Búnaði fyrir tæpar tvær milljónir stolið

Kvik­mynda­töku­bún­aður að verð­mæti tæpra tveggja millj­óna hvarf úr bif­reið þriggja manna fjöl­skyldu í Vesturbæ um miðjan nóv­em­ber. Lög­reglan hefur lítið aðhafst og bún­að­ur­inn er enn ófund­inn.

Búnaði fyrir tæpar tvær milljónir stolið
Baldvin við tökur Hann er kvik­mynda­gerð­ar­maður og þarf því á bún­að­inum að halda við vinnu sína dags dag­lega. Á mynd­inni er skjár og fleiri auka­hlutir sem var stolið.

Það var aðfara­nótt 16. nóv­em­ber sem þjófur eða þjófar brut­ust inn í bíl Baldvins Vern­harðs­sonar og Fríðu Þor­kels­dóttur á Reka­granda í Vesturbæ. Í bílnum voru veru­leg verð­mæti sem hurfu: Tölva, kvik­myndamónitor, minniskort, raf­hlöður og fleiri smá­hlutir sem Baldvin, sjálf­stætt starf­andi kvik­mynda­gerð­ar­maður, notar við vinnu sína. 

Tjónið hljóðar upp á 1,8 millj­ónir að sögn Baldvins. Fjöl­skyldan fékk ein­ungis um 200 þús­und krónur úr trygg­ing­unum.

„Fyrir mig sem sjálf­stætt starf­andi kvik­mynda­gerð­ar­mann þá er þetta svo­lít­ill biti,“ segir Baldvin.

FariðHluti af þeim auka­hlutum sem hurfu.

Fóru sjálf að leita uppi þýfið

Hann gerði lög­regl­unni við­vart sem tók af honum skýrslu en svo segir Baldvin að lög­reglan hafi lítið aðhafst. Þegar hann sá að tölvan væri lík­lega í hús­næði Króks í Hafn­ar­firði, miðað við stað­setn­ing­ar­for­ritið Find My, hafði hann sam­band við lög­regl­una. 

„Löggan seg­ist ekk­ert geta gert í svona málum og spyr hvort ég geti ekki bara farið sjálfur og tékkað á þessu,“ segir Baldvin. „Sem við gerum og fáum að fara þarna inn og skoðum okkur um en ekk­ert finnst svo sem. Mig grunar að það sé ólög­lega búið á efri hæð­inni í þessu húsi svo ég ímynda mér að það geti eitt­hvað tengst þessu.“

Var ekk­ert ógn­vekj­andi fyrir ykkur að fara þarna sjálf og leita uppi þjóf sem þið vitið ekk­ert hver er? 

„Manni stóð ekk­ert alveg á sama. Það var smá hugur í manni, mann vant­aði bara þetta dót aftur en jú, jú, ég, liggur við, bjóst alveg við því að fá hnefa í and­litið ein­hvers staðar.“ 

Gat lög­reglan ekk­ert gert frá upp­hafi? 

„Þegar hún kom þarna og tók skýrslu af mér þá bara rétt kom hún og hún skoð­aði ekki einu sinni bíl­inn. Ef hún hefði litið á ein­hverja staði – maður myndi halda að löggan myndi vita um ákveðnar leiðir til þess að kom­ast inn í bíla – þá hefði hún séð ummerkin. En það var ekk­ert gott við­mót frá lög­regl­unni frá upp­hafi,“ segir Baldvin. 

Guð­mundur Páll Jónsson, lög­reglu­full­trúi hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, kann­að­ist ekki við þetta ein­staka mál en sagði í sam­tali við Heim­ild­ina að allar vís­bend­ingar séu skoð­aðar í inn­brots­málum. 

„Ef við höfum ein­hverjar vís­bend­ingar, upp­tökur eða hvað sem er, þá skoðum við það allt saman. En ef ekk­ert ger­ist þá þarf því miður að loka þeim málum.“

Þá sagði Guð­mundur að almennt fylgi lög­reglan oft fólki í leit að stolnum munum. 

„Alla vega í mörgum til­vikum, ef við höfum mann­skap í það þá gerum við það.“

Stað­setn­ingTölvan hans Baldvins, nýleg MacBook Pro, lét vita af sér í atvinnu­hús­næði í Garðabæ. Þangað fóru Baldvin og Fríða en fundu ekk­ert.

Tekur nokkra mánuði að safna fyrir nýjum búnaði

Baldvin hefur þegar keypt sér nýja tölvu en það mun taka hann ein­hverja mán­uði að safna fyrir nýjum kvik­mynda­töku­bún­aði.

„Við­skipta­líkanið mitt er þannig að ég leigi út búnað með mér í verk­efni þannig að það hækkar launin mín líka á hverjum degi,“ segir Baldvin. „Nú get ég það ekki og þarf þá að leigja þetta ann­ars staðar frá.“ 

Baldvin fylgist nú vel með því hvort bún­að­inum bregði fyrir á sölu­síðum eða ann­ars staðar en hann hefur ekk­ert séð eða heyrt. 

„Þetta er svo sér­stakur bún­aður að það er ekk­ert hlaupið að því að selja þetta,“ segir Baldvin. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár