Hverjir eru Ungverjar?

Ég er staddur í úthverfi Búdapest, mitt á milli strætó­stoppi­stöðva, og er farið að svengja. Góð ráð eru dýr. Hér er vissu­lega hægt að finna veit­inga­stað en eng­inn talar orð í ensku og ég kann aðeins eitt orð í ung­versku. Til allrar ham­ingju er það orð „gúllas“ og skömmu síðar sit ég með ung­verskt úthverfagúllas á borð­inu fyrir framan mig. En hvernig stendur á því að Ung­verjar tala mál sem er svo allt öðru­vísi en hjá nágranna­þjóð­unum?

Hverjir eru Ungverjar?
Stjórnin ávítt Ung­verja­land gekk í gegnum mikla einka­væð­ing­ar­bylgju, djúpa efna­hagslægð og stjórnar­á­tök. Stjórnin hefur verið ávítt fyrir mann­rétt­inda­brot. Mynd: Shutterstock

Allt í kring búa slav­neskar þjóðir á borð við Slóvaka og Pólverja en ung­verskt mál er fjar­skylt finnsku og eist­nesku og er reyndar af annarri mála­ætt, finnó-úgrísku, en ekki þeirri indó­evr­ópsku sem flest Evr­ópu­mál til­heyra. Nafn lands­ins er komið úr hinu lat­neska Hungaria, en Húnar höfðu áður komið sér fyrir þar sem nú er Ung­verja­land. Ung­verjar, sem sjálfir kalla sig Magyar, eru þó ekki afkom­endur Húna, heldur að öllum lík­indum ætt­aðir frá skóg­unum miklu á milli Volgufljóts og Úral­fjalla. Árið 895 lögðu þeir undir sig það svæði þar sem nú er Ung­verja­land undir stjórn for­ingj­ans Árpád, sem sam­kvæmt hefð­inni er afkom­andi Atla Húna­kóngs. 

Á næstu öld tók hirð­ingja­þjóðin upp evr­ópska siði og árið 1000 tóku þeir kristna trú á sama tíma og Íslend­ingar. Stefán I., eða heil­agur Stefán, fékk páfa­blessun og varð form­lega fyrsti kon­ungur Ung­verja­lands. Kóróna hans er enn höfð til sýnis í þing­hús­inu í Búdapest. Ríkið dafn­aði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Í Ungverjandi er ekki óalgengt að fólk viti ekki hverjir afar þeirra og ömmur voru!
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Alltaf fróðlegt að lesa eitthvað eftir Val. Fyrir þá sem ekki hafa lesið bókina Bjarmalönd eftir sama höfund þá mæli ég eindregið með henni. Ég hef haft mikla tengingu við austur Evrópu síðustu 20 ár og fékk mikinn áhuga á þessu svæði eftir að hafa verið austurfrá og kynnst fólki þar. Ég hef lesið allt sem ég kemst yfir á þeim málum sem ég les um austur Evrópu en bók Vals er svo góð að því leyti að hún reynir að upplýsa án þess að dæma og mér finnst hann svo sanngjarn í umfjöllun.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár