Fyrrum húsnæði áfangaheimilsins Betra Líf auglýst til sölu

Nýlega birt­ist aug­lýs­ing þar sem aug­lýst er til sölu hús­næði sem hýsti áður fyrr áfanga­heim­ilið Betra Líf, sem fór illa í elds­voða fyrr á þessu ári. Fimm voru fluttir á slysa­deild í kjöl­far brun­ans. Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að bruna­varnir séu í góðu ástandi og að 33 her­bergi hús­næð­is­ins séu kjör­inn til útleigu.

Fyrrum húsnæði áfangaheimilsins Betra Líf auglýst til sölu
Herbergi í Vatna­görðum 18 Áfanga­heim­ilið Betra Líf leigði her­bergi í Vatna­görðum út til flótta­manna og ein­stak­linga í fíkni­efna­neyslu Mynd: Heiða Helgadóttir

Húsnæði sem áður hýsti áfanga­heim­ilið Betra Líf, sem brann 17. febr­úar á þessu ári með þeim afleið­ingum að fimm voru fluttir á slysa­deild, hefur verið aug­lýst til sölu. Fast­eigna­salan Mikla­borg birti nýlega aug­lýs­ingu þar sem aug­lýst er til sölu fast­eign sem nær yfir alla efri hæð Vatna­garða 16-18. 

Heim­ildin fékk þetta stað­fest eftir að hafa sett sig í sam­band við Þórhall Biering, fast­eigna­sala frá Miklu­borg sem aug­lýsti eign­ina. Í sam­tal­inu tók hann fram að aðeins hafi kviknað í einu her­bergi hús­næð­is­ins og eld­ur­inn hafi ekki breiðst út í önnur her­bergi á hæð­inni. Þá sagði hann að búið væri að ráð­ast í miklar end­ur­bætur á hús­inu og bruna­varnir væru í góðu lagi. Að hans sögn er húsið núna sann­kallað „sóma­hús.“

Í lýs­ing­unni á hús­næð­inu kemur fram að um sé að ræða skrif­stofu­hús­næði sem inn­réttað hefur verið sem íbúð­ar­hús­næði. Þar kemur einnig fram að húsið hafi verið mikið end­ur­bætt og tekið út af Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Eignin er sögð henta vel fyrir her­bergja útleigu. Þá er tekið sér­stak­lega fram að verk­fræði­stofan Mannvit hafi hannað bruna­varnir húss­ins.

Sem fyrr segir var áfanga­heim­ilið Betra Líf rekið í hluta hús­næð­is­ins, nánar til tekið í Vatna­görðum 18. 27 ein­stak­lingar höfðu búsetu í hús­næð­inu þegar eld bar að garði, íbú­arnir sem þar höfðu búið ein­stak­lingar sem glímdu við fíkni­vanda, en hús­næðið var einnig nýtt til þess hýsa sex flótta­menn sem deildu þremur tveggja manna her­bergjum. Hvert her­bergi var á þeim tíma leigt út fyrir 280 þús­und krónur á mán­uði.

Heim­ildin setti sig í sam­band við Arnar G. Hjálmtýs­son, eig­anda Betra Lífs, og spurði hann út í hvað komi til þess að hann hafi ákveðið að selja hús­næðið. „Ég er bara gá að því hvort ein­hver vilji kaupa, eða leigja þetta reyndar líka til leigu“

Þá segir hann að vegna ákvörð­unar borg­ar­innar um að fella niður styrki til áfanga­heim­ila sem tók gildi 1. apríl 2023, sé rekstr­ar­grund­völlur áfanga­heim­ila brost­inn og „fólkið verður bara að hýr­ast úti í frost­inu í vetur. Það eru yfir 400 manns, íslend­ingar það er, sem eru hús­næð­is­lausir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“

„fólkið verður bara að hýr­ast úti í frost­inu í vetur.“

Málið rataði á borð slökkviliðsins áður en kviknaði í

Viku fyrir brun­ann hafði Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gert úttekt á hús­næð­inu og gert athuga­semdir við bruna­varnir þess. Í frétt Heim­ild­ar­innar sem birt var í febr­úar var greint frá því að end­an­leg nið­ur­staða hafi ekki verið komin í málið og slökkvi­liðið hafi ekki haft sam­band við eig­anda vegna mögu­legra aðgerða áður en kvikn­aði í. 

Í frétt Morg­un­blaðs­ins sem birt var 16. júní var greint frá því að nágrannar áfanga­heim­il­is­ins, hefðu ráðið lög­menn til þess að gæta hags­muna sinna með að vekja athygli á fram­kvæmdum og breyt­ingum sem sem fram fóru í hús­næð­inu í leyf­is­leysi.

Þá fjöll­uðu blaða­menn Stund­ar­innar, nú Heim­ild­ar­innar, ítar­lega um áfanga­heim­ilið Betra Líf og aðbúnað þeirra sem bjuggu í hús­næði félags­ins í Fannborg 4 í Kópavogi í umfjöllun sem birt­ist í mars 2022.

Í saman mán­uði var efri hæð hús­næð­is­ins lokað vegna þess að það upp­fyllti ekki kröfur slökkvi­liðs­ins um bruna­varnir. Nokkrum vikum síðar var áfanga­heim­il­inu í Fannborg end­an­lega lokað eftir að húsa­leigu­samn­ingi við rekstr­ar­að­ila Betra lífs var rift. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár