Þorsteinn Már vill ekki að hreyft sé of mikið við sjávarútvegi svo hann verði „365“

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir að tryggja þurfi að ekki verði of miklar breyt­ingar í íslenskum sjáv­ar­út­vegi svo hann verði stöð­ugur. Á sjáv­ar­út­vegs­degi Deloitte tal­aði hann meðal ann­ars um að íslenskur sjáv­ar­út­vegur ætti að geta séð versl­unum erlendis fyrir fiski 365 daga á ári. Til þess að þetta megi verða þurfi að tryggja sam­keppn­is­hæfni íslenskra útgerð­ar­fé­laga sem séu lítil í alþjóð­legum sam­an­burði.

Þorsteinn Már vill ekki að hreyft sé of mikið við sjávarútvegi svo hann verði „365“
Talar um gjald­töku sem hemil á sam­keppn­is­hæfni Mynd: Stundin / Davíð Þór

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir að erfitt sé fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem veiða villtan fisk í sjó, eins og Samherja, að keppa við lax­eld­is­fyr­ir­tæki sem fram­leiða eld­is­fisk. „Við sjáum að eld­is­af­urðir eru að hluta til að taka yfir stóran hluta af þessum neyt­enda­mark­aði. Það eru eld­is­af­urð­irnar sem fá orðið meira og meira pláss í hill­unum. Og það sem er athygl­is­vert líka er að þessum fisk­borðum er að fækka og þetta er að fara meira yfir í pakk­aðar afurðir. Eitt af því sem er áber­andi við allar versl­ana­keðjur er að menn vilja ekki hafa hill­urnar tómar. Menn vilja vera í því sem kallað er 365 og það er það sem eld­is­af­urðir hafa fram yfir villtan fisk. Þetta er iðn­aður,“ en með þessum orðum átti Þor­steinn Már við að fyr­ir­tækin gætu afhent sinn fisk örugg­lega allt árið og að hann væri alltaf til sölu í versl­unum: Fram­boðið og eft­ir­spurnin væri stöðug. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Egill Ingólfsson skrifaði
    Er stundin nú farin að bergmála áróður stórútgerðarinnar og Þorsteins Más?
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Miðað við arðgreiðslur greinarinnar myndi ég segja að eftirfarandi sé öfugmæli: "Til þess að þetta megi verða þurfi að tryggja sam­keppn­is­hæfni ís­lenskra út­gerð­ar­fé­laga sem séu lít­il í al­þjóð­leg­um sam­an­burði."
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ætli hann snúi sér ekki eingöngu að laxeldinu, það kostar ekkert.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár