Inga Sæland segist harmi slegin vegna framkomu á Akureyri

„Sú fram­koma sem þar er lýst er með slíkum ólík­indum að ég er gjör­sam­lega miður mín,“ segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins um fram­komnar ásak­anir á hendur for­ystu­fólks flokks­ins á Akureyri. Þrjár konur hafa lýst kyn­ferð­is­legri áreitni og óvið­eig­andi fram­komu í sinn garð af hálfu sam­flokks­manna.

Inga Sæland segist harmi slegin vegna framkomu á Akureyri

„Ég er væg­ast sagt harmi slegin eftir að hafa séð yfir­lýs­ing­una frá fram­boðs­konum Flokks fólks­ins á Akureyri. Sú fram­koma sem þar er lýst er með slíkum ólík­indum að ég er gjör­sam­lega miður mín,“ skrifar Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, á Facebook. Fyrr í dag sendu þrjár konur í for­ystu flokks­ins á Akureyri frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær lýsa óvið­un­andi fram­komu í sinn garð af hálfu ann­arra flokks­manna. 

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, vara­for­maður flokks­ins, birti í morgun til­kynn­ingu þess efnis að hann hefði kallað eftir að stjórn flokks­ins myndi funda um málið. Ekki hefur náðst sam­band við Ingu né Guðmund Inga síðan sú til­kynn­ing birt­ist. Nú hefur Inga hins vegar stað­fest, á Facebook, að fundur hefur verið kall­aður saman. 

„Ég hef form­lega kallað til fundar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu