„Hábölvað fyrir heimilin í landinu, blóðugt fyrir fyrirtækin og alvarlegur áfellisdómur yfir ríkisstjórninni“

Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina í kjöl­far vaxta­hækk­ana Seðla­bank­ans. Þing­maður Við­reisnar segir m.a. að hafa beri í huga næst þegar lands­menn versli í mat­inn eða taki bensín að land­inu sé stjórnað af „fólki sem hefur með aðgerða­leysi bein­línis unnið gegn því að þessar vörur lækki“.

„Hábölvað fyrir heimilin í landinu, blóðugt fyrir fyrirtækin og alvarlegur áfellisdómur yfir ríkisstjórninni“
Hækkunin stjórn­ar­flokk­unum að kenna Sigmar segir að Íslend­ingar ættu að muna þegar við­skipta­bank­arnir hækka vext­ina á hús­næð­is­lán­unum á næst­unni að sú hækkun skrif­ist á stjórn­ar­flokk­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar segir að rík­is­stjórnin sé stödd í öðrum veru­leika en allir hinir. Hún spili sóló og skori sjálfs­mörk. „Hún er að tapa leiknum af því að hún ræður ekki við verk­efnið.“

Þetta kom fram í máli hans í ræðu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Ástæða þess­ara orða er vaxta­hækkun Seðla­bank­ans en Heim­ildin greindi frá því í morgun að vext­irnir væru nú komnir í 6,5 pró­sent. 

Þetta er í ell­efta sinn í röð sem bank­inn hækkar vexti en þeir voru 0,75 pró­sent í maí 2021. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­­­­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinn­u­líf, með til­heyr­andi hærri greiðslu­byrði fyrir heim­ili í land­inu. Eftir nýj­ustu stýri­vaxta­hækk­un­ina er við­búið að slíkir vextir muni hækka enn á ný.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands segir að þótt tekið hafi að hægja á hús­næð­is­mark­aði og alþjóð­leg verð­bólga hafi minnkað lít­il­lega sé verð­bólgu­þrýst­ingur enn mik­ill og verð­hækk­anir á breiðum grunni. Verð­bólgu­horfur hafi versnað frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og þótt verð­bólga hafi lík­lega náð hámarki taki lengri tíma að ná henni niður í verð­bólgu­mark­mið bank­ans en áður var talið. 

Ríkisstjórnin stödd í öðrum veruleika en aðrir

Sigmar sagði á þingi í dag að sjálf­sagt vissu flestir að þessi vaxta­hækkun myndi ger­ast. 

„Að þessu sinni er það alveg kýr­skýrt hjá bank­anum að stjórn­völd bera beina ábyrgð á hækk­un­inni nú en einnig er vísað í nýgerða kjara­samn­inga í rök­stuðn­ingi. Við í þessum sal getum að sjálf­sögðu haft skoðun á því hvernig aðilar vinnu­mark­að­ar­ins semja sín á milli en það er ekki okkar hlut­verk að segja þeim fyrir verkum. Okkar hlut­verk í bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni og háum vöxtum eru ákvarð­anir sem við tökum í þessum sal. Hér getum við haft bein áhrif á rík­is­fjár­málin og beitt þeim með skyn­sam­legum hætti fyrir fólkið í land­inu. 

Því tæki­færi var hins vegar glutrað niður fyrir ára­mót í fjár­laga­gerð­inni þegar rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir lögð­ust gegn öllum til­raunum og varn­að­ar­orðum okkar í Viðreisn og til­lögum um að auka aðhaldið og stöðva stjórn­lausan útgjalda­vöxt­inn. Fjöl­margar til­lögur voru lagðar fram sem hefðu unnið með Seðla­bank­anum í þessu verk­efni. Allar voru þær felldar, sem var sagt vera af prinsipp­á­stæðum. Þess í stað, eins og seðla­banka­stjóri orð­aði það, hefur aðhald í rík­is­fjár­málum minnkað frá því sem það var áður. Þetta er auð­vitað hábölvað fyrir heim­ilin í land­inu, blóð­ugt fyrir fyr­ir­tækin í land­inu og alvar­legur áfell­is­dómur yfir rík­is­stjórn­inni,“ sagði hann. 

Spurði Sigmar í hvaða stöðu Íslend­ingar væru í þess­ari bar­áttu þegar æðstu ráða­menn Seðla­bank­ans segðu það berum orðum að rík­is­stjórnin væri stödd í öðrum veru­leika en bank­inn og segðu fullum fetum með fót­bolta­lík­ingu að hún hefði spilað sóló og skorað sjálfs­mark. „Það er auð­vitað ekk­ert nýtt að það vanti stundum jarð­teng­ingu í Stjórn­ar­ráðið en að fá þessa fag­legu hag­fræði­legu grein­ingu frá Seðla­bank­anum á rík­is­stjórn­inni er óneit­an­lega svo­lítið kröft­ugt. Við skulum hafa það í huga næst þegar við verslum í mat­inn eða tökum bensín að land­inu er stjórnað af fólki sem hefur með aðgerða­leysi bein­línis unnið gegn því að þessar vörur lækki. Við ættum líka að muna þegar við­skipta­bank­arnir hækka vext­ina á hús­næð­is­lán­unum að sú hækkun skrif­ast á stjórn­ar­flokk­ana. Við erum jú með rík­is­stjórn sem er stödd í öðrum veru­leika en við hin. Hún spilar sóló og skorar sjálfs­mörk. Hún er að tapa leiknum af því að hún ræður ekki við verk­efnið.“

Kyndi undir verðbólguna með fjárlögum

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði vaxta­hækkun einnig að umtals­efni undir sama lið á þing­inu í dag. „Í dag sáum við í enn eitt skiptið stýri­vaxta­hækk­anir hjá pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans um 0,5 pró­sent, hækkun sem bitnar lóð­beint á heim­ilum í land­inu. Pen­inga­stefnu­nefnd lýsti því líka yfir í morgun að verð­bólgu­horfur hefðu versnað frá síð­asta fundi. For­svars­menn verka­lýðs­fé­laga segja í dag við fjöl­miðla að stýri­vaxta­hækk­unin sé ein­fald­lega hrylli­leg tíð­indi og rot­högg fyrir lán­tak­endur, rot­högg fyrir fólkið í land­inu sem skuldar og að hækk­unin nú muni þýða að fólk geti ekki ráðið við sínar afborg­anir. Það er orðið öllum ljóst að rík­is­stjórnin kynti undir verð­bólg­una með fjár­lögum þar sem gjöld á almenn­ing voru hækkuð og engar raun­veru­legar tekjur sóttar þar sem þenslan er í raun og veru.“

Sagði hún að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hefðu verið mjög yfir­lýs­ingaglaðir þegar fjár­laga­frum­varpið var kynnt í haust þar sem þeir sögðu að fjár­lögin myndu vinna gegn verð­bólgu. Rósa Björk telur að það hafi aldeilis ekki orðið úr. 

Bitnar á heim­ilum lands­insRósa Björk segir að vaxta­hækk­unin bitni „lóð­beint á heim­ilum í land­inu“.

„Fjár­laga­frum­varp árs­ins 2023 gerði í upp­hafi ráð fyrir 89 millj­arða halla­rekstri þrátt fyrir þenslu, kraft­mik­inn hag­vöxt og hátt atvinnustig. Mik­il­vægum fjár­fest­ingum var hins vegar frestað og loks voru öll krónu­tölu­gjöld rík­is­ins skrúfuð algjör­lega upp í topp. Eftir breyt­ingar á fjár­lög­unum var hall­inn kom­inn upp í 120 millj­arða og það er óábyrgt að sækja ekki tekjur á móti þessum vax­andi halla. Rík­is­stjórnin þarf að reka aðra rík­is­fjár­mála­stefnu sem vinnur gegn verð­bólgu en ekki grípa til til­vilj­ana­kenndra aðgerða sem bitna svo á heim­ilum í land­inu eða hjálpa alla vega ekki heim­ilum í land­inu að bregð­ast við því ástandi sem nú ríkir,“ sagði hún. 

Boltarnir detti dauðir niður eða endi í eigin marki

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar lét sig ekki vanta í umræður um vaxta­hækk­anir á þingi í dag en hún sagði að með fjár­lögum árs­ins 2023 hefði rík­is­stjórnin slegið enn eitt Íslands­metið í eyðslu, skilað enn og aftur fjár­lögum sem ykju rík­is­út­gjöld um tugi millj­arða og halla. 

Rík­is­stjórnin illa und­ir­búinHanna Katrín segir að rík­is­stjórnin hafi tölu­vert fleiri bolta til að nota en gall­inn sé að hún kom ein­fald­lega illa und­ir­búin til leiks.

„Í kjöl­farið hækk­aði verð­bólga í jan­úar í 9,9 pró­sent hér á landi, þvert á þróun ann­ars staðar í Evrópu. Um þessa stöðu hefur ríkt nokkuð hávær þögn á stjórn­ar­heim­il­inu ef frá eru taldar til­raunir til að koma sök­inni yfir á almenn­ing í formi skila­boða um að fólk eyði bara miklu, sé ekki að hjálpa, skilji ekki vand­ann, skilji ekki að við erum öll í þessu saman. Málið er að við erum ekki öll í þessu verk­efni saman að hafa hemil á verð­bólg­unni sem er, svo vitnað sé í orð hag­fræð­ings­ins Miltons Fried­mans, einn helsti skað­valdur í hverju þjóð­fé­lagi. Friedman hló að þeirri full­yrð­ingu að neyslu almenn­ings væri um að kenna eða laun­þega­hreyf­ing­unni eða fyr­ir­tækjum. Stjórn­völd beri ábyrgð­ina og helsta verk­efni þeirra á tímum sem þessum sé að hafa hemil á rík­is­út­gjöldum, að eyða ekki um efni fram. 

Með stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í dag standa meg­in­vextir bank­ans í 6,5 pró­sent. Þetta eru átt­földun frá því í maí 2021, nokkuð sem er farið að þyngja róð­ur­inn veru­lega hjá fjöl­mörgum heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins. Hlutverk Seðla­bank­ans er að hafa hemil á verð­bólgu með vaxta­á­kvörð­unum. Þetta er í raun eini bolti bank­ans í þess­ari keppni en yfir­stand­andi keppn­is­tíma­bil í bar­átt­unni við þennan lands­ins forna fjanda hefur nú staðið í um það bil eitt og hálft ár. Rík­is­stjórnin hefur tölu­vert fleiri bolta til að nota en gall­inn er að hún kom ein­fald­lega illa und­ir­búin til leiks. Und­ir­bún­ings­tíma­bilið var illa nýtt, leik­skipu­lagið er lélegt, sam­spilið svona og svona og nið­ur­staðan eftir því. Bolt­arnir detta dauðir niður eða enda í eigin marki. Og aðhald í rík­is­fjár­málum komst ekki einu sinni í lið rík­is­stjórn­ar­innar,“ sagði hún. 

Lýsti Hanna Katrín eftir „afreks­stefnu gegn verð­bólgu og sam­hentu, vel völdu liði sem á séns í að vinna þessa keppni fyrir okkur“.

Stjórnmálamenn geti ekki látið Seðlabankann einan um að sporna gegn verðbólgu

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tjáði sig um vaxta­hækk­an­irnar á Facebook í dag en þar segir hann að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur kyndi undir verð­bólgu með óábyrgri stefnu í rík­is­fjár­málum. 

„Þetta er ein af orsökum vaxta­hækk­un­ar­innar sem kynnt var í dag eins og komið hefur skýrt fram í fréttum. Við jafn­að­ar­menn vöruðum við þessu í hverri þing­ræð­unni á fætur annarri í haust. Seðla­bank­inn var­aði við og ótal hags­muna­að­ilar vör­uðu við en rík­is­stjórnin hlust­aði ekki. Fjár­laga­frum­varp árs­ins 2023 gerði í upp­hafi ráð fyrir 89 millj­arða halla­rekstri þrátt fyrir þenslu, kraft­mik­inn hag­vöxt og hátt atvinnustig. 

Meðan fjár­lögin voru til umfjöll­unar á vett­vangi Alþingis komu fram nýjar og dekkri verð­bólgu­spár og stýri­vextir voru hækk­aðir enn frekar. En stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Alþingi skeytti engu um þessi hættu­merki heldur þvert á móti. Þau gerðu breyt­ingar á frum­varp­inu sem fólu í sér útgjalda­aukn­ingu upp á tugi millj­arða til við­bótar án þess að aflað væri nýrra tekna til að vega á móti þenslu­á­hrifum útgjald­anna – fóru með hall­ann upp í 120 millj­arða.“

Ömur­legar afleið­ingarJóhann Páll telur að ef rík­is­fjár­málin rói ekki í sömu átt og pen­inga­stefnan muni vextir ein­fald­lega hald­ast háir eða hækka enn frekar með ömur­legum afleið­ingum fyrir skuld­sett heim­ili

Jóhann Páll segir að stýri­vaxta­hækk­unin í dag eigi sér ýmsar ástæður og þetta mis­ræmi milli tekna og gjalda í rík­is­bú­skapnum sé ein af þeim. 

„Stjórn­mála­menn geta ekki látið Seðla­bank­ann einan um að sporna gegn verð­bólgu. Ef rík­is­fjár­málin róa ekki í sömu átt og pen­inga­stefnan munu vextir ein­fald­lega hald­ast háir eða hækka enn frekar með ömur­legum afleið­ingum fyrir skuld­sett heim­ili. 

Við verðum að skipta um kúrs. Við jafn­að­ar­menn munum halda áfram að tala fyrir ábyrgri rík­is­fjár­mála­stefnu þar sem vel­ferð­ar­kerf­inu er beitt með mark­vissum hætti til að styðja við heim­ili sem þurfa á stuðn­ingi að halda og unnið er gegn þenslu með sann­gjörnum sköttum á hæstu tekjur og hval­reka­gróða,“ skrifar hann. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þegar fræðihroki, menntahroki og valdahroki toppar góð sannreynd vinnubrögð þar sem menn sanna mál sitt með staðreyndum ekki blaðri... þá fáum við þessa vitleysu... vaxtahækkanir hækka allt og flytja eigur þeirra eignalitlu til hinna ríku... og hafa nákvæmlega engin tölfræðilega sannanleg áhrif á peningarmagn í umferð... því þeir kunna ekki raunveruleikann bara excelinn. Þeir sem verða að taka lán fjölgar og þeir sem græða á lánum og lántökum velta þessu bara áfram. Enginn munur á Saruman og Sauron.. nema flottari föt.

    Ó og Due diligence, KYC og SMT eiga líka við eftirlitsskylda aðila og hefðu komið í veg fyrir massíft peningaþvætti hjá Seðló. Ekki svo að greiningaraðilar né svokallaðir rannsakendur geti farið á klósettið án þess að sóða það allt út þó ljósið sé kveikt... í slíkum málum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár