Samfylkingin ætlar að leiða ríkisstjórn en ekki stjórna með „hneykslun eða óánægju að leiðarljósi“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýndi sitj­andi rík­is­stjórn harka­lega í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi í dag. Tími væri kom­inn á breyt­ingar eftir „óslit­inn ára­tug með Sjálf­stæð­is­flokk­inn við völd, og rík­is­stjórn sem er búin að gef­ast upp á öllu“. Hún sagði for­sæt­is­ráð­herra „bara fylgj­ast með á meðan fjár­mála­ráð­herra slær á putt­ana hjá öllum hinum“.

Samfylkingin ætlar að leiða ríkisstjórn en ekki stjórna með „hneykslun eða óánægju að leiðarljósi“
Mælist stærsti flokkur lands­ins Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur farið hratt upp á við eftir að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í ágúst 2022, en hún var kjörin for­maður flokks­ins í októ­ber sama ár. Alls mælist Sam­fylk­ingin nú með 14,1 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Mynd: Baldur Kristjánsson

„Eftir óslit­inn ára­tug með Sjálf­stæð­is­flokk­inn við völd, og rík­is­stjórn sem er búin að gef­ast upp á öllu, er löngu kom­inn tími á breyt­ingar — eftir tíu löng ár í stjórn­ar­and­stöðu blasa hvar­vetna við okkur verk­efni sem kalla á klass­ískar lausnir jafn­að­ar­fólks; sem kalla á okkur sós­í­alde­mókrata til verka. Það er ein­fald­lega staðan. Og við tökum hana alvar­lega.“ 

Þetta sagði Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins í morgun. Á sama fundi kynnti flokk­ur­inn nýtt merki, Rauðu jafn­að­ar­mannarós­ina og nýjan rauðan lit. 

Þar sagði hún Sam­fylk­ing­una ætla að verða ráð­andi afl í næstu rík­is­stjórn. Það væri ekki vegna þess að flokk­ur­inn sé í vin­sælda­keppni eða vegna þess að hann langi svo að sitja í ráð­herra­stólum. „Sam­fylk­ingin stefnir í stjórn og fyrir því er ein og aðeins ein ástæða: Verk­efnin sem kalla. Því þau kalla á okkur. Og þau eru aldeilis ærin verk­efnin sem blasa við í íslensku sam­fé­lagi. Svo fólk geti lifað sóma­sam­legu lífi af laun­unum sínum. Búið við öryggi á hús­næð­is­mark­aði. Og sótt sér heil­brigð­is­þjón­ustu í hæsta gæða­flokki þegar eitt­hvað kemur upp á. Þetta eru bara fáein dæmi.“

Kristrún eyddi fyrsta hluta ræðu sinnar meðal ann­ars í að gagn­rýna rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur harka­lega og sagði að Sam­fylk­ingin ætl­aði að end­ur­reisa vel­ferð­ar­kerfið á Íslandi eftir ára­tug hnign­unar. „Eftir því sem þessi rík­is­stjórn hangir lengur á stól­unum — algjör­lega verk­stola — þá bæt­ist við verk­efna­list­ann. Við ætlum að koma skikki á stjórn efna­hags­mála; vinna gegn verð­bólg­unni um leið og við verjum heim­il­is­bók­haldið hjá fólki. Því stað­reyndin er þessi: Rík­is­stjórnin hefur misst alla stjórn.“

Forsætisráðherra sem fylgist bara með

Verka­skipt­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar bar líka á góma í ræðu Kristrúnar. Hún sagi hana fela í sér „að hver ráð­herra sitji í sínu horni, með for­sæt­is­ráð­herra sem virð­ist bara fylgj­ast með á meðan fjár­mála­ráð­herra slær á putt­ana hjá öllum hinum.“ Stefnan virð­ist ein­ungis vera sú að halda út. „Viðvera, þaul­seta, mark­miðin eru nú talin í árum setið ekki út frá þjón­ustu við almenn­ing.“ 

Launa­fólk hafi ekki lengur trú á því að á Íslandi sé þjón­andi for­ysta sem stýri þjóð­ar­skút­unni, skapi far­veg sam­hjálpar og skiln­ing á mik­il­vægi þess að kjara­bætur séu sniðnar að þörfum fólks­ins í land­inu gegnum vel­ferð­ar­kerfið. „Rík­is­stjórnin sér ekki sam­hengi hlut­anna, eða vill ekki sjá það. Þau tala eins og óbreyttir áhorf­endur eða álits­gjafar þegar þau eru spurð hvað gera skuli — lýsa bara aðstæðum, láta eins og þau séu ekki lyk­il­ger­endur í sam­fé­lag­inu — eins og þau hafi enga stjórn.“ 

Að mati Kristrúnar á sitj­andi rík­is­stjórn engin svör né stefnu, ráð­herrar hennar bendi bara á aðra og taki enga ábyrgð sjálfir. „Það er bent á fólkið í land­inu — sem verður víst bara að eyða minna — og bent á Seðla­bank­ann, sem á víst einn að bera ábyrgð á verð­bólg­unni sam­kvæmt nýj­ustu kenn­ingum for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. Hver ber þá ábyrgð á stjórn efna­hags­mála? Ber rík­is­stjórnin enga ábyrgð? Bera ráð­herr­arnir enga ábyrgð? Þetta er algjör upp­gjöf — þau láta eins og þau sé bara ein­hverjir áhorf­endur í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar. Sama rík­is­stjórn og sömu ráð­herrar og stærðu sig af því bara núna fyrir nokkrum mán­uðum að nú væri hafið nýtt lág­vaxta­tíma­bil í íslenskri hag­sögu. Og töl­uðu eins og þau ein væru fær um að tryggja efna­hags­legan stöð­ug­leika.“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem hefur nú mælst stærsti flokkur lands­ins í tveimur könn­unum Gallup í röð og nýtur nú stuðn­ings 24 pró­sent aðspurðra, segir að flokkur hennar ætli þó ekki að skil­greina sig út frá þeirri rík­is­stjórn sem hann ætli að leysa af hólmi. „Við munum ekki vera bara „ekki þau“ — það dugar ekki til — við skil­greinum okkur út frá þeirri fram­tíð sem við viljum skapa á Íslandi fyrir fólkið sem hér býr.“

Mark­miðið sé að sækja ánægju- og von­ar­fylgi sem veiti Sam­fylk­ing­unni svo umboð til breyt­inga. Í þeirri veg­ferð muni flokk­ur­inn ekki elta skoð­ana­kann­anir né þá sem hafa hæst hverju sinni á sam­fé­lags­miðlum. „Verk­efnin eru miklu stærri en svo að við getum látið kippa okkur út af lag­inu vegna frétta­hrings­ins hverju sinni — okkar athygli þarf að vera á lang­tíma­verk­efn­inu; stóru breiðu vel­ferð­ar­mál­unum og skipu­lagn­ingu efna­hags- og atvinnu­mála. Við stjórnum ekki land­inu með hneykslun, eða óánægju að leið­ar­ljósi, það eru engar skyndi­lausnir og við þurfum að nota alla okkar athygli í að byggja upp trú­verð­ugan mál­flutn­ing með raun­veru­legum aðgerðum á bak­við.“

Þriggja manna hópar munu leiða mótun forgangsmála

Kristrún kynnti svo nýjar áherslur í mál­efna­starfi flokks­ins. Þær ferla í sér að því verður skipt upp í tvennt. „Annars vegar eru ákveðin for­gangs­mál, sem stjórn hefur valið og sem flokk­ur­inn mun fara í af fullum þunga. Þar verðum öllum boðið að koma með og leggja sitt af mörkum en þriggja manna stýri­hópur mun halda utan um og leiða vinn­una. Við tökum eitt for­gangs­mál í einu — yfir ákveð­inn tíma — og útkoman á að vera verk­lýs­ing fyrir næstu rík­is­stjórn; for­gangs­röðun og skýr póli­tík; verk­efna­listi frá fyrstu 100 dög­unum og upp í fyrstu tvö kjör­tíma­bil í rík­is­stjórn undir for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar.“

Fyrsta for­gangs­málið sem ráð­ist verður í eru heil­brigð­is­mál og öldr­un­ar­þjón­usta. Formaður í stýri­hópnum um það er Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður vel­ferð­ar­ráð­herra og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­al­ans, sem hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri á Land­spít­ala og er nú skrif­stofu­stjóri og leið­togi öldr­un­ar­mála hjá vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar. Með henni í stýri­hópnum verða þau Guðný Birna Guð­munds­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­nesbæ og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, og Sindri Krist­jáns­son frá Akureyri, sem hefur starfað sem sér­fræð­ingur hjá Lyfja­stofnun og í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. 

Vinnu við heil­brigðis- og öldr­un­ar­málin á að ljúka fyrir flokks­stjórn­ar­fund næsta haust og þá á að ráð­ast í næsta for­gangs­mál: Atvinnu og sam­göngur. Frá vor­inu 2024 verður ráð­ist í þriðja og síð­asta for­gangs­málið: Húsnæðis- og kjara­mál — sem stefnt er á að taka fyrir fram að næsta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem verður haustið 2024. 

Að óbreyttu verður svo kosið til þings árið 2025.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Hefur maður heyrt þennan frasa áður🤬. Samfylkingin ætlar að leiða ríkisstjórn en ekki stjórna með „hneykslun eða óánægju að leiðarljósi“
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár