„Hinn svokallaði sveigjanleiki leikur mörg heimilin grátt“

Þing­maður Við­reisnar spyr hvers vegna almenn­ingur þurfi einn að taka á sig kostn­að­inn af krón­unni. Hún segir að „hinn svo­kall­aði sveigj­an­leiki“ leiki mörg heim­ilin grátt en á sama tíma hafi um 250 íslensk fyr­ir­tæki valið að yfir­gefa krón­una.

„Hinn svokallaði sveigjanleiki leikur mörg heimilin grátt“
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar fjall­aði um efna­hags­mál og krón­una í ræðu á Alþingi í dag. Mynd: Eyþór Árnason

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að það sé póli­tískt val að bjóða almenn­ingi örgjald­miðil sem valdi erf­iðri stöðu heim­il­anna. 

„Ég spyr mig að því hvers vegna ekk­ert er gert til að ráð­ast að rót vand­ans sem er íslenska örmyntin sem sveifl­ast með þeim hætti að það fram­kallar nán­ast sjó­veiki yfir þjóð­ina,“ sagði hún í pontu Alþingis en hún gerði efna­hags­mál á Íslandi að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins í dag. 

Þorbjörg sagði að mikil verð­bólga og örar vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans hefðu þyngt róður heim­il­anna mjög. 

„Það er stutt síðan að meiri hluti nýrra lána var óverð­tryggður en staðan í dag er að 86 pró­sent nýrra lána hjá bönk­unum eru verð­tryggð. Rík­is­stjórnin talar um að þessi sveigj­an­leiki sé góður fyrir heim­ilin en fyrir fólk sem upp­lifir það nán­ast sem áhættu­fjár­fest­ingu að ætla sér að eign­ast heim­ili er erfitt að taka undir,“ sagði hún. 

Kennir krónunni um háa vexti

Þorbjörg sagði að kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins um íslenskt lág­vaxta­skeið hefðu staðið í „heila fimm mán­uði“. 

„Þá var komið að næstu bylgju hins svo­kall­aða sveigj­an­leika. Verð­bólgan er auð­vitað veru­leik­inn víða um lönd núna og það er stað­reynd að verð­bólgan er víða hærri en hér á Íslandi, en vext­irnir á Íslandi eru marg­falt hærri en ann­ars staðar. Ástæðan fyrir því er ein­föld og það er gjald­mið­ill­inn okkar. Það er póli­tískt val að bjóða almenn­ingi örgjald­miðil sem veldur þess­ari stöðu. Ég spyr mig að því hvers vegna ekk­ert er gert til að ráð­ast að rót vand­ans sem er íslenska örmyntin sem sveifl­ast með þeim hætti að það fram­kallar nán­ast sjó­veiki yfir þjóð­ina.“

Fram kom í máli hennar að hún hefði fengið þær upp­lýs­ingar frá Seðla­bank­anum í lok árs að rúmur fjórð­ungur lán­tak­enda hefðu þá verið með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum. „Þetta eru þá þau heim­ili sem hafa tekið á sig rað­hækk­anir á vöxtum af fullum þunga. Við þennan hóp bæt­ast svo um 4.500 heim­ili sem eru með lán sem koma til end­ur­skoð­unar á þessu ári. 

Hinn svo­kall­aði sveigj­an­leiki leikur mörg heim­ilin grátt núna, en á sama tíma eru um 250 íslensk fyr­ir­tæki sem hafa valið að yfir­gefa krón­una og gera upp í öðrum gjald­miðli til að geta rekið fyr­ir­tæki sín á stöð­ugum grund­velli, laus við þessar sveiflur. Þessum fyr­ir­tækjum fjölgar ár frá ári. Hin stóra póli­tíska spurn­ing hlýtur þess vegna að vera: Hvers vegna þarf almenn­ingur einn að taka á sig kostn­að­inn af krón­unni?“ spurði hún að lokum. 

Verðtryggðu lánin geti „verið algjör lífsbjörg“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tal­aði um verð­tryggð og óverð­tryggð lán í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í fyrra­dag. Hann sagð­ist hafa verið tals­maður þess að fólk hefði frelsi til að velja á milli ólíkra kosta. „Það er til­fellið með verð­tryggð lán að þau bjóða lán­tak­and­anum upp á minni mán­að­ar­lega greiðslu­byrði, sér­stak­lega þessi dæmi­gerðu verð­tryggðu lán, sem getur verið algjör lífs­björg fyrir þá sem hafa tekið óverð­tryggt lán og eru núna að upp­lifa mikla hækkun á greiðslu­byrð­inni. 

Það er ástæðan fyrir því að við börð­umst fyrir því, Sjálf­stæð­is­menn á sínum tíma, að fella niður stimp­il­gjöldin af end­ur­fjár­mögnun slíkra lána, vegna þess að það væri ósann­gjarnt að ríkið ætti að hafa af því tekjur þegar fólk væri að koma sér í frekara skjól. Dæmin sem við vitum um úr fjár­mála­kerf­inu eru um það að margir hafi nýtt sér þennan kost. Ég verð að lýsa mik­illi furðu þegar ég heyri ítrekað hér í þing­sal að fólk vilji bara loka þessum dyrum, banna fólki að veita sér þessa björg. Og hvað á þá að gera í stað­inn?“ spurði ráð­herr­ann. 

„Hvað á þá að gera í stað­inn? spyr ég hátt­virtan þing­mann. Lengja í lán­inu, er sagt. Það er ekki að fara að bjarga neinum. Hérna er ein­fald­lega um að ræða úrræði sem hefur verið umdeilt lengi og getur gagn­ast og það er að gagn­ast núna. Eða er allt þetta fólk að taka rangar ákvarð­anir að mati hátt­virts þing­manns?“ spurði hann jafn­framt. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    „Það er tilfellið með verðtryggð lán að þau bjóða lántakandanum upp á minni mánaðarlega greiðslubyrði,......
    Meiri blekkingarnar hjá Bjarna. Það er aðeins fyrstu misserin sem mánaðarleg greiðslubyrði er minni á verðtryggðum lánum. Þegar frá líður verður greiðslubyrði óverðtryggðra lána miklu minni.
    Annars verður ekki hægt að fá húsnæðislán á viðunandi kjörum á Íslandi fyrr en við höfum tekið upp evru eftir inngöngu í ESB. Er það ekki löngu orðið ljóst?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár