Hið illa má ekki hafa yfirhöndina

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, talar um leit­ina að ham­ingj­unni og segir ást­ina sterkasta aflið. Trúin hjálpar líka til og vissan um upp­ris­una. „Þannig vann ég mig til dæmis upp úr svart­nætti lífs­reynslu minnar ef ég má orða það þannig: Með því að hanga í ljós­inu.“ Písl­ar­sagan sé að end­ur­taka sig núna með fólk­inu í Úkraínu. „Þetta er bara svo mik­ill hryll­ingur að maður á ekki til orð.“

Hið illa má ekki hafa yfirhöndina
Hélt í ljósið Á myrkum tímum í lífi Agnesar hékk hún í ljós­inu, þar til hún fór að sjá bjart­ari hliðar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ham­ingjan er til­finn­ing sem lætur okkur líða vel en ham­ingjan getur líka verið ákvörðun um að líta á hlut­ina þannig að þeir færi manni ham­ingju, jafn­vel þó manni líði ekk­ert endi­lega vel þá stund­ina,“ segir Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands. „Þetta er spurn­ing um jákvætt hug­ar­far. Mér finnst þetta vera spurn­ing um lífs­af­stöðu. Það sem maður finnur inni í sér færir manni ham­ingju ef það eru jákvæðar og góðar til­finn­ingar.“

Agnes er spurð hvenær hún hefur mark­visst þurft að vinna í því að auka ham­ingju í líf­inu, eða við­halda henni, hvers vegna og hvernig.

Hún vill ekki nefna ákveðna erf­ið­leika sem hún hefur gengið í gegnum en segir: „Þegar maður gengur í gegnum erf­ið­leika þá fer maður niður í eitt­hvert svart­nætti. Svo fer maður að sjá pínu­lítið ljós. Ég sé þetta svo­lítið fyrir mér eins og súr­heystank­inn í sveit­inni hjá ömmu minni sem við krakk­arnir lékum okkur við að príla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár