Spítalanum tókst ekki að vernda þá viðkvæmustu

Gauti Krist­manns­son missti föður sinn vegna hóp­sýk­ing­ar­innar sem varð á Landa­koti í fyrra. Hann reidd­ist snögg­lega þegar hann las nið­ur­stöður úr rann­sókn emb­ættis land­læknis á því hvað orsak­aði það ófremd­ar­á­stand sem varð á Landa­koti.

Spítalanum tókst ekki að vernda þá viðkvæmustu
Mjög alvar­legt til­felli Helm­ingur allra sem dóu á Íslandi í Covid- 19 far­aldr­inum dóu sökum hóp­sýk­ing­ar­innar á Landa­koti. Meðal þeirra var faðir Gauta Krist­mann­sonar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gauti Krist­manns­son segir að sér hafi hitnað í hamsi við að lesa nið­ur­stöður úr rann­sókn emb­ættis land­læknis á hóp­sýk­ing­unni sem varð á Landa­koti síð­ast­lið­inn októ­ber­mánuð. Faðir Gauta var einn þeirra sjúk­linga sem lést úr Covid á Landa­koti í kjöl­far hóp­sýk­ing­ar­innar. „Ég reidd­ist þarna þegar ég sá frétt­irnar og las nið­ur­stöð­urnar en svo varð ég mest sorg­mæddur,“ segir Gauti.

Tókst ekki að vernda þá viðkvæmustu 

Þegar hóp­sýk­ingin kom upp í októ­ber og sömu­leiðis í kjöl­far hennar, seg­ist Gauti hafa upp­lifað hana sem slys en til­finn­ingin sé örlítið önnur núna þegar emb­ætti land­læknis hafi farið í saumana á því hvað gerð­ist þessa örlaga­ríku daga á Landa­koti. „Eins og maður sér í skýrsl­unni voru tæp­lega hund­rað manns sem smit­uð­ust, þar af 57 starfs­menn og 15 sjúk­lingar sem deyja. Það er einn af hverjum tíu sem smit­að­ist á Landa­koti og helm­ingur allra dauðs­falla í land­inu vegna far­ald­urs­ins. Þannig að þetta er mjög alvar­legt til­felli.“ Af töl­unum að dæma segir Gauti að spít­al­anum hafi ekki tek­ist að vernda við­kvæm­asta hóp­inn, fólkið á Landa­koti.

Að ein­hverju leyti segir Gauti að líkja megi hóp­sýk­ing­unni við slys, að því leyti að þetta var engum að kenna, það ætl­aði sér eng­inn að þetta myndi fara svona. „En miðað við þá reynslu og þekk­ingu sem er á sótt­vörnum á Land­spít­al­anum þá hefði mátt tryggja að þessi sótt­varn­ar­hólf hefðu verið betur ein­angruð hvert frá öðru. Auðvitað veit ég ekki hvað var hægt í þeim efnum en í ljósi þess að þeir höfðu glímt við aðra hóp­sýk­ingu í mars þá finnst mér þetta svo­lítið mikið slysa­legt,“ segir Gauti og bætir við að við lest­ur­inn hafi honum einnig þótt und­ar­legt hve stopular sýna­tök­urnar voru á Landa­koti í aðdrag­anda og meðan á hóp­sýk­ing­unni stóð, sér­stak­lega í ljósi þess hve við­kvæmir ein­stak­lingar dvöldu þar. 

Faðir Gauta var ski­maður fyrir veirunni eftir að ljóst var í hvað stefndi, eða um 23. októ­ber. Fjöl­skyldan fékk hins vegar þær fregnir aðeins þremur dögum síðar að hann væri smit­aður. Þau höfðu þá tök á því að heim­sækja hann í „fullum sótt­varn­ar­skrúða,“ eins og Gauti lýsir því en þrjá­tíu tímum síðar var faðir hans lát­inn, fjórum dögum eftir að ástandið kom upp. 

Upplýsingagjöf ábótavant  

Við lestur skýrsl­unnar voru það einkum tvö atriði sem stungu Gauta. Annars vegar það að sótt­varn­ar­hólf hafi ekki verið nægi­lega ein­angruð og svo það, að sam­kvæmt skýrsl­unni hafi upp­lýs­inga­gjöf til starfs­manna af erlendu bergi brotnu, verið virki­lega ábóta­vant. „Það verða allir að fá upp­lýs­ingar um sótt­varnir og hvernig þeir eigi að haga sér á tungu­máli sem þeir skilja. Það er ekki nóg að vera með ensku. Þetta starfs­fólk kemur að hluta til frá fjar­lægum heims­hlutum og það hefur allt annað sam­band við enska tungu­málið en við Íslend­ingar.“

Gauti er pró­fessor í þýð­inga­fræðum og er því sér­fræð­ingur í þeim mál­efnum er snúa að því að koma skila­boðum til skila á tungu­máli sem þarf hverju sinni. Hann segir það vanda­mál sem komi fram í skýrsl­unni vera almennt vanda­mál í íslensku heil­brigð­is­kerfi. „Fimmtán pró­sent af lands­mönnum eru af erlendu bergi brotnir og enska dugar þeim ekki í öllum til­fellum. Ástandið á túlk­un­ar­þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu er hæpið. Það eru oft ekki kall­aðir til túlkar og maður hefur heyrt sögur um það að Google translate hafi verið notað til að koma skila­boðum til sjúk­linga sökum tungu­mála­örð­ug­leika. Allt þetta er vanda­mál og það er í lögum um rétt­indi sjúk­linga að þeir eigi rétt á túlkun en það virð­ist ekki alltaf verið farið eftir því í ein­hverju sparn­að­ar­skyni. Svo er það hin hliðin á pen­ingnum, þetta með að starfs­fólk á sömu­leiðis rétt á því að fá upp­lýs­ingar er varðar starf sitt og skyldur á því tungu­máli sem það skilur.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvað gerðist á Landakoti?

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár