Bakabaka

Sófa­kartaflan heldur áfram að stara á sjón­varpið og rýna þannig í heim­inn – og sjón­varps­efni.

Bakabaka

Jahérna. Bara komin önnur þátta­röð af Bake Squad? Skyldu þau vera jafn­peppuð og síð­ast? Almátt­ugur minn, já. Mikið svaka­lega eru þau enn þá spræk. Þetta minnir mig á þegar ég vann hjá ÍTR og hataði fólk. Ekki allt fólk. Bara hresst fólk. Ég sat í mót­tök­unni eins og skol­hærð Wednesday Addams og rang­hvolfdi aug­unum framan í gesti og gang­andi, sér í lagi ef ein­hver dirfð­ist að brosa eða reyndi að segja eitt­hvað snið­ugt. Einn af þeim fáu sem ég lét ekki fara í taug­arnar á mér var mein­dýra­eyðir­inn sem kom og veiddi rott­una í kjall­ar­anum á Tónabæ. Samúð hans með dauða nag­dýr­inu var hjart­næm.

Bök­un­ar­gengið er ekki hjart­næmt. Fjórir þátt­tak­endur með sæt­inda­sér­þekk­ingu eru sam­an­komnir á gervi­á­horf­endapöllum. Fyrir framan þau stendur kona sem gengur undir nafn­inu Chef Christine eða Krissa kokkur. Hennar starf er að hvetja sér­fræð­ing­ana áfram, redda þeim ein­hverju dóti eins og köku­skrauts­fall­byssum og láta þetta líta út eins og allt sé ekki fyr­ir­fram ákveðið. Í hverjum þætti birt­ist Krissa með ein­stak­linga sem þjást af eft­ir­rétta­skorti og bök­un­ar­gengið reynir að hjálpa þeim með því að gera besta köku­lista­verkið fyrir veislu skjól­stæð­ing­anna. Gengið eru eft­ir­far­andi aðilar: Súkkulað­i­dreng­ur­inn Gonzo frá Pata­góníu. Hann er virki­lega pepp­aður ein­stak­lingur. Frakkinn Christophe er syk­ur­gerð­ar­sjón­hverf­inga­meist­ari með þykkan franskan hreim. Hann er það hress að ég efast um að hann hafi nokkurn tím­ann búið í Frakk­landi.

Maya-Camille, ég veit ekki í hverju hún sér­hæfir sig öðru en ofmetn­aði og tíma­stjórnun, hún er ansi bísperrt af peppi. Svo er það köku­drottn­ingin sjálf, Ashley hin eld­hressa. Ég fæ á til­finn­ing­una að hún hafi verið best í djass­ball­ett í æsku en tekið u-beygju þegar ung­lings­árin hellt­ust yfir. Hún hefur á sér eins konar Kaffi­bars­blæ.

En hvaðan kemur allt þetta hatur sem ég spúi nú yfir þennan dálk? Æi, ætli ég hafi ekki orðið fyrir von­brigðum með þætt­ina. Mig minnti að þetta hefði verið skemmti­legra. Er reiði ekki oft­ast önnur birt­ing­ar­mynd af sorg?

Þarf allan hress­leik­ann, stressandi tón­list­ina og innslög af bök­ur­unum að sveifla nammi á milli atriða? Ég skil ekki af hverju fólkið fær ekki bara að sýna hæfi­leika sína í friði. En það er ekki við fjór­menn­ing­ana að sakast. Einhver hærra settur, sem kemur að gerð þátt­anna (kannski Krissa kokkur) er með hópeflis­svip­una á lofti og er sífellt að krefja þetta sóma­fólk um meira pepp og ekki vilja þau missa vinn­una. Ég sé það í aug­unum á þeim að þau vilja bara bræða súkkulaði, smyrja kökur með kremi og fá að ein­beita sér. Ekki keppa við klukk­una, ekki taka þátt í nið­ur­lægj­andi en upp­lýsandi sam­tölum við Krissu kokk til að treg­ustu áhorf­end­urnir skilji hvað sé um að vera, ekki vera hafnað af mæðrum fjórtán ára barna þegar þær velja ekki súkkulaði­eld­flaug­ina sem þau eyddu mörgum klukku­tímum í að gera. Munurinn á Bake Squad og öðrum bakst­ur­skeppnum er sá að þetta er ekki hefð­bundin útslátt­ar­keppni. Hér eru alltaf sömu fjóru kepp­end­urnir og einu verð­launin sem eru í boði er pol­aroid-mynd af sig­ur­veg­ar­anum. Í lokin sam­gleðj­ast þau og gíra sig upp í að mæta æst til leiks í næstu viku.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sófakartaflan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár