Guðbjörg færir eignarhluti í Ísfélaginu yfir á syni sína fjóra

Fjór­ir syn­ir Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur í Ís­fé­lag­inu eru nú orðn­ir stærstu eig­end­ur út­gerð­ar­inn­ar. Með þessu fet­ar Guð­björg í fót­spor eig­enda Sam­herja en stofn­end­ur þess fé­lags færðu stærst­an hluta bréfa sinn yf­ir á börn­in sín fyr­ir nokkr­um ár­um. Fjöl­skylda Guð­bjarg­ar ætlar að selja bréf í Ísfé­lag­inu fyrir 9,4 millj­arða við skrán­ingu félags­ins á hluta­bréfa­markað.

Guðbjörg færir eignarhluti í Ísfélaginu yfir á syni sína fjóra
Áætla að selja bréf fyrir rúma 9 millj­arða Fjöl­skylda Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur áætlar að selja hluta­bréf í Ísfé­lag­inu fyrir rúm­lega 9 millj­arða króna. Mynd: Bára Huld Beck

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerð­ar­kona í Vest­manna­eyjum sem verið hefur stærsti hlut­hafi Ísfé­lags­ins síð­ast­liðin ár, hefur fært meiri­hluta hluta­bréfa sinna í útgerð­inni yfir á fjóra syni sína. Í dag á hún minni hlut í Ísfé­lag­inu en þeir. Þetta má sjá í skrán­ing­ar­lýs­ingu Ísfé­lags­ins, fyrir vænt­an­lega skrán­ingu þess á hluta­bréfa­markað, sem og árs­reikn­ingum félaga Guð­bjargar og sona hennar. Vef­mið­ill­inn Hlut­haf­inn.is greindi fyrst frá eig­enda­skipt­unum á hluta­bréfum. 

Með þessum gern­ingi fetar Guðbjörg í fót­spor stofn­enda og fyrr­ver­andi stærstu eig­enda Samherja, Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar, sem færðu stærstan hluta bréfa sinna í Samherja yfir á börnin sín fyrir nokkrum árum. 

„Í maí 2023 var hlutafé félags­ins lækkað með útgreiðslu til hlut­hafa kr. 2.750.000.000.“
Úr árs­reikn­ingi Fram ehf.

Fer úr 92 prósenta hlut í rúm 11

Í lok síð­asta árs átti Guðbjörg Matth­í­as­dóttir tæp­lega 92 pró­senta hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu Fram ehf. sem aftur átti ÍV fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem átti tæp­lega 58 pró­senta hlut í Ísfé­lag­inu. Synir hennar fjórir, Einar, Kristinn, Magnús og Sigurður Sig­urðs­synir, áttu rúm­lega 2 pró­senta hlut hver á móti henni. 

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Ísfé­lags­ins kemur fram að þetta sé nú breytt og á hún nú rúm­lega 11 pró­senta hlut í Fram ehf. Synir hennar eiga nú rúm­lega 22 pró­senta hlut í Fram ehf. hver. Um þetta segir í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni í til­felli Einars Sig­urðs­sonar, eins sona hennar: „Einar á engan beinan hlut í félag­inu sjálfur, en á 22,12% eign­ar­hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Fram ehf. sem er eini hlut­hafi ÍV fjár­fest­inga­fé­lags ehf., sem á um 57,7% í félag­inu. Einar er jafn­framt þriðj­ungs­eig­andi í MKE ehf. sem á um 0,26% af hlutafé í Ísfélagi (0,27% miðað við atkvæð­is­rétt).“

Eigendur Fram ehf. í dag, og þar með hluta­bréf­anna í Ísfé­lag­inu, eru því fjórir synir Guð­bjargar með rúm 22 pró­sent hver og svo hún sjálf með rúm­lega 11 pró­sent. 

Selja stóran hlut í Ísfé­lag­inuGuðbjörg Matth­í­as­dóttir og fjöl­skylda ætla sér að selja 8,57 pró­sent hlut hlut í Ísfé­lag­inu í útboð­inu. Úr skrán­ing­ar­lýs­ingu Ísfé­lags­ins.

Fjölskyldan selur bréf fyrir um 9 milljarða

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni kemur fram að Guðbjörg og synir ætli sér að selja 8,57 pró­senta hlut í útboð­inu á Ísfé­lag­inu. Félög þeirra munu fara úr því að eiga 57,77 pró­sent hlut og niður í 49,13 pró­senta hlut. 

Miðað við áætlað mark­aðsvirði Ísfé­lags­ins upp á um 110 millj­arða króna þá gæti fjöl­skyldan fengið um 9,4 millj­arða króna fyrir þessi hluta­bréf. Fjöl­skyldan er því að fara að inn­leysa mik­inn sölu­hagnað í útboð­inu.

Við þetta bæt­ist að í maí á þessu ári greiddi fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Fram ehf. út tæp­lega 3 millj­arða króna til Guð­bjargar og sona hennar með því að lækka hlutafé félags­ins: „Í maí 2023 var hlutafé félags­ins lækkað með útgreiðslu til hlut­hafa kr. 2.750.000.000.“

Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Jak­obs­son Capital sendi frá sér verð­mat á Ísfé­lag­inu í gær þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að Ísfé­lagið væri und­ir­verð­lagt og að virði félags­ins sé 129,7 millj­arðar króna. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Þarf að borga erfðafjárskatt að svona gjörningum?
    4
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Þessi spurning þín er miklu áhugaverðari fyrir lesendur og almenning en hrókeringarnar. Svo ?

      Boltinn er hjá blaðamönnum Heimildarinnar. Því hvernig hrókeringarnar ganga fyrir sig er lítils virði... en hver tilgangurinn er skiftir öllu máli. Enda í þessu máli eru gerendurnir hið opinbera og stjórnmálamenn ef skattsvikaleiðir undir skjóli skattahagræðis er átölulaust og umræðulaust af hálfu blaðamanna.

      Frekar furðulegt að menn hafi ekki spurt skattinn um þessa hlið mála.

      Auðvitað bráðsnjallt að selja börnunum sínu 20 milljarða fyrirtæki á nafnvirðinu 100 milljónir... og komast upp að það... þó svo erfðarfjárskatturinn af 100 milljónunum sé greiddur.
      6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár