Félag Björgólfs Thors í Lúxemborg stærst í nýja miðbænum í Þorlákshöfn

Félag í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­festis á verk­taka­fyr­ir­tækið sem stendur að nýjum miðbæ í Þor­láks­höfn. Sam­komu­lag við fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors var keyrt í gegnum stjórn­kerfið í Ölfusi af meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar í vor og er skipu­lags­vinna nú í fullum gangi. Sveit­ar­stjórn­ar­menn í minni­hlut­anum í Ölfusi eru gagn­rýnir á með­ferð máls­ins.

Félag Björgólfs Thors í Lúxemborg stærst í nýja miðbænum í Þorlákshöfn

Nýi mið­bær­inn í Þor­láks­höfn á Suð­ur­landi verður byggður af verk­taka­fyr­ir­tæki sem er í meiri­hluta­eigu félags í Lúx­em­borg sem Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir, og tveir við­skipta­fé­lagar hans, eiga. Félagið heitir BAT Real Estate S.à.r.l og er eig­andi meiri­hluta í Fram­kvæmda­fé­lag­inu Arn­ar­hvoli sem til stendur að byggi mið­bæ­inn.

For­svars­menn Arn­ar­hvols hafa á síð­ustu mán­uðum kynnt hug­myndir um upp­bygg­ing­una fyrir sveit­ar­stjórn­ar­mönnum í Ölfusi eftir að skrifað var undir sam­komu­lag um verk­efnið í maí síð­ast­lið­inn. Lúx­em­borgska félagið á 80 pró­sent í Arn­ar­hvoli en fram­kvæmda­stjóri verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins, Karl Þrá­ins­son, á 20 pró­sent á móti því. 

Samkvæmt nið­ur­stöðu Evr­ópu­þings­ins frá árinu 2019 er Lúx­em­borg eitt af þeim fimm löndum í Evrópu sem hefur „öll ein­kenni skatta­skjóls“. Evr­ópu­þingið ákvað þá að „nafn­greina“ og „kalla skömm yfir“ fimm Evr­ópu­ríki sem öll hafa ein­kenni skatta­skjóla. Hin ríkin voru Malta, Holland, Írland og Kýpur. 

,,Þeir aðilar sem eru á bak við þetta fyr­ir­tæki eru auð­vitað með …
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár