Kærir Gísla til héraðssaksóknara og lætur kyrrsetja eignir

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Gísla Hjálmtýs­sonar, fjár­festis og pró­fess­ors, hefur kært hann fyrir að hafa haldið eftir pen­ingum vegna sölu fast­eigna sem þau áttu saman. Samhliða hefur hún farið fram á kyrr­setn­ingu eigna hans vegna kröfu upp á 233 millj­ónir króna, sem meðal ann­ars er til­komin vegna við­skipt­anna sem hún kærir.

Kærir Gísla til héraðssaksóknara og lætur kyrrsetja eignir
Telur Gísla hafa haft af sér Fyrr­ver­andi eig­in­kona fjár­fest­is­ins Gísla Hjálmtýs­sonar hefur kært hann til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir mein­tan fjár­drátt og eða umboðs­svik. Hún telur að hann hafi haft af sér fé með því að greiða henni ekki hennar hlut í fast­eignum sem þau áttu saman.

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Gísla Hjálmtýs­sonar, fjár­festis og pró­fess­ors í tölv­un­ar­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík, hefur kært hann til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir meint umboðs­svik og eða mein­tan fjár­drátt.

Þá hefur konan, Sigrún Ísabella Jóns­dóttir, látið kyrr­setja eignir Gísla fyrir kröfu upp á rúm­lega 233 millj­ónir króna. Krafan byggir á því sem talið er vera rétt­mæt hlut­deild hennar í sam­eig­in­legum eignum sam­kvæmt úrskurði dóm­stóls í Banda­ríkj­unum í fyrra. Í úrskurð­inum er fjallað um skilnað þeirra og skiln­að­ar­kjör, eins og það er orðað í kærunni. 

Kæran byggir á því að Gísli hafi selt ein­býl­is­hús í Reykja­vík sem þau hjónin áttu saman fyrir 105 millj­ónir króna árið 2016 án þess að hún hafi fengið sinn hluta kaup­verðs­ins greiddan. Hún byggir einnig á því að Gísli hafi selt íbúð sem var hluti af greiðslu kaup­verðs­ins án þess að Sigrún hafi fengið sinn hluta kaup­verðs­ins. Þetta kemur fram í kærunni til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara og í …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Það er greinilegt að þennan þurfti að losa sig við.
    Ég las um daginn að lýgi og hefnigirni væri dæmi um sociopaths. Og að það sé ólæknandi fötlun. Það eru komnar í dag skýringar á mörgum mannana hvirlum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár