Eru ekki megrunarlyf en eru misnotuð sem slík

Lyf sem ætluð eru til með­ferðar við offitu eru í of mörgum til­vikum ekki gefin með við­eig­andi hætti eða mis­notuð sem megr­un­ar­lyf. Það getur haft mjög slæmar afleið­ingar að sögn læknis sem hefur sér­hæft sig í með­ferðum við offitu.

Eru ekki megrunarlyf en eru misnotuð sem slík

Mörg þús­und manns nota lyf sem ætluð eru til með­ferðar við offitu og syk­ur­sýki hér­lendis árlega og fleiri millj­ónir í heim­inum öllum. Í flestum til­vikum eru lyfin gefin eftir ítar­lega heilsu­fars­skoðun og með við­eig­andi eft­ir­fylgni. En of oft er því ábóta­vant og þá eru einnig fjöl­mörg dæmi um að fólk sem ekki er með sjúk­dóm­inn offitu verði sér úti um þau erlendis í þeim til­gangi að grenn­ast. En þegar lyfin eru notuð til þess að skapa sveltis­á­stand í lík­am­anum getur það meðal ann­ars haft þau áhrif að það hægist á grunn­brennslu lík­am­ans. 

Þetta segir Erla Gerður Sveins­dóttir, læknir og lýð­heilsu­fræð­ingur sem hefur veitt sínum skjól­stæð­ingum með­ferð með lyfj­unum í um ára­tug.

Lyfin, m.a. Ozempic og Saxenda, komust í frétt­irnar hér­lendis á mánu­dag vegna þess að Lyfja­stofnun Íslands sendi Lyfja­stofnun Evrópu til­kynn­ingu um að í þrí­gang hafi komið upp mjög nei­kvæð and­leg líðan, þ.e. sjálfs­vígs­hugs­anir eða sjálfs­skað­andi hug­myndir, sam­hliða …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár