Nær djúpri tengingu við Ísland og dreymir um að starfa hér sem læknir

Doğuş Kökarttı er 29 ára tyrk­neskur ofur­ferða­langur, læknir og lista­maður sem dreymir um að starfa sem læknir á Íslandi. Hann féll fyrir landi og þjóð þegar hann ferð­að­ist á putt­anum hring­inn í kringum Ísland fyrir átta árum.

Nær djúpri tengingu við Ísland og dreymir um að starfa hér sem læknir
Trúir á hið góða í fólki Doğuş Kökarttı ólst upp við að var­ast fólk, en á ferðum sínum hefur hann upp­götvað hið góða sem býr í fólki og því vill hann halda áfram. Hann dreymir um að starfa sem læknir á Íslandi. Mynd: Aðsend

Á gangi á hring­veg­inum sum­arið 2015 fékk lækna­nem­inn og ferða­lang­ur­inn Doğuş Kökarttı hug­ljómun sem hefur markað líf hans síðan. Verk­efnið kallar hann A Tea with 10.000 people eða „Te með 10.000 manns“. „Ég er alltaf að hugsa þegar ég geng og ég fór að hugsa um allt fólkið sem ég hef hitt á ferða­lögum mínum, ætli það hlaupi ekki á þús­undum. Ég fékk því þessa hug­mynd að halda betur utan um allt fólkið sem ég hitti,“ segir Doğuş. Þegar hann kom til næsta bæjar, Akur­eyrar, fór hann í bóka­búð og eyddi eins litlum pen­ing og hann gat í skrif­blokk þar sem hann útfærði hug­mynd­ina betur.

Á putt­anumDoğuş fékk hug­ljómun á ferð sinni um Ísland sum­arið 2015: Að drekka te með 10.000 manns. Talan skiptir þó ekki öllu máli, heldur sög­urnar sem fólkið segir honum.

Hann setti markið hátt, …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár