Hluthafar Símans ákveða fljótt hvort þeir fái meira en 30 milljarða greiðslu

Hlut­hafar í Símanum munu í næsta mán­uði taka ákvörðun hvort þeir fái 31,5 millj­arð króna greiddar út úr félag­inu. Stjórn félags­ins hefur lagt þetta til. Tilefnið er greiðsla sem barst í dag fyrir söl­una á inn­viða­fyr­ir­tæk­inu Mílu sem selt var franska fyr­ir­tæk­is­ins Ardian.

Hluthafar Símans ákveða fljótt hvort þeir fái meira en 30 milljarða greiðslu
Millj­arða flæði Síminn fékk í dag rúma 32 millj­arða króna í reiðufé vegna söl­unnar á inn­viða­fyr­ir­tæk­inu Mílu. Þessir millj­arðar enda í vasa eig­end­anna, ef allt fer sam­kvæmt áætlun stjórn­ar­innar.

Stjórn Símans vill að fyr­ir­tækið greiði eig­endum sínum út 31,5 millj­arð króna á næst­unni. Boðað verður til hlut­hafa­fundar í fyr­ir­tæk­inu 26. októ­ber næst­kom­andi þar sem þessi til­laga stjórn­ar­innar verður til umfjöll­unar.

Tilefnið er greiðsla sem Símanum hefur borist vegna söl­unnar á inn­viða­fyr­ir­tæk­inu Mílíu sem selt var 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn til franska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian France. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Símanum til kaup­hall­ar­innar. 

Ardian greiddi 32,7 millj­arða króna í reiðufé auk 17,5 millj­arða króna skulda­bréfs til þriggja ára, sem ber 4 pró­sent vexti. Símanum er heim­ilt að fram­selja skulda­bréfið og leysa þannig til sín and­virði þess fyrr en ann­ars. Í til­kynn­ingu stjórn­ar­innar kemur fram að það gæti gerst.

„Jafn­framt er til skoð­unar sala á fram­an­greindu skulda­bréfi eða eftir atvikum útgreiðsla þess til hlut­hafa en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Mílu

Hluthafarnir taka 56 milljarða úr Símanum eftir ríkisstyrki upp á 1,5 milljarða
FréttirSalan á Mílu

Hlut­haf­arnir taka 56 millj­arða úr Símanum eftir rík­is­styrki upp á 1,5 millj­arða

Hlut­hafar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Símans lækk­uðu hlutafé félags­ins um rúm­lega 31 millj­arð króna síðla árs í fyrra í kjöl­far sölu Mílu og greiddu út til eig­enda sinna. Samtals munu hlut­hafar Símans hafa tekið 56 millj­arða út úr félag­inu á síð­ustu árum, ef áætl­anir þeirra ganga eftir. Síminn stærir sig á sama tíma á fram­leiðslu inn­lends sjón­varps­efnis sem er nið­ur­greitt með styrkjum frá íslenska rík­inu.
Salan á Mílu: Heitir því að selja fjarskiptavinnviði Íslands ekki til „óviðunandi eigenda“
ÚttektSalan á Mílu

Salan á Mílu: Heitir því að selja fjar­skipta­vinn­viði Íslands ekki til „óvið­un­andi eig­enda“

Spurn­ingar hafa vaknað um við­skipti Símans og franska fyr­ir­tæk­is­ins Ardian með fjar­skipta­inn­viða­fyr­ir­tækið Mílu. „Ég hef áhyggjur af þessu,“ segir fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Mílu, um mögu­legt eign­ar­hald ef Ardian selur aftur. „Ég sé ekki í fljóti bragði að þetta geti gengið upp,“ segir hann um fjár­fest­ing­una. Í við­skipt­unum verður til mik­ill sölu­hagn­aður fyrir hlut­hafa Símans sem eru aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir og lands­þekktir fjár­festar í fyr­ir­tæk­inu Stoðum, áður FL Group.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár