Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.

Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
Umdeildur samn­ingur fram­lengdur Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja umdeildan samn­ing um lið­skiptað­gerðir við Kliník­ina og Cosan. Sigurður Þór Helgason, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, sést hér með Willum Þór Þórssyni heil­brigð­is­ráð­herra.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing­inn við einka­reknu heil­brigð­is­fyr­ir­tækin Klíník­ina og Cosan um lið­skipta­að­gerðir með kostn­að­ar­þátt­töku íslenska rík­is­ins. Fram­leng­ingin verður byggð á því hversu margar lið­skipta­að­gerðir þessi fyr­ir­tæki hafa gert á þessu ári með greiðslu­þátt­töku íslenska rík­is­ins á þessu ári. Þar af leið­andi má segja að  byggt sé á aðgerð­a­r­eynslu þess­ara fyr­ir­tækja þegar næsti kvóti af lið­skipta­að­gerðum verður gerður með greiðslum frá rík­inu. Fyr­ir­tækj­unum var til­kynnt um þetta í síð­ustu viku sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins. 

Um er að ræða fram­leng­ingu á umdeildum samn­ingi sem Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu við fyr­ir­tækin í mars á þessu ári þar sem þær fengu leyfi til að gera 700 lið­skipta­að­gerðir með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Þetta er í fyrsta skipti í Íslands­sög­unni sem íslenska ríkið útvistar slíkum aðgerðum til einka­fyr­ir­tækja með fjár­veit­ingu frá rík­inu í gegnum útboð.

Klíníkin fékk úthlutað 300 aðgerðum en Cosan, sem er einka­rekið fyr­ir­tæki í eigu bækl­un­ar­skurð­lækna á Land­spít­al­anum fékk 400 aðgerðir. Svo fór að Klíníkin náði að gera allar þessar aðgerðir og fleiri til en Cosan náði ekki að klára þær aðgerðir sem fyr­ir­tækið gerði samn­ing­inn. Klíníkin gerði því miklu fleiri aðgerðir á þessu ári og fá því fleiri aðgerðir með fram­leng­ing­unni á samn­ingnum. 

Fjöldinn sem fyr­ir­tækið fær byggir því á aðgerð­a­r­eynslu með sams konar hætti og kvót­inn sem ein­staka sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengu á sínum tíma, eða þegar nýjar ein­staka fisk­teg­undir eins og mak­ríll eru kvóta­settar, byggði á veiði­reynslu fyrri ára. 

„Sjúkra­trygg­ingar hafa í skoðun hvort mögu­legt sé að fram­lengja núgild­andi samn­inga um fram­kvæmda lið­skipta­að­gerða á grund­velli fjár­veit­ingar í fjár­lögum árs­ins 2024.“
Úr erindi Sjúktra­trygg­inga Íslands um fram­leng­ing­una

Stefnt að því samþykkja fjárveitingu á fjárlögum 2024

Í erindi Sjúkra­trygg­inga Íslands þar sem fram­leng­ingin á samn­ingnum er kynnt segir: „Sjúkra­trygg­ingar hafa í skoðun hvort mögu­legt sé að fram­lengja núgild­andi samn­inga um fram­kvæmda lið­skipta­að­gerða á grund­velli fjár­veit­ingar í fjár­lögum  árs­ins 2024, þar til hægt er að ljúka nýju inn­kaupa­ferli. Með þessu væru núgild­andi samn­ingar fram­lengdir til allt að 31. mars 2024, með til­teknum breyt­ingum. Fjöldi umsam­inna aðgerða myndi taka mið af fram­leiðslu og fram­leiðslu­getu verk­sala hingað til, þó þannig að umsam­inn fjöldi aðgerða yrði að jafn­aði lægri á mán­uði en hefur verið á árinu 2023.“

Í erind­inu segir að for­senda fyrir þessu sé sú að fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins verði sam­þykktar á fjár­lögum árið 2024. Nú í mars voru 700 aðgerðir boðnar út og var fjár­fram­lagið sem var eyrna­mert verk­efn­inu 700 millj­ónir. 

Heim­ildin sendi spurn­ingar til Sjúkra­trygg­inga Íslands og heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um lið­skipta­að­gerð­irnar og fleiri mál fyrir mán­uði síðan en hefur ekki enn fengið svör við þeim. 

Aðgerðunum beint til Klíníkurinnar

Eins og Heim­ildin hefur fjallað um þá eru uppi áhyggjur hjá stjórn­endum í opin­bera heil­brigð­is­kerf­inu að heil­brigð­is­yf­ir­völd séu að ýta verk­efnum í auknum mæli til Klíník­ur­innar. Eins og einn stjórn­andi í heil­brigð­is­kerf­inu, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði við Heim­ild­ina: „Það er bara verið að koma á tvö­földu heil­brigð­is­kerfi á Íslandi.“ Annar starf­andi læknir á sjúkra­húsi sagði: „Það er bara verið að veikja sjúkra­húsin og hola heil­brigð­is­kerfið að innan.“

Eitt af því sem rennir stoðum undir til­gátur um að stjórn­völd séu að ýta verk­efnum til Klíník­ur­innar er að útboðið á lið­skiptað­gerðum í mars var ekki vel kynnt og leit út fyrir að eina til­boðið sem bær­ist í aðgerð­irnar kæmi frá Klíník­innii. For­svars­menn Cosan settu hins vegar fram til­boð með nokkrum hraði, líkt og fjallað hefur verið um í blað­inu, eftir að þeim varð ljóst að verið væri að bjóða þessar lið­skiptað­gerðir út og fengu aðgerðir. Þeirra fyr­ir­tæki hafði hins vegar ekki sömu for­sendur til að gera aðgerð­irnar og Klíníkin hafði. 

Þetta sést svo meðal ann­ars á þeirri stað­reynd að Klíníkin kláraði sínar lið­skipta­að­gerðir sem íslenska ríkið greiddi fyrir en Cosan ekki. Nú á umb­una Klíník­inni fyrir þetta með því að úthluta fleiri aðgerðum til þeirra og færri til Cosan. 

Annað sem hefur ýtt undir umræðu ein­kenni­leg tengsl heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og Klíník­ur­innar er að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra, Guðrún Ása Björns­dóttir, tekur við fram­kvæmda­stjóra­starfi Klíník­ur­innar um ára­mótin. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það er ömurlegt að sjá svona spillingu í heilbrigðiskerfinu. Hryllingur.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Framsóknarflokkurinn er orðinn eins og Sjálfstæðisflokkurinn spilltur og vinnur bara fyrir einkavini. Aumt er að sjá !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár