Samskip krefja Eimskip um bætur

Flutn­inga­fyr­ir­tækið Samskip ætlar að krefja flutn­inga­fyr­ir­tækið Eimskip um bætur vegna meintra „ólög­mætra og sak­næmra athafna“ þess gagn­vart Sam­skipum. Jafn­framt hafa Samskip kært ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að leggja á fyr­ir­tækið 4,3 millj­arða króna í sam­ráðs­máli.

Samskip krefja Eimskip um bætur
Nánir Helstu per­sónur og leik­endur í sam­ráðs­máli Samskips og Eimskipa. Samstarf þeirra end­aði með sektum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem sam­tals nema á sjötta millj­arð króna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Samskip telja að Eimskip hafi lagst í „mjög alvar­lega atlögu“ að Sam­skipum með því að lýsa því yfir í sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið að Eimskip hafi átt í sam­ráði við Samskip. Það gerði Eimskip árið 2021 og við­ur­kenndi brot sín á sam­keppn­is­lögum. 

„Hefur Eimskip með þessu rang­lega sakað félagið, sem og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn félags­ins og Eimskips, um ólög­mæta og eftir atvikum refsi­verða hátt­semi,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­skipum. 

Þau hafa falið lög­manns­stof­unni Mörkinni að sækja bætur frá Eimskips vegna þess sem þau telja „ólög­mætar og sak­næmar athafnir“ Eimskips gagn­vart Sam­skipum. 

Ekki hefur verið ákveðið hversu háar bætur Samskip muni krefja Eimskip um en lög­menn Samskipa hafa sent for­stjóra Eimskips kröfu­bréf. Þá hafa þeir jafn­framt óskað þess að fá að vita hvaða stjórn­endur eða …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Eigum við að rifja upp söluna á Búnaðarbankanum, persónur og leikendur og sækja gögnin sem aldrei voru sótt. Aðkoma íslendinga að Dekhill og fleira hefur aldrei komið fyrir augu almennings en hætt við að ansi mörgum yrði brugðið ef þeir sæu hversu ósvífnir menn hafa verið gengum tíðina. Líka fjölmiðlamenn.

    Svo þetta útspil er með þeim súrreslískari ósvinnu sem sést hefur og lætur Samherjaliðið líta út sem viðvaninga í svona málum.

    nú væri fróðlegt að sjá raunverulegu fórnarlömbin skutla inn skaðabótakröfum á bæði skipafélögin... en hætt við að þá fyki í þingmenn.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
FréttirSamráð skipafélaga

Mútur og sam­ráð í skipa­flutn­ingi með dag­blaða­pappír

Samskip er sagt hafa greitt kanadískum miðl­ara mútur gegn því að dag­blaða­pappír fyrir íslensk fyr­ir­tæki væri fluttur með Sam­skipum. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­ráð skipa­fé­lag­anna þar sem rakið er hvernig greiðsl­unum var haldið leyndum fyrir inn­flytj­endum hér á landi. Samskip og miðl­ar­inn neita.

9 mín. lestur

FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár