Mynd: Heida Helgadottir

Vill leggja niður Útlendingastofnun

Magnús Davíð Norðdahl lög­fræð­ingur hefur á sínum ferli verið áber­andi í bar­átt­unni fyrir rétt­indum fólks á flótta. Hefur honum nokkrum sinnum tek­ist að snúa við ákvörð­unum stjórn­valda, þegar vísa átti fólki úr landi. Afleið­ing­arnar eru þær að ein­stak­lingar hafa fengið að setj­ast að á Íslandi sem ann­ars hefðu verið hraktir út í óviss­una.

„Mér finnst íslensk stjórn­völd ganga fram með ómann­úð­legum hætti gagn­vart hæl­is­leit­endum og kerfið í heild sinni. Það eru mýmörg dæmi þess að þau hunsi ytri aðstæður fólks, jafn­vel þegar til­efni er til þess að horft sé í þær. Svo er það allt ferlið, sem er stirt og erfitt. Við sem höfum starfað í þessum geira erum alveg sam­mála um það.“

Bendir Magnús á að lögin séu þannig að mikið af ákvæðum þeirra séu þess eðlis að beita þurfi mati, til dæmis þegar veitt eru dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Er þá metið hversu alvar­leg staða við­kom­andi umsækj­anda er og þær aðstæður sem senda á hann í aftur.

„Oft er þetta á ein­hverri hnífs­egg hvorum megin málið lendir og þá fer það bara eftir við­kom­andi starfs­manni. Þannig að það er mín skoðun að það sé hægt, með þeim lögum sem við nú höfum, að skipta algjör­lega um þann tón sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár