Telur að Bjarni hafi axlað ábyrgð þó hann hætti ekki alfarið

Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi þegar axlað ábyrgð á van­hæfi sínu við söl­una á Íslands­banka sem umboðs­maður Alþingis komst að nið­ur­stöðu um.

Telur að Bjarni hafi axlað ábyrgð þó hann hætti ekki alfarið
Ábyrgðin „Mér finnst hann axla ábyrgð á því áliti sem þarna var,“ segir Sigurður Ingi um rík­is­stjórn­ar­bróður sinn Bjarna Bene­dikts­son. Mynd: Golli

„Ég held að það væri meiri óvissa ef for­maður stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins væri ekki í rík­is­stjórn,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra um nýtil­kynnt sæta­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra. 

Þau eru til­komin vegna afsagnar Bjarna Bene­dikts­sonar síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Hann sagði af sér eftir að Umboðs­maður Alþingis komst að nið­ur­stöðu um að Bjarna hefði brostið hæfi við sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka en faðir Bjarna var á meðal kaup­enda í lok­uðu útboði. 

Er Bjarni að taka fulla ábyrgð þegar hann fer bara svona úr einum stól í annan? 

„Hver flokkur skipar sínu ráð­herra­liði auð­vitað eins og það er,“ segir Sigurður Ingi sem ræddi við Heim­ild­ina eftir blaða­manna­fund rík­is­stjórn­ar­innar í morgun. „Mér finnst hann axla ábyrgð á því áliti sem þarna var og eins og hann sagði þarna áðan að fría ráðu­neytið frá þeirri umræðu enda er hann þar með að axla ábyrgð á því.“ 

„Í pólitík er aldrei neitt sjálfgefið“

Höfðuð þið ekk­ert um þetta að segja, var það bara Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem gat tekið þessa ákvörðun? 

„Í póli­tík er aldrei neitt sjálf­gefið,“ segir Sigurður Ingi. „Þegar það verða stórar vend­ingar þá þarf að sjálf­sögðu að ræða þær og það höfum við gert.“

Hvenær fóruð þið fyrst að heyra af þess­ari hug­mynd, að þau myndu skipta um sæti?

„Ég man það nú ekki. Við ræðum margt. Það er hluti af póli­tík að vera und­ir­bú­inn og þar af leið­andi ólíkar sviðs­myndir, en nákvæm­lega hvenær, ég þori ekki að full­yrða það.“ 

Það var talað um stöð­ug­leika hérna áðan en maður spyr sig samt hvort það leiði ekki af sér meiri óstöð­ug­leika að vera áfram með mann sem er nýbú­inn að segja af sér áfram í rík­is­stjórn? 

„Ég lít ekki svo á. Ég held að það væri meiri óvissa ef for­maður stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins væri ekki í rík­is­stjórn.“ 

Hafi ekki hundsað vilja þjóðarinnar

Er þitt fólk í Fram­sókn­ar­flokknum almennt sátt við þessa nið­ur­stöðu?

„Já.“ 

Maskína birti í gær nið­ur­stöður úr könnun sem benti til þess að 70% Íslend­inga vildu að Bjarni hætti alfarið sem ráð­herra. Spurður hvort rík­is­stjórnin sé að hundsa vilja þjóð­ar­innar með því að halda Bjarna áfram í bátnum segir Sigurður Ingi: 

„Skoð­ana­kann­anir eru ein­hverjar punkt­mæl­ingar á áliti fólks. Kosn­ingar eru hins vegar mæl­ingin á traust stjórn­mála­manna og það verður þá að koma í ljós.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það er varla til orð yfir þessa svokölluðu ríkisstjórn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár