Snorri leitar að ríkum og vondum bakhjörlum

Snorri Másson, rit­stjóri Snorra Mássonar rit­stjóra, leitar nú að fjár­fram­lögum frá „ríku og vondu fólki“ sem vill styðja við nýja fjöl­mið­il­inn hans sem ber heitið „Snorri Másson rit­stjóri“. Hann segir áskrif­endur að miðl­inum hrann­ast inn.

Snorri leitar að ríkum og vondum bakhjörlum
Rit­stjór­inn Hér fer Snorri yfir mál­efni líð­andi stundar með áskrif­endum sínum með ein­kenn­is­merkið á and­lit­inu: Glottið.

Snorri Másson fjöl­miðla­maður hefur nú stofnað nýjan fjöl­miðil: Snorra Másson rit­stjóra. Snorri er eini starfs­maður mið­ils­ins og er jafn­framt rit­stjóri hans. Hann vill með þessu gera sitt til þess að fylla í gat sem hann telur vera á fjöl­miðla­mark­aði með gagn­rýnni umræðu blaða­manns sem við­ur­kennir að hann geti ómögu­lega verið hlut­laus. 

„Blaða­menn sem ætla að vera hlut­lausir þurfa bara að tjá sig í gegnum aðrar leiðir, með því að velja við­mæl­endur og áherslur,“ segir Snorri.

„Ef þeir ætla ekki að segja: „Þetta frum­varp er ömur­legt“ þá finna þeir ein­hvern til þess að segja það, í stað þess að segja bara sjálfir: „Þetta frum­varp er ömur­legt.““

Snorri ætlar sér því ekk­ert að skafa af skoð­unum sínum á mál­efni líð­andi stundar, sér­stak­lega í gegnum það sem hann kallar „mál­efna­legar per­són­u­árásir“. 

„Mér líður aldrei sér­lega vel með það þegar ég er að hjóla í fólk, ég gerði það stundum í Íslandi í dag. Svo hugsa ég: „Fólk þarf á þessu efni að halda.“ Þetta er ákveðin þjón­usta,“ segir Snorri sem vill mjög gjarnan fá að vísa í Stefán G. Kletta­fjalla­skáld í þessu sam­hengi.

„Mér er vel til allra manna en mér er meinilla við þá strauma sem sumir láta ber­ast með.“

„Ég er ekki alveg jafn góður“

Verður þetta mikið þú að deila þinni sýn á frum­vörp sem þér finnst ömur­leg? 

„Ég hata nátt­úru­lega Alþingi og mér finnst eig­in­lega allt leið­in­legt sem þar ger­ist. Ef mér finnst frum­vörp ömur­leg mun ég segja það,“ segir Snorri sem leggur þó áherslu á að hann muni ávallt hafa lög­mál blaða­mennsk­unnar að leið­ar­ljósi og að hann sé ekki bund­inn neinu ákveðnu póli­tísku afli. 

„Ég held að það séu örlög fjöl­miðla­manns­ins að starfa undir vondu ríku fólki. Ég myndi segja að mitt fyr­ir­tæki sé miðað við marga aðra miðla mjög óháð vondu ríku fólki,“
Snorri Másson
rit­stjóri Snorra Mássonar rit­stjóra

„Ég er svo­lítið flók­inn póli­tískt séð, ég er ekki svona klass­ískur frjáls­lyndur góður vinstri maður sem er svona ráð­andi fígúra á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði. Hann hefur tögl og hagldir á RÚV, Heim­ild­inni, Vísi og Sam­stöð­inni núna. Ég er svona aðeins flókn­ari. Mér líður ekki alveg jafn vel með alla þessa góðu mál­staði. Ég kem aðeins úr annarri átt að þeim.“

FeðgarSnorri Másson, rist­jóri Snorra Mássonar rit­stjóra, og Már Snorra­son 14 mán­aða gam­all. Hér und­ir­búa þeir feðgar það sem nú er orðið að veru­leika: Snorra Másson rit­stjóra.

Þú ert ekki alveg jafn góður? 

„Ég er ekki alveg jafn góður.“

Snorri Másson rit­stjóri er fjár­magn­aður með áskrift­ar­gjöldum, um 2.000 krónum mán­að­ar­lega kjósi fólk að fara þá leið, en Snorri kallar sömu­leiðis á síð­unni sinni eftir stærri styrkjum. 

„Á síð­unni minni er hægt að ger­ast stofn­með­limur og borga smá pen­ing til þess að styrkja mig þar. Það væri mjög vel þegið ef eitt­hvað vont ríkt fólk væri til í það. Ég á ekki erfitt með að taka við pen­ing frá vondu ríku fólki en það þýðir ekki heldur að ég muni segja allt sem vonda ríka fólkið vill að ég segi.“

Mætir örlögum sínum

En eitt­hvað af því kannski? 

„Ef það laumar að mér ein­hverju sem ég er líka sam­mála þá get ég 100% sagt það.“

Treystir þú þér samt til að vera nokkuð hlut­laus þó þú sért með vont ríkt fólk á bak við þig? 

„Ég held að það séu örlög fjöl­miðla­manns­ins að starfa undir vondu ríku fólki. Ég myndi segja að mitt fyr­ir­tæki sé miðað við marga aðra miðla mjög óháð vondu ríku fólki,“ segir Snorri sem er ekki að ráða til sín starfs­fólk í bili en sér fyrir sér að þegar Snorri Másson rit­stjóri verði að fjöl­miðla­veldi gæti hann hætt að kenna mið­il­inn við sjálfan sig og breytt nafni mið­ils­ins í hið smekk­lega og ein­falda heiti: Rit­stjóri.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Auður Helg skrifaði
    Mér líst vel á þetta. Snorri virðist vera víðsýnn og sjálfstæður í hugsun. Veitir ekki af að fá mótvægi við einhliða og þrönga umfjöllun meginstraumsmiðlanna.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár