Tveir sérvitringar sem fundu hvor annan

Eftir tveggja ára­tuga hjóna­band hafa hjónin Una Margrét Jóns­dóttir og Hólm­steinn Eiður Guð­rún­ar­son það að leið­ar­ljósi að vera til staðar. Með vin­átt­una að vopni hafa þau tek­ist á við erf­ið­leika og áskor­anir, hvort sem það eru almennir hjóna­bandserf­ið­leikar eða áráttu- og þrá­hyggjurösk­unin sem Una er með en þau lifa bæði.

Tveir sérvitringar sem fundu hvor annan

Una Margrét og Eiður, eins og þau eru kölluð af öðrum, kalla sig sjálf sér­vitr­inga, mikla sér­vitr­inga ef út í það er farið. Þau segj­ast heppin að hafa fundið hvort annað, heppin að hafa fundið annan sér­vitr­ing til að deila lífi sínu, gleði og áskor­unum með. 

Áskor­anir þeirra hjóna eru sum­part ósköp hvers­dags­legar og jafn­vel kunn­ug­legar, erf­ið­leikar sem flest hjón mæta, en svo er áskorun sem hefur mótað þau og þeirra hjóna­band mikið og kennt þeim ýmis­legt um þau sjálf, lífið og sam­lífið. Það er áráttu-og þrá­hyggjuröskun Unu Mar­grétar.

Frá því að Una var ung stelpa hefur hún glímt við áráttu og þrá­hyggju sem hún komst að seinna að væri hluti af röskun. Þetta byrj­aði allt þegar hún var barn en þá fór hún að fá ýmiss konar þrá­hyggju til að mynda fyrir því að söngla alltaf sama bút­inn úr lagi. „Þegar mamma og pabbi spurðu mig af …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár