jan­úar 2021. Alexei var hand­tek­inn á flug­vell­inum og fékk aldrei frelsi sitt aftur.

Í þau skipti sem hún hefur komið fram frá and­láti Alexei hefur hún sýnt sömu ákveðni og still­ingu. Nú þegar hans nýtur ekki við verður það hennar rödd sem þarf að heyr­ast. Verk­efnið fram undan er risa­vaxið. Því þrátt fyrir alþjóð­legar vin­sældir Alexei er and­spyrnu­hreyf­ingin í Rúss­landi marg­klofin, ekki aðeins hvað aðferðir og leiðir að settum mark­miðum varðar, heldur er hún dreifð víða um heim í bók­staf­legri merk­ingu. Tímar fjölda­mót­mæla í borgum Rúss­lands, sem Alexei stofn­aði til og gerðu hann að áber­andi stjórn­ar­and­stæð­ingi og um leið skot­marki Pútíns, eru lík­lega liðnir. Að minnsta kosti í bili. Yulia, sem hefur ekki enn komið til Rúss­lands eftir and­lát eig­in­manns­ins, verður því að finna nýjar leiðir, beita nýjum aðferðum, við að ná til fjöld­ans. 

StyrkurYulia Navalní í sal Evr­ópu­þings­ins nokkrum dögum eftir lát eig­in­manns­ins.

Líkt og þegar eitrað var fyrir Alexei þurfti hún frá hand­töku hans að láta að sér kveða, halda merkjum hans á lofti og vekja athygli á ömur­legum aðstæðum hans í fang­els­inu. Á sama tíma þurfti hún að þola árásir úr ýmsum áttum, ekki síst í rík­is­reknum fjöl­miðlum heima­lands­ins þar sem reynt var að sverta mann­orð hennar með alls konar brögðum. Hún hefur verið sögð hand­bendi vest­ur­veld­anna, ekki aðeins tals­kona vest­rænna gilda. Sögð hafa haldið fram­hjá, því haldið fram að faðir hennar hafi verið njósn­ari og þar fram eftir göt­unum. Aðrir stjórn­ar­and­stæð­ingar í Rúss­landi hafa tekið sumt af þessu trú­an­legt og eru ekki æstir stuðn­ings­menn hennar. 

En á hún ein­hvern mögu­leika á því að sam­eina and­stæð­inga Pútíns? „Hún býr yfir meiri styrk en flest okkar,“ segir Alex­ander Zykov, einn helsti sam­starfs­maður Alexei Navalní síð­ustu ár. „Mun hún ná árangri á hinu póli­tíska sviði? Rússland hefur lengi haft þörf fyrir skap­andi konu í stjórn­málum og sú þörf fer vax­andi. Þess vegna hef ég trú á Yuliu Navalní.“

En hvað vill hún sjálf?

„Með því að drepa Alexei þá drap Pútín hluta af mér, hálft hjarta mitt, hálfa sál mína,“ sagði hún í ávarpi á net­inu nýverið. „En ég hef enn hinn helm­ing­inn og það segir mér að ég get ekki gef­ist upp núna. Að ég má ekki gef­ast upp.“

Kjósa
78
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár