816. spurningaþraut: Hér kemur Tíbesti-fjallgarðurinn við sögu í langri spurningu

816. spurningaþraut: Hér kemur Tíbesti-fjallgarðurinn við sögu í langri spurningu

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er tekin sum­arið 1968. Hvar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Alfa til ómega; hvað er það?

2.  Hvalir skipt­ast í tann­hvali og ... hvað?

3.  Í hvaða fræðum er talað um amper?

4.  Hann var annar í röð­inni af hinum eig­in­legu keis­urum Rómar, tók við af Ágústusi stjúp­föður sínum árið 14 eftir Krist og ríkti í 23 ár. Hann þótti strangur og grimmur á seinni hluta ævinnar, og sleppti þá fram af sér beisl­inu í sið­leysi og klámi ýmsu. Hvað hét hann?

5.  Síðasta ára­tug­inn bjó keisar­ann á lít­illi eyju við Ítal­íu­strendur og framdi þar marg­vís­leg subbu­verk sín. Hvaða eyja er það?

6.  Mitsu­bishi A6M var japönsk orr­ustuflug­vél í síð­ari heims­styrj­öld sem þótti lipur í bar­dögum fyrstu miss­eri stríðs­ins, en fljót­lega var hún þó orðin algjör eft­ir­bátur mun full­komn­ari banda­rískra véla. En A6M vélin var raunar þekkt undir allt öðru nafni — hún var sem sé nefnd eftir til­teknu stærð­fræði­tákni. Hvað var hún kölluð?

7.  Hversu margir strengir eru í venju­legri fiðlu?

8.  Montevideo er höf­uð­borgin í hvaða Suður-Amer­íku­landi?

9.  Tíbesti fjall­garð­ur­inn liggur um aðal­lega tvö lönd og hæsta fjallið í Tíbesti, Emi Koussi, er 3.415 metra hátt. Um mið­bik fjall­garðs­ins eru fimm stór eld­fjöll sem hafa að vísu ekki gosið í langan tíma, sum ekki í millj­ónir ára en önnur ekki í mörg þús­und ár. Eitt þeirra er þó kannski ennþá virkt. Umhverfis þessi eld­fjöll eru mikil gljúfur en þau eru að parti til lítt sýni­leg en að parti til upp­þornuð. Örsjaldan verða þó mikil en mjög skamm­vinn vatns­flóð í þessum gljúfrum. Hvar er Tibesti fjall­garð­ur­inn?

10.  Stephen, John, George, Edward, Charles, William, Henry, Richard, James. Hvaða nöfn eru þetta — ekki þó í réttri röð? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan hér að neðan komst í frétt­irnar á dög­unum, eins og stundum áður — einkum hér á árum áður. Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gríska staf­rófið.

2.  Skíð­is­hvali.

3.  Raf­magns­fræðum.

4.  Tíberíus.

5.  Kaprí.

6.  Zero.

7.  Fjórir.

8.  Úrúgvæ.

9.  Í Sahara-eyði­mörk­inni.

10.  Þetta er nöfnin á þeim körlum sem setið hafa sem kon­ungar Englands (og síðar Bret­lands) frá 1066.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin meðan á mót­mælum stúd­enta og verka­manna stóð — í París. Stúdent veifar frönskum fána ofan af Sig­ur­bog­anum.

Á neðri mynd­inni er Ivana heitin Trump sem dó um dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár