Tekjur af fiskeldi þrefaldast og veiðigjöld fara upp fyrir 8 milljarða

Veiði­gjöld hækka um rúman millj­arð króna, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs. Það sama ger­ist vegna gjalda sem lögð eru á fisk­eldi. Samtals áætlar ríkið að tekjur af gjöldum á sjáv­ar­út­veg nemi 9,8 millj­örðum króna á næsta ári.

Tekjur af fiskeldi þrefaldast og veiðigjöld fara upp fyrir 8 milljarða
Auknar tekjur Ríkið gerir ráð fyrir þrefalt hærri tekjum af gjöldum vegna fisk­eldis á næsta ári en búist er við að inn­heimt­ist í ár. Mynd: Stundin

Ríkið gerir ráð fyrir þrefalt hærri tekjum af gjöldum vegna fisk­eldis á næsta ári en gert var ráð fyrir í ár. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi 2023 sem kynnt var í morgun. Í fjár­lögum yfir­stand­andi árs voru tekj­urnar áætl­aðar 540 millj­ónir króna en gert er ráð fyrir að þær verði 1.510 á næsta ári.

Sömu leiðis er gert ráð fyrir að tekjur af veiði­gjöldum vegna veiði­heim­ilda (fisk­veiði­kvóta) hækki. Vonir standa til að það nemi 8.320 millj­ónum króna. Gjaldið er lagt á miðað við afkomu veið­anna tveimur árum fyrir álagn­ingu. Það þýðir að gjald­takan á næsta ári mið­ast við veiðar árs­ins 2021.

„Aukið afla­magn og -verð­mæti árið 2021 miðað við 2020 gefur fyr­ir­heit um hækkun veiði­gjalds frá fyrra ári en áætl­unin verður end­ur­skoðuð þegar end­an­leg ákvörðun um veiði­gjöld liggur fyrir hjá Skatt­inum í byrjun des­em­ber nk,“ segir í skýr­ingum frum­varps­ins. 

Veiði­gjaldið var áætlað 7.100 millj­ónir í ár, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlagafrumvarp 2023

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár