Telur hugmyndafræði Eflingar úrelta – „Snýst um átök átakanna vegna“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guðrún Haf­steins­dóttir, bland­aði sér í umræður um kjara­mál á þing­inu í dag. Hún telur að „ein­föld og úrelt mynd“ sé dregin upp varð­andi sam­band og sam­skipti launa­fólks og atvinnu­rek­enda.

Telur hugmyndafræði Eflingar úrelta – „Snýst um átök átakanna vegna“
Von­brigði að samn­ingar náð­ust ekki Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist hafa orðið fyrir miklum von­brigðum þegar ekki tók­ust samn­ingar á milli Eflingar og SA. Mynd: Bára Huld Beck

„Sú kjara­deila sem við stöndum frammi fyrir snýst um heild­ar­sam­hengi hlut­anna. Sú hug­mynda­fræði sem Efling beitir hér er úrelt og snýst um átök átak­anna vegna. Þegar farið er af stað með það að leið­ar­ljósi er ekki von á góðri nið­ur­stöðu.“

Þetta sagði Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Kjaramál hafa verið ofar­lega á baugi í umræð­unni síð­ustu vikur og hafa deilur Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) verið hvað mest áber­andi. Heim­ildin rekur atburða­rás­ina í umfjöllun sinni í dag.

Vonbrigði að ekki tókust samningar á milli SA og Eflingar

Rifjaði þing­mað­ur­inn upp á Alþingi í dag að í des­em­ber hefðu fréttir borist af því að kjara­samn­ingar hefðu náðst við meiri­hluta launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði. 

„Við höfðum ríka ástæðu til að ætla að nú tæk­ist með sam­stilltu átaki að ná skyn­sam­legri lend­ingu á vinnu­mark­aðnum í heild og þannig vinna okkur hægt en örugg­lega í átt að því að ná niður verð­bólgu og vöxtum. Heild­ar­hags­munir voru í for­gangi, hags­munir sem skipta máli við að reka hér sam­fé­lag á skyn­sam­legan og heil­brigðan hátt. 

Það urðu því mikil von­brigði að ekki tók­ust samn­ingar á milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og Eflingar. Þar með sátu lið­lega 20.000 félags­menn Eflingar eftir og þeir hafa ekki notið kjara­bóta til jafns við aðra á almennum vinnu­mark­aði, kjara­bóta sem félags­menn þurfa á að halda,“ sagði Guðrún.

„Einföld og úrelt mynd“ dregin upp varðandi samband launafólks og atvinnurekenda

Þá sagð­ist Guðrún óhjá­kvæmi­lega leiða hug­ann að því hvort það hefði verið raun­veru­legur vilji for­ystu Eflingar að ná samn­ingum fyrir sitt fólk. 

„Ég get ekki betur séð en að hug­mynda­fræðin snú­ist um átök átak­anna vegna. Einföld og úrelt mynd er dregin upp varð­andi sam­band og sam­skipti launa­fólks og atvinnu­rek­enda. Ég leyfi mér að full­yrða að sú orð­ræða sem Efling hefur uppi varð­andi það sam­band sé í hróp­andi and­stöðu við raun­veru­leik­ann nema í algerum und­an­tekn­ing­ar­til­fellum, enda hafa kann­anir sýnt að flest fólk ber mikið traust til sinna vinnu­veit­enda og nýir kjara­samn­ingar í vetur voru alls staðar sam­þykktir með yfir­gnæf­andi meiri­hluta atkvæða.

Sú kjara­deila sem við stöndum frammi fyrir snýst um heild­ar­sam­hengi hlut­anna. Sú hug­mynda­fræði sem Efling beitir hér er úrelt og snýst um átök átak­anna vegna. Þegar farið er af stað með það að leið­ar­ljósi er ekki von á góðri nið­ur­stöðu,“ sagði hún að lokum. 

Efling enn engin svör fengið hjá sáttasemjara

Heim­ildin greindi frá því fyrr í dag að rík­is­sátta­semj­ari hefði fyr­ir­skip­að Efl­ingu að af­henda kjör­skrá þeg­ar hann kynnti stétt­ar­fé­lag­inu miðl­un­ar­til­lögu. Dag­inn eft­ir hefði hann hins veg­ar sagt að að­eins hefði ver­ið um til­mæli að ræða. Áð­ur en Efl­ing gat brugð­ist við hafði rík­is­sátta­semj­ari svo stefnt fé­lag­inu fyr­ir dóm­stóla og kraf­ist af­hend­ing­ar kjör­skrár. 

Enn fremur kemur fram hjá Heim­ild­inni að Efling hefði engin svör fengið frá rík­is­sátta­semj­ara við ítrek­uðum kröfum sínum um að fá afhent þau gögn og yfir­lit um sam­skipti rík­is­sátta­semj­ara í aðdrag­anda þess að hann lagði fram miðl­un­ar­til­lögu í deilu stétt­ar­fé­lags­ins við SA. 

Hið sama væri að segja um ítrekuð erindi til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra er lúta að stjórn­sýslu­kæru Eflingar og þeirrar kröfu að rétt­ar­á­hrifum miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara verði frestað meðan stjórn­sýslu­kæran er til með­ferðar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (12)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Mummi Týr skrifaði
    Sorglegt að lesa þetta og að þessi hugsanagangur skuli vera inn á þingi er mér fyrirmunað að skilja... jú, alveg rétt, fólk kaus þetta, silly me :)
    1
  • òtrùlegt bullid sem kemur frà mörgum flokksmönnum sjálfstæðisflokksins. sjálfstæðisflokkurinn aetti frekar ad heita sjálfsstjórnarflokkurinn eda sjálfræðiflokkurinn .
    ì Frakklandi ,Thyskalandi,Englandi og fleirum löndum Evròpu eru I dag verkföll.

    Verfall er thad eina sem mun vekja fòlkid.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Hún er ekki bara atvinnurekendai í ísgerð í Hveragerði sem hefur félagsfólk Eflingar við störf heldur er hún einnig fyrrum forystumaður í samtökum atvinnurekenda. M.ö.o. aðili sem aðhyllist brauðmolakenninguna. Á síðasta ári hélst kaupmátturlaunafólks alls ekki í við verðbólguna í landinu. Sérstaklega hefur láglaunafólk farið illa út úr þeirri þróun sem ekki nýtur markaðslauna.
    2
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Mætti taka betur á hlutunum hér, Guðrún er atvinnurekandi á þingi, því í starfi fyrir samfélagið. Hefði viljað að greinin væri gagnrýnin á aðferðafræði elítunnar, sem vill meiri og meiri gróða og vill því ekki borga mannsæmandi laun
    3
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Eru verkföll úrelt að mati Guðrúnar? Eða er það úrelt að hafa sjálfstæðan samningsrétt í stað þess að taka upp samning sem aðrir hafa gert?
    2
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Hún lokar augunum, fast!
    3
  • Oddur Ingi skrifaði
    Afskaplega þreytt retórík að Eflingarfólk skilji ekki "heildarmyndina" eða "heildarsamhengið" og vilji bara "átök átakanna vegna."

    Svipað uppi á teningnum hjá Konráði efnahagsráðgjafa SA í annarri grein.

    Þetta er vísvitandi niðrandi og meiðandi orðræða og þessu fólki veitir ekki af að víkka aðeins sinn sjóndeildarhring.

    Auðvitað finnst atvinnurekendum bara fínt að borga fólki laun undir framfærsluviðmiðum. Skilja bara ekkert hvaða vesen þetta er.
    5
  • Siggi Rey skrifaði
    Þessi Guðrún er bara vesæll sjálfstæðismaður og tala sem slík. Eins og henni ber að gera samkvæmt vilja Vellýgna Bjarna. þessi Guðrún ætti að hundskammast sín fyrir að niðurlægja kynsystur sína sem vart hafa í sig og á, á sultarlaunum fyri mikla vinnnu og þurfa að leigja á heilsjúkum leigumarkaði. Sjáið þið þessa konu Í anda þurfa að þrífa 50 hótel herbergi á vakt. Það er mér til efs. Þessi pistill hér að ofan lýsir kvenfyrilitningu og hroka.
    5
  • Konráð Gíslason skrifaði
    ,, Við viljum þræla!" þetta er hugsunarhátturinn hjá henni og hennar líka.
    5
  • Guðjón Halldórsson skrifaði
    Einfalt - Engin laun fyrir 100% starf undir framfærsluviðmiðum !
    4
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    ...hér er ekkert hlutleysi í þessari frétt þar sem GH og hennar fjölsk eru atvinnurekendur.....það sem GH áttar sig ekki á að gamalgróin ofbeldis og eineltismynstur sem hún og hennar flokkur hefur beitt almennig frá upphafi lýðræðis er að verða öllum ljós.......
    8
  • HSG
    Helga Salbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Það eru skiljanleg vonbrigði hjá henni þegar fólk vill ekki þiggja þær brauðmylsnur sem falla af yfirfullu borði auðvaldsins :(
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár