Eigandi Mandi ákærður fyrir líkamsárás: „Hann sparkaði í magann á mér og sló mig í höfuðið, ítrekað“

Hlal Jarah, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Mandi hefur verið ákærður fyrir að ráð­ast með bar­smíðum á Kefsan Fatehi á annan dag jóla 2020. Upptökur sýna Hlal slá Kefsan í höf­uðið og sparka í hana. Sjálf lýsir hún ógn­unum, morð­hót­unum og kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Hlal og manna honum tengdum.

Eigandi Mandi ákærður fyrir líkamsárás: „Hann sparkaði í magann á mér og sló mig í höfuðið, ítrekað“
Glímir við alvar­leg eft­ir­köst Kefsan hefur eftir árás­ina glímt við áfallastreitu og mik­inn kvíða, svo mik­inn að hún hefur meðal ann­ars þurft að fá fylgd í tíma í Háskóla Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hann spark­aði í mag­ann á mér og sló mig í höf­uðið, ítrekað. Síðan henti hann mér út á götu.“

Þannig lýsir Kefsan Fatehi, íranskur meist­ara­nemi við Háskóla Íslands, árás sem hún varð fyrir á annan dag jóla árið 2020. Árás­armað­ur­inn var Hlal Jarah, eig­andi hins vin­sæla sýr­lenska veit­inga­staðar Mandi. Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gaf út ákæru á hendur Hlal í júní síð­ast­liðnum og var málið þing­fest í sept­em­ber­mán­uði. Beðið er ákvörð­unar dóm­ara um hvenær aðal­með­ferð geti haf­ist.

Kefsan hafði um þriggja mán­aða skeið búið á efri hæð húss að Veltu­sundi 3b, þar sem Mandi er til húsa á neðri hæð­inni. Á efri hæð­inni er rekið gisti­hús, sem kallað er Hótel Mandi af þeim sem þar búa. Búseta Kefsan á Hótel Mandi gekk ekki átaka­laust fyrir sig og lýsir hún áreiti af hálfu Hlal og fleiri manna, hót­unum, ill­mælgi og kyn­ferð­is­legum til­burðum, bæði í skýrslu­tökum hjá lög­reglu og í við­tali við Stundina. …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Theresa Arnadottir skrifaði
    Vissi ekkert um þennan stad ne hef heyrd um þennan stad, enn gott vita, þakklat eg sja þessar frett, þvi eg mun aldrei fara a svona stad sem beiti ofbeldid, hotun og annad slikt, ogedslegt af honum, og þeim mönnum sem stodu med honum i þessum ofbeldid gagnvart henni. Kefs­an Fatehi vid stöndu med þer. og eg se margir adri herna lika standa med þér.
    4
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Fer aldrei inn á þennan stað aftur , hvaða vandamál er hjá lögreglu vorri, eru þeir alveg mattlausir gagnvart svona hrottum?
    3
  • *
    *BU skrifaði
    Þessi maður er algjör narsisti og ofbeldismaður 👈Ég skil ekki í því að það sé ekki löngu búið að dæma hann fyrir ofbeldi og skattsvik. Það er örugglega fullt af fólki þarna úti sem eru vitni ! hann kastar fólki sem gæfan hefur ekki verið hliðholl út með ofbeldi og dæmi um að gömlu fólki hafi verið hent út af Mandi á harða stéttina með þeim afleiðingum hné , hendur, höfuð blæði.
    1
  • Stella Ósk skrifaði
    Stend með þér og mun aldrei fara á Mandi aftur
    3
  • HS
    Hafskip slf skrifaði
    Þessi hlal er sorp
    4
  • Halla Þórhallsdóttir skrifaði
    Ég hef aldrei farið á þennan stað og mun svo sannarlega ekki gera það
    5
  • Thorgerdur Sigurdardottir skrifaði
    Èg stend međ þessari ungu konu gegn þessum ògeđfellda ofbeldimanni og mun aldrei versla þar aftur. Hvet alla ađ gera þađ sama...
    11
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég mun aldrei borða þar
    7
  • Gyða Hannesdóttir skrifaði
    Ég mun aldrei Koma til með að stunda Viðskipti við Mandy eða neitt sem honun tengist aftur
    7
  • Páll Pálsson skrifaði
    Fock mandì ég ætla aldrei að borða þar aftur
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár